BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Landvernd
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241106T170000
DTEND;TZID=UTC:20241106T183000
DTSTAMP:20260411T185746
CREATED:20241024T135912Z
LAST-MODIFIED:20241028T142150Z
UID:45135-1730912400-1730917800@landvernd.is
SUMMARY:Kjósum nægjusemi
DESCRIPTION:Stígðu skrefið að aukinni hamingju og minna vistspori með því að velja nægjusemi. \nLandvernd og Neytendasamtökin bjóða á fræðslustund um nægjusemi og neysluhyggju\, miðvikudaginn 6. nóvember kl. 17:00-18:30\, á Loft hostel. Fyrir þau sem ekki komast á svæðið verður viðburðinum streymt í gegnum Facebook síðu Landverndar. Ath. að þó verður ekki hægt að streyma umræðunum í lokin.  \n„Nægjusemi – fyrir þig og umhverfið\,“ er erindi Guðrúnar Schmidt\, sérfræðings hjá Landvernd. Nægjusemi stuðlar ekki aðeins að aukinni hamingju og frelsi\, heldur er hún grunnforsenda sjálfbærrar þróunar og árangri í loftslagsmálum. Guðrún kynnir fyrir okkur hugtakið nægjusemi\, stöðu þess í vestrænum heimi og mikilvægi þess fyrir nútíð og framtíð – ekki síst í tengslum við loftslagsmál. \n„Er ekki bara komið nógember?“\, Breki Karlsson\, formaður Neytendasamtakanna\, fjallar um örfá atriði sem gott er að hafa í huga áður en þú sankar að þér öllu draslinu á kaupgleðileikjunum í nóvember. \nNægjusamur nóvember er hvatningarátak Landverndar og Grænfánans og er hugsað sem mótsvar við neysluhyggjunni sem einkennir þennan mánuð. Fyrirlesturinn er einn af mörgum viðburðum í Nægjusömum nóvember. \nGerum nægjusemi að nýja norminu! \nHlökkum til að sjá ykkur! \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/kjosum-naegjusemi/
LOCATION:Loft\, Bankastræti 7\, Reykjavik\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/10/kjosum_naegju_Loft_vefur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241112T200000
DTEND;TZID=UTC:20241112T210000
DTSTAMP:20260411T185746
CREATED:20241025T113644Z
LAST-MODIFIED:20241025T113644Z
UID:45179-1731441600-1731445200@landvernd.is
SUMMARY:Kynslóð eftir kynslóð: Spjall um nægjusemi
DESCRIPTION:Þriðjudagskvöldið 12. nóvember standa Landvernd og Grænfáninn\, í samstarfi við Tehúsið\, fyrir kynslóðaspjalli í Tehúsinu á Egilsstöðum\, frá kl. 20-21. Þar ræða fulltrúar þriggja kynslóða um nægjusemi og ýmsar hugleiðingar tengdar henni.   \nVissir þú að nægjusemi er nauðsynlegt skref í loftslagsbaráttunni og í átt að sjálfbærri þróun? En hvað þýðir nægjusemi í dag? Hvernig líta ólíkar kynslóðir á nægjusemi? Getur nægjusemi stuðlað að aukinni hamingju? \nÞað eru þau Guðmundur Ármannsson\, bóndi á Vaði\, Guðrún Schmidt hjá Landvernd\, og Glúmur Björnsson\, jarðfræðingur sem munu ræða þessar hugleiðingar á kynslóðaspjallinu. Áheyrendur  býðst síðan að taka virkan þátt í spjallinu með spurningum og eigin skoðunum og upplifunum. \nViðburðurinn er hluti af hvatningarátaki Landverndar og Grænfánaverkefnis undir heitinu Nægjusamur nóvember. Markmiðið er að upphefja nægjusemi sem jákvætt skref fyrir okkur sem einstaklinga og samfélag til þess að stuðla að góðu og heilbrigðu lífi og minnka um leið vistsporið okkar. Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins og áhersla á nægjusemi er mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað. \nTökum virkan þátt í að endurstilla neyslumenningu okkar\, náttúrunni og okkur til bóta. Við hlökkum til að sjá sem flest!\nNánari upplýsingar um átakið má finna hér.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/kynslod-eftir-kynslod-spjall-um-naegjusemi/
LOCATION:Tehusið\, Kaupvangur 17\, Egilsstaðir\, 700\, Iceland
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/10/Kynslodaspjall-Vefur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241123T140000
DTEND;TZID=UTC:20241123T160000
DTSTAMP:20260411T185746
CREATED:20241115T111530Z
LAST-MODIFIED:20241121T140743Z
UID:45445-1732370400-1732377600@landvernd.is
SUMMARY:Hvert stefna flokkarnir í umhverfismálum?
DESCRIPTION:Landvernd\, Ungir umhverfissinnar\, auk fleiri náttúruverndarsamtaka\, bjóða formönnum flokkanna til sín að ræða stefnur flokka í umhverfis- og loftslagsmálum. \nVerndun loftslags og náttúru eru mikilvægustu málefni samtímans\, við eigum allt okkar undir heilbrigðum hringrásarkerfum jarðarinnar. Loftslagsbreytingar og hnignun vistkerfa hafa þegar mikil áhrif á líf okkar allra! \nFulltrúar flokkanna taka þátt í pallborði og ræða stefnur sínar og Ungir Umhverfissinnar mæta með einkunnagjöf Sólarinnar\, þar sem gefin eru stig fyrir umhverfis- og loftslagsmál í stefnum allra stjórnmálaflokka. Stigagjöfin sýnir styrkleika og veikleika og stöðu flokkanna. \n📍 Fundurinn fer fram laugardaginn 23. nóvember\, kl. 14:00 í sal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8. Fundinum verður streymt. \nÁtta flokkar hafa staðfest fulltrúa fyrir sína hönd:\n– Sjálfstæðisflokkur: Guðlaugur Þór Þórðarson\n– Vinstri græn: Svandís Svavarsdóttir\n– Viðreisn: Aðalsteinn Leifsson\n– Píratar: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir\n– Sósíalistaflokkurinn: Sanna Magdalena Mörtudóttir\n– Framsókn: Halla Hrund Logadóttir\n– Miðflokkurinn: Bergþór Ólason\n– Samfylkingin: Þórunn Sveinbjarnardóttir\n– Lýðræðisflokkurinn: Arnar Þór Jónsson \n/// \nDagskrá fundar: \nLjóti kór\, söngur. \nKynning\, Guðmundur Steingrímsson\, formaður Landverndar stýrir. \nPallborð með frambjóðendum. Með umræðustjórn fara Stefán Jón Hafstein og Björg Eva Erlendsdóttir. \nSólin. Snorri Hallgrímsson\, forseti Ungra umhverfissinna\, afhendir flokkunum Sólarstig.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/hvert-stefna-flokkarnir-i-umhverfismalum/
LOCATION:Islensk Erfðagreining\, Sturlugata 8\, Reykjavík\, 102
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/11/fundur_VEFcover.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241128T200000
DTEND;TZID=UTC:20241128T210000
DTSTAMP:20260411T185746
CREATED:20241029T132222Z
LAST-MODIFIED:20241114T140146Z
UID:45227-1732824000-1732827600@landvernd.is
SUMMARY:Er tenging á milli nægjusemi og núvitundar?
DESCRIPTION:Þuríður Helga Kristjánsdóttir núvitundarkennari fjallar um tengslin milli nægjusemi og núvitundar og hvernig einfaldar æfingar geta dregið úr efnishyggju og neysluáráttu\, sem því miður eru áberandi í samfélaginu. Áráttan á ytra verðmætamat\, eins og það að eignast stöðugt meira\, hefur verulegar afleiðingar – ekki aðeins á náttúruna\, heldur einnig á andlega líðan okkar. \nÞuríður mun fjalla um og kenna æfingar sem styrkja gildi á borð við þakklæti\, samkennd og nægjusemi og hvernig þessir þættir hafa jákvæð áhrif á líðan. \nFundurinn fer fram á Zoom: https://us02web.zoom.us/j/87873519462 \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/er-tenging-a-milli-naegjusemi-og-nuvitundar/
LOCATION:Fjarfundur á Zoom
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/10/thuridur_naegjuseminuvitund-1.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR