Paradísarmissir? Hálendishátíð í Háskólabíó 16.apríl kl 20:00

Paradísarmissir? Hálendishátíð í Háskólabíó 16.apríl kl 20:00

Mikil samstaða ríkir um það að vernda skuli hálendi Íslands, en í nýgerðri könnun Capacent Gallup sem framkvæmd var fyrir Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands kom í ljós að 60% aðspurðra vilja stofna þjóðgarð á hálendi Íslands.

Landvernd í samstarfi við Náttúruverndarsamtök Íslands, Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Útivist, Ferðaklúbbinn 4×4, Samút og Framtíðarlandið bjóða að því tilefni til hálendishátíðar í Háskólabíói sem hefur fengið nafnið ,,Paradísarmissir?

Við viljum vekja fólk til vitundar um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á hálendi Íslands og hvetja fólk til að flykkjast að baki okkur og styðja okkur í þessari baráttu . Við viljum ekki sjá fleiri virkjanir, uppbyggða vegi eða háspennulínur á hálendinu- hjarta landsins.

Á viðburðinum munu ræðumenn flytja örræður, sýnd verða örviðtöl við ýmsa þjóðþekkta einstaklinga á myndbandaformi og flutt verða skemmtiatriði. Við viljum skapa skemmtilegt andrúmsloft þar sem fólki verður blásinn baráttu andi í brjóst og fegurð hálendisins hampað til að minna okkur á mikilvægi þess að vernda það.

Mætum í Háskólabíó þann 16.apríl kl 20:00 og verndum hálendi Íslands.

Frítt inn og allir velkomnir!

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd