BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Landvernd
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250628T130000
DTEND;TZID=UTC:20250628T150000
DTSTAMP:20260407T032947
CREATED:20250613T100656Z
LAST-MODIFIED:20250626T141110Z
UID:47257-1751115600-1751122800@landvernd.is
SUMMARY:Upp á Ingólfsfjall
DESCRIPTION:Ganga upp á Ingólfsfjall og notalegheit með kakó og kleinum. \nSíðbúin Jónsmessuganga að Inghól og norður eftir fjallinu\, niður að Torfastöðum og til suðurs meðfram fjallshlíðinni að Alviðrubænum. \nIngólfsfjall\ner 551 m hátt virðulegt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu\, í vestur\, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi og að Torfastöðu\, sem er nokkuð brattari niðurleið. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt. \nIngólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann i vetursetu undir Ingólfsfjalli á leið til Reykjavíkur\, að því  er segir í Landnámu\, og flutti frá Reykjavík gamall maður aftur að fjallinu og lauk þar ævidögum sínum \nGengið verður frá bænum Alviðru\nHér má finna saðsetningu Alviðru á korti \neftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól\, þar sem Ingólfur landsnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Frá Inghól verður gengið norður eftir Ingólfsfjalli og komið niður á móts við Torfastaði. Það er nokkuð brött leið og því gott að hafa göngustaf með til að styðjast við. Þegar niður er komið er gengið til suðurs meðfram fjallinu að Alviðrubænum. Ætla má að gangan taki 4 til 6 klukkustundir. \nMunið göngustaf\, haldgóða skó\, hlífðarföt og nestisbita. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson fv. formaður Landverndar sem oft hefur gengið á fjallið. \nBoðið verður upp á kakó og kleinur í bænum að aflokinni göngu. \nÞeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða\, fallega\, vel merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst. \nAlviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðarnes II er eign Árnesinga og er einnig friðland með merktum gönguleiðum og opið almenningi. \nÍ sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir öðrum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins  er hér á síðu Landverndar \nviðburð má finna hér á facebooksíðu Alviðru
URL:https://landvernd.is/vidburdur/upp-a-ingolfsfjall/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/14-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR