Aðalfundur Landverndar 30. apríl 2018

Félagsmenn eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á stefnu og störf samtakanna.

Stjórn Landverndar boðar til aðalfundar samtakanna mánudaginn 30. apríl klukkan 17 í Rúgbrauðsgerðinni, 4. hæð, að Borgartúni 6, 105 Reykjavík. Skráning hefst kl. 16:30. Aðgengi er gott fyrir fólk með hreyfihömlun. Dagskrá fundarins má nálgast hér að neðan. Mikilvægt er að skrá sig á fundinn.

Skráning

Í stjórn Landverndar sitja tíu manns. Á aðalfundi 2018 verður kosið um formann stjórnar til eins árs og fimm stjórnarmenn til tveggja ára. Allir kjörgengir félagsmenn geta boðið sig fram á fundinum. Núverandi formaður, Snæbjörn Guðmundsson, sem kosinn var til formanns á aðalfundi 2017, þarf frá að hverfa vegna persónulegra aðstæðna.

Í upphafi aðalfundar verður lagt til að samþykkt verði að vegna sérstakra aðstæðna fari fram formannskosning til eins árs og gildi þá 3. mgr. 10. gr. laga Landverndar, en að því ári liðnu verði kosning stjórnarmanna í samræmi við 16. gr. laga Landverndar.

Við hvetjum ykkur til að mæta og hafa áhrif á stefnu og störf samtakanna. Við minnum á að þau sem enn skulda félagsgjöld verða að hafa greitt þau fyrir aðalfund til að tryggja sér atkvæðisrétt og kjörgengi á fundinum. Jafnframt hvetjum við ykkur til að taka nýja félaga með á fundinn. Hægt verður að greiða félagsgjöld á fundinum.

Dagskrá:

16:30 Húsið opnað og skráning fundargesta

17:00 Setning aðalfundar og kjör fundarstjóra og fundarritara

17:05 Aðalfundarstörf

Kjör í nefndir fundarins
Kynning ályktana
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur 2017
Lagabreytingar
Kosning skoðunarmanna reikninga Landverndar og Alviðrustofnunar
Kosning stjórnar. Formannskjör og fimm aðalmenn

18:10 Nýtt í starfinu

Nýr framkvæmdastjóri Landverndar
Hreinsum Ísland
Opnun hugmyndabanka. 50 ára afmæli Landverndar 2019

18:50 Niðurstaða kosninga

19:00 Léttur kvöldverður í boði Landverndar

19:30 Afgreiðsla ályktana

20:00 Önnur mál

20:15 Hugvekja – Andri Snær Magnason

20:30 Aðalfundi slitið

20:35 Léttar veitingar

21:35 Húsið lokar

Hér má nálgast fundargögn:

Fimm ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn

Lög Landverndar

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd