BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Landvernd
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260627T120000
DTEND;TZID=UTC:20260627T140000
DTSTAMP:20260610T133023
CREATED:20260602T170713Z
LAST-MODIFIED:20260609T164701Z
UID:49061-1782561600-1782568800@landvernd.is
SUMMARY:Fuglaskoðun í Flóa
DESCRIPTION:Hlynur Steinsson og Íslenski bærinn í Flóa bjóða félögum Landverndar í skemmtilega fuglaskoðun sem hentar öllum aldurshópum. Byrjað verður á fræðslustund í sýningarskálanum og svo verður haldið út og leitað að fuglum.\n\nFuglarnir í mýrinni Austur-Meðalholt og nágrenni bæjarins búa yfir ríkulegu fuglalífi. Þar er því fullkomið að fræðast um margar af helstu fuglategundum landsins.\n\nVið ætlum helst að fræðast um fjaðrir\, hreiður\, bein og söng fugla og nýta okkur nágrennið til fuglaskoðunar og útiveru. Með bæði vísindalegum og listrænum aðferðum reynum við að svara spurningum um líf og tilveru fuglana.\n\nHvernig fara fuglar að því að fljúga? Hvernig hugsa fuglar? Hafa fuglar einhverja menningu og sköpunargáfu?  Er það satt að í votlendinu í Flóanum lifa fljúgandi risaeðlur sem syngja og dansa allan sólarhringinn?\n\nVið verðum með sjónauka og víðsjá á staðnum en endilega komið með ykkar eigin sjónauka ef þið getið! Dagskrá verður aðeins spiluð eftir veðri. Hentar fullorðnum jafnt sem börnum. Kaffi\, te og með því á boðstólum.\n\n\nViðburðurinn stendur yfir í um tvo tíma en sjálfsagt er að doka lengur við og skoða Íslenska bæinn.\n\n\nHlynur Steinsson er líffræðingur að mennt og hefur getið af sér gott orð í miðlun sinni um fugla\, meðal annars með þáttunum Fuglafit sem finna má hjá Rúv. \nÍslenski bærinn fóstraði þjóðina í aldanna rás og var um leið vagga innlendrar menningar\,\nallt í senn  fallegur\, frumlegur og fínlegur  í sinni náttúrulegu mýkt. Menningarsetrið Íslenski bærinn er húsaþorp\, sýningarstaður\, samkomustaður og leikvöllur sem hverfist um íslenska torfbæinn og græna byggingalist. Þar munu gestir upplifa einstakan staðaranda\, jafnframt því að skoða sýningar sem útskýra samhengi\, þróun og tilbrigði íslenskra torfbæja með það að leiðarljósi að túlka aldagamlan og einstakan arf inn í samtímann með samþættingu\, fræðimennsku\, listrænni nálgun og varðveislu verkmenningar.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fuglaskodun-i-floa/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/06/Florgodi24at.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR