Yfirlýsing stjórnar Landverndar vegna rannsóknarleyfis í Grændal

Stöndum vörð um náttúru Íslands Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Landvernd virðir íslenska náttúru og styður sjálfbæra nýtingu hennar. Taktu afstöðu og vertu með! landvernd.is
Stjórn Landverndar harmar ákvörðun Orkustofnunar að veita leyfi fyrir sitt leyti til borana í Grændal í Ölfusi í tengslum við jarðhitarannsóknir. Grændalur er svæði með verndargildi á heimsvísu að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands sem verðskuldar hámarks vernd.

Stjórn Landverndar harmar ákvörðun Orkustofnunar að veita leyfi fyrir sitt leyti til borana í Grændal í Ölfusi í tengslum við jarðhitarannsóknir. Grændalur er svæði með verndargildi á heimsvísu að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands sem verðskuldar hámarks vernd.

Stjórn Landverndar undrast að stjórnvöld, undir forystu Orkustofnunar, séu reiðubúin til að fórna slíku svæði fyrir fyrirhugaða 10 MW virkjun í mynni Grændals, þvert á afstöðu sveitarfélagsins Ölfuss, Umhverfisstofnunar, Skipulagsstofnunar og umhverfisráðuneytisins.

Stjórn Landverndar hefur boðað náttúruverndarsamtök til fundar til að ræða hvaða áhrif umrædd niðurstaða Orkustofnunar, sem túlka verður sem stefnubreytingu af hálfu stjórnvalda, kann að hafa á þátttöku þeirra í starfi Rammaáætlunar. Það er mat stjórnar Landverndar að stjórnvöld verði að grípa strax til ráðstafana til að tryggja að náttúru Grændals verði ekki raskað í kjölfar ákvörðunar Orkustofnunar.

Stjórn Landverndar bendir á að ákvörðun Orkustofnunar sýni vel fram á það stefnuleysi sem er ríkjandi í orkuiðnaði hér á landi, þar sem skipulags- og leyfisveitingavaldi hefur á undanförnum árum verið dreift á stofnanir og sveitarfélög. Við treystum því að núverandi stjórnvöld breyti lögum og reglugerðum til að sitja ekki undir ámæli um að forðast pólitíska ábyrgð ríkisstjórnar og Alþingis á skipulags-, stóriðju- og virkjanamálum. ótækt er að einni stofnun sé kleift að veita leyfi til að raska svæði sem náttúruverndarsamtök, ríkisstjórn, fagstofnanir á sviði umhverfismála og sveitarfélög eru sammála um að vernda.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd