BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250619T180000
DTEND;TZID=UTC:20250619T200000
DTSTAMP:20260407T021847
CREATED:20250612T131442Z
LAST-MODIFIED:20250616T104404Z
UID:47224-1750356000-1750363200@landvernd.is
SUMMARY:Sköflungsganga Landverndar - Heiðar í háska - Mosfellsheiði
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 19. júní klukkan 18:00 🥾 \n  \n Leiðarlýsing á upphafsreit gönguleiðar:  Beygt er út af Suðurlandsvegi og Nesjavallavegur ekinn meðfram rörinu. Þrátt fyrir að við gerum ráð fyrir að flestir vilji fara á eigin bílum\, væri gott að sameinast í bíla hjá Össuri á Grjóthálsi en þaðan verður farið í síðasta lagi kl.17:15.  \n\nStaðsetning: Mæting og upphaf göngu er kl 18:00 á bílastæði sem er merkt inn á eftirfarandi hlekk \nsvo rata megi auðveldlega:  https://maps.app.goo.gl/iNgXsaXXVV6nV6Ls9 \n  \nLýsing gönguferðar:  Lengd gönguleiðar er ca. 5 km fram og til baka. Gert er ráð fyrir að gangan taki allt að þrjár klukkustundir með nestisstund. Mikilvægt er til öryggis að taka með skjólgóðan fatnað og góða skó en annars er leiðin greiðfær og við flestra hæfi og auðvitað gerum við ráð fyrir góðu gönguveðri og stórkostlegu útsýni. ☺\nAf Sköflungi er góð sýn yfir Mosfellsheiði\, einnig til Þingvalla og síðast en ekki síst yfir áhrifasvæði fyrirhugaðra framkvæmda við vindorkuver.  \n  \nÞetta er þriðja gangan undir merkjunum “Heiðar í háska” og voru hinar göngurnar fjölmennar og mæltust sérstaklega vel fyrir.  Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir og athugið að gangan er ekki aðeins fyrir félaga í Landvernd. Við hvetjum hins vegar auðvitað þátttakendur til að ganga til liðs við Landvernd auk þess að taka þátt í samstöðugöngu gegn þeim áformum sem uppi eru. \n  \nÁform eru uppi um þrjú vindorkuver á milli Lyklafells og Sköflungs á Mosfellsheiði. \nHæð vindorku mannvirkja á svæðinu eru áætluð frá 180 – 210 metra á hæð. Vindorkuverum á Mosfellsheiði er ætlað að rísa í flasið á útivistarlandi og náttúruparadís höfuðborgarbúa. \nMikil andstaða er við þessi áform enda hefðu fyrirhuguð iðnaðarver áhrif á náttúru\, lífríki og upplifun og útivist á gríðarlega stóru svæði. Auk beinna samfélagslegra áhrifa hafa atvinnuflugmenn og áhugafólk um flug lýst yfir sérstökum áhyggjum af staðsetningu vindorkuvera á þessu svæði. \nStöndum saman og sýnum samhug í verki til varnar einstöku útivistarsvæði og heiðarlandi við rætur Hengils í bakgarði stór höfuðborgarsvæðisins og Þingvallasveitar.  \n  \nVerið velkomin í meðmælagöngu með heiðarlandi í hættu. \nLeiðsögumenn: Páll Ásgeir Ásgeirsson\, Rósa Sigrún Jónsdóttir\, \nAndrés Skúlason og Kristín Helga Gunnarsdóttir.  \n  \nVinsamlega athugið að skráning í ferðina er æskileg og hægt að gera það á facebook viðburðinum hér: https://fb.me/e/4KlX8DBub  \n  \nNánari upplýsingar veita: \nKristín Helga Gunnarsdóttir\, stjórnarfulltrúi í Landvernd – 896 9771. \nAndrés Skúlason verkefnastjóri Landvernd – 8995899.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/skoflungsganga-landverndar-heidar-i-haska-mosfellsheidi/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Skoflungur-.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR