Laus staða sérfræðings við Grænfánaverkefni Landverndar

Landvernd óskar eftir sérfræðingi til starfa við Grænfánaverkefni samtakanna.

Landvernd óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við Grænfánaverkefni samtakanna. Verkefnið er alþjóðlegt menntaverkefni um umhverfismál og sjálfbærni sem rekið er í yfir 200 skólum á öllum skólastigum á Íslandi.

Landvernd er líflegur og skemmtilegur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á að hugmyndir og atorka starfsfólks fái notið sín í þágu umhverfis- og náttúruverndar. Auglýsingu um starfið má finna hér í viðhengi.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd