Ljósmyndaleikur Hjarta landsins

Hafinn er ljósmyndaleikur Hjarta landsins á vegum Landverndar. Með þátttöku gefst öllum áhugasömum tækifæri á að vekja athygli á verðmætunum sem fólgin eru í víðernum hálendisins og taka undir kröfuna um vernd þeirra.

Hafinn er ljósmyndaleikur Hjarta landsins á vegum Landverndar. Með þátttöku gefst öllum áhugasömum tækifæri á að vekja athygli á verðmætunum sem fólgin eru í víðernum hálendisins og taka undir kröfuna um vernd þeirra. Þú tekur þátt með því að senda ljósmynd sem þú hefur tekið á hálendinu á landvernd@landvernd.is merkt ,,hálendismynd“ eða birtir hana á instagram merkta #hjartalandsins.

Verðlaun verða veitt fyrir bestu myndirnar. Verðlaunin eru gönguskór frá Útivist, gönguferð með Ferðafélagi Íslands, iPhone 5C frá Símanum og flugferð yfir hálendið með Ómari Ragnarssyni. Hægt er að senda inn myndir til 15. október.

Hálendið – hjarta landsins er verkefni sem Landvernd, Ferðaklúbburinn 4×4, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist og Samtök útivistarfélaga (SAMÚT) standa að í sameiningu. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á fyrirhuguðum framkvæmdum á hálendi Íslands, efla umræðu um þær og fylkja fólki á bak við kröfuna um að hálendinu verði hlíft. Sjá nánar á hjartalandsins.is og heartoficeland.org.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd