Fjölmennur aðalfundur Landverndar

Stöndum vörð um náttúru Íslands Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Landvernd virðir íslenska náttúru og styður sjálfbæra nýtingu hennar. Taktu afstöðu og vertu með! landvernd.is
Konur skipa meirihluta stjórnar Landverndar eftir fjölmennan aðalfund samtakanna í gær. Fimm einstaklingar koma nýir inn í stjórn Landverndar til tveggja ára, en þau Jón S. Ólafsson og Hrefna Sigurjónsdóttir voru endurkjörin til eins árs. Guðmundur Hörður Guðmundsson umhverfisfræðingur var kosinn formaður til tveggja ára.

Konur skipa meirihluta stjórnar Landverndar eftir fjölmennan aðalfund samtakanna í gær. Fimm einstaklingar koma nýir inn í stjórn Landverndar til tveggja ára, en þau Jón S. ólafsson og Hrefna Sigurjónsdóttir voru endurkjörin til eins árs. Guðmundur Hörður Guðmundsson umhverfisfræðingur var kosinn formaður til tveggja ára. Aðrir nýir í stjórn eru: Anna Gunnhildur Sverrisdóttir, Einar Bergmundur Arnbjörnsson, Helena óladóttir og Helga ögmundardóttir.

Aðalfundur Landverndar samþykkti ályktanir um Rammaáætlun, sjálfbærni í skólastarfi, mengunarvarnir, stofnun ungliðahreyfingar Landverndar, eflingu almenningssamgangna og um aukinn stuðning stjórnvalda við umhverfisverndarhreyfinguna í landinu. ályktanirnar verða birtar á heimasíðu Landverndar innan skamms.

Stjórn Landverndar skipa:

Guðmundur Hörður Guðmundsson, umhverfisfræðingur
formaður Landverndar
Anna Gunnhildur Sverrisdóttir, ferðamálaráðgjafi
Einar Bergmundur Arnbjörnsson, tölvunarfræðingur
Fríða Björg Eðvarðsdóttir, landslagsarkitekt
Helena óladóttir, umhverfisfræðingur
Helga ögmundardóttir, mannfræðingur
Hrefna Sigurjónsdóttir, vistfræðingur
Jón S. ólafsson, vatnalíffræðingur
Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri
Sveinbjörn Björnsson, jarðeðlisfræðingur og fyrrverandi rektor Háskóla íslands

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd