Opinn fundur um álver í Helguvík – föstudaginn 12. janúar

Nýleg könnun á vef Víkurfrétta sýnir að skiptar skoðanir eru um hvort reisa skuli álver í Helguvík. Lítil sem engin umræða hefur farið fram um málið á meðal íbúa svæðisins en samt er unnið að framvindu málsins.

Svarta pakkhúsið, Hafnargötu 2 í Reykjanesbæ.

Opinn fundur um álver í Helguvík – föstudaginn 12. janúar kl. 20:00
Ef álver rís í Helguvík mun það kalla á margar nýjar virkjanir víðsvegar á Reykjanesskaganum með tilheyrandi umhverfisraski og háspennulínum. Reykjanesskaginn hefur jarðfræðilega sérstöu á heimsvísu og þar af leiðandi er verndargildi hans afar hátt.

Lítil sem engin umræða hefur farið fram um málið á meðal íbúa svæðisins en samt er unnið að framvindu málsins af fullum krafti. Mikilvægt er að þeir sem hafa efasemdir um áformin komi saman og ræði málið til þess að fá yfirsýn yfir hvað í áformunm felst. Í þeim tilgangi er hér með boðað til opins fundar þar sem varpað verður ljósi á áformin og áhrif þeirra á dýrmæta náttúru Reykjanesskagans. Greint verður frá hugmyndum um eldfjallagarð sem gæti skapað góð tækifæri til atvinnuuppbyggingar án þess að fórna þurfi náttúruauðlindum og stórbrotnu landslagi Reykjanesskagans.

Framsögumenn á fundinum verða, Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur stjórnarmaður í Náttúruvaktinni, Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, Sigrún Helgadóttir, líffræðingur, og Ægir Sigurðsson, kennari.

Ómar Ragnarsson kynnir og sýnir myndskeið þar sem sjá má spjöll vegna jarðhitarannsókna við Sogin hjá Trölladyngju og ósnortin viðerni Brennisteinsfjalla.

Fundarstaður: Svarta pakkhúsið, Hafnargötu 2 í Reykjanesbæ.
Fundartími: Föstudaginn 12. janúar kl. 20:00.

Til fundarins boðar undirbúningshópur um stofnun samtakanna Sól á Suðurnesjum.

Skiptar skoðanir um álver í Helguvík.
Niðurstaða könnunar á vef Víkurfrétta dagana 28. nóvember til 4. desember. Með skráningu á IP tölum er gengið úr skugga um að aðeins eitt atkvæði komi frá hverri tölvu. Niðurstöðurnar sýna að skiptar skoðanir séu um málið á meðal lesenda www.vf.is og líkega á hið sama við um Suðurnesjamenn almennt. Liðlega 1.500 tóku þátt í könnuninni.

Sjá einnig grein á vef Víkurfrétta.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd