Haustfréttabréf Skóla á grænni grein 2016

Haustfréttabréf Skóla á grænni grein er komið út.

Nú er skólaárið 2016-2017 komið vel á veg. Við höfum sinnt margvíslegum verkefnum í haust. Fyrstu úttektarlotu skólaársins er að ljúka og höfum við heimsótt marga skemmtilega leik- og grunnskóla. Undanfarið höfum við verið að uppfæra upplýsingar um þátttökuskóla og við viljum þakka fyrir góð viðbrögð í upplýsingasöfnuninni. Upplýsingarnar eru mikilvægar fyrir utanumhald Grænfánaverkefnisins og sýnileika okkar út á við.

Í fréttabréfinu kennir ýmissa grasa en meðal efnis er:

Grænfánaráðstefna verður haldin 10. febrúar: Takið daginn frá!
Úttektarlota
Tveir nýir Skólar á grænni grein: Tækniskólinn og Verkmenntaskóli Austurlands

Ný heimasíða Grænfánans í vinnslu

Umhverfistöframaður í heimsókn
Nýr starfsmaður Skóla á grænni grein

Lesa fréttabréf

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd