BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Landvernd
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260122T180000
DTEND;TZID=UTC:20260122T200000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20260112T150824Z
LAST-MODIFIED:20260112T150824Z
UID:48408-1769104800-1769112000@landvernd.is
SUMMARY:Nýársfögnuður
DESCRIPTION:Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir að vera mikilvægur hlekkur í náttúruverndarbaráttu á Íslandi. \nVilt þú fagna nýju ári með okkur? \nViðburðurinn er ekki af verri endanum þar sem hann verður haldinn í Flyover-Iceland klukkan 18:00 fimmtudaginn\, 22. janúar. Þar verða léttar veitingar\, ljúfar stundir\, notalegt náttúruspjall og flugferðir yfir okkar dýrmætu fljót og fjöll. \nÞetta er fullkomið tækifæri til að styrkja tengsl og skemmta sér með fólki sem er annt um náttúru okkar og umhverfi. \nTil að tryggja þína þátttöku bendum við á að skráning er hafin á síðu Landverndar : https://landvernd.is/nyarsfognudur-landverndar-2026/ \nÞetta er fyrsta félagakvöld ársins og eru nýir félagar velkomnir en þú getur skráð þig sem félagi hér \n  \nHlökkum til að sjá þig.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/nyarsfognudur/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2026/01/3.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20260122T140000
DTEND;TZID=UTC:20260122T170000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20260114T114120Z
LAST-MODIFIED:20260114T114120Z
UID:48422-1769090400-1769101200@landvernd.is
SUMMARY:Tengjumst náttúrunni og aukum útikennslu
DESCRIPTION:Komdu og taktu þátt í opnum fræðslu og umræðufundi um útikennslu í loftslags- og umhverfisfræðslu!\nÁ fundinum deilum við reynslu\, hugmyndum og innblæstri úr starfi á sviði loftslags- og umhverfisfræðslu\, með sérstaka áherslu á útikennslu og tengsl við náttúruna.\nHvað hefur reynst vel? Hvar liggja tækifærin? og hvernig við getum betur virkjað útivist\, náttúruást og upplifun í fræðslu um umhverfis- og loftslagsmál?\n\nFundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á fræðslu\, útinámi\, náttúru og sjálfbærni!\n\nStaðfest erindi:\nGrænfáninn – Hvað hefur reynst vel hjá Grænfánaskólum? Nokkur útkennsluverkefni verða kynnt úti við.Sigurlaug Arnardóttir og Ósk Kristinsdóttir kennarar og sérfræðingar hjá menntateymi Landverndar.\nÞjórsárskóli – Útikennsla í uppsveitunum.Um reynslu Guðmundar af útikennslu í Þjórsárskóla\, Bláskógaskóla Laugarvatni og Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni.Guðmundur Finnbogason skólastjóri Þjórsárskóla\nElliðaárstöð – Náttúrutúlkun og sögutækniMargrét Hugadóttir kennari og vísindamiðlari í Elliðaárstöð\nMÚÚ – Reynslusögur og innsýn í starfMiðstöð útivistar og útináms Reykjavíkurborgar.Stína Bang verkefnastjóri hjá MÚÚ\nNáttúra Reykjavíkur – Kynning á vefnum Náttúra Reykjavíkur\, Sólrún Harðardóttir námsefnishöfundur og kennari\nSjálandsskóli – Útinám\, grunnur að ábyrgð á náttúrunni. Hrafnhildur\, kennari við Sjálandsskóla\, deilir reynslu sinni af útinámi í daglegu skólastarfi og sýnir hvernig reglubundin og markviss dvöl í náttúrunni byggir upp tengsl\, náttúruást og ábyrgð nemenda gagnvart umhverfinu.Hrafnhildur Sigurðardóttir kennari og handhafi íslensku menntaverðlaunanna 2024\n\nSkráning fer fram hér:https://forms.office.com/e/Ux976V6Yd5 \nSýna minna
URL:https://landvernd.is/vidburdur/tengjumst-natturunni-og-aukum-utikennslu/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2020/06/krakkar-uti.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251213T130000
DTEND;TZID=UTC:20251218T160000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20251204T144345Z
LAST-MODIFIED:20251204T144654Z
UID:48335-1765630800-1766073600@landvernd.is
SUMMARY:Aðventuganga og jólatré í Alviðru
DESCRIPTION:Aðventan! Við undirbúum hátíð ljóssins. Alviðra er vestan við brúna yfir Sogið við Þrastarlund. Þar fögnum við aðventunni með göngu út í vetrarríkið og svo með söng\, jólasögu og piparkökum í hlýjunni í gamla bænum. Yndisleg jólastemming á undurfögrum stað undir Ingólfsfjalli við Biskupstungubraut um 10 km. norðan við Selfoss. \nAlviðra er friðland\, náttúruskóli og útvistarparadís. Á Alviðrujörðinni eru víða sjálfsprottin tré sem eiga framtíð sem glæsileg jólatré. Við leitum þeirra í göngunni\, fellum og þátttakendur taka þau svo með heim til sín\, gegn vægu gjaldi. \nMæting við gamla Alviðrubæinn kl. 13:00 laugardaginn 13. desember. \nEftir göngu\, sem verður um 2 km löng\, verður boðið upp á heitt að drekka\, piparkökur\, jólasögu og söng í gamla bæjarhúsinu. Ef við komust í stuð göngum við í kringum! Það gæti verið að jólasveinn kæmi ofan af Ingólfsfjalli til að heilsa upp á börnin.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/alvidruadventa/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2023/12/Umhverfisvaenir_jolasveinar_landvernd_vefur.jpg
ORGANIZER;CN="alvi%C3%B0ra":MAILTO:s@sigurdurarni.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251211T170000
DTEND;TZID=UTC:20251211T180000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20251126T165526Z
LAST-MODIFIED:20251126T165609Z
UID:48325-1765472400-1765476000@landvernd.is
SUMMARY:Náttúrubókajól
DESCRIPTION:Við Íslendingar erum svo heppin með alla þá frábæru rithöfunda sem við eigum og þér er boðið á bókaupplestur af bestu gerð!!!\nVið fáum náttúruvininn og stórskáldið Andra Snæ Magnason til þess að ræða við okkur. Hann hefur lengi talað opinberlega um umhverfismál af hreinustu snilld og gaf nýverið út nýju bókina “Jötunsteinn”.\nEinnig fáum við þann heiður að hlýða á Nínu Ólafsdóttur en hún gaf út sína fyrstu bók í ár sem hefur slegið rækilega í gegn. Bókin heitir “Þú sem ert á jörðu” og fjallar um einstakling sem ferðast um hin ýmsu vistkerfi.\nVið erum svo ógurlega spennt fyrir því að hitta á þetta frábæra fólk og bjóðum ykkur að koma með!\nNotaleg lestrarstund í Húsin Máls og menningar á Laugarveginum frá klukkan 17-18. Ekki láta þig vanta 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/natturubokajol/
LOCATION:hús máls og menningar\, laugarvegur 18\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/11/Copy-of-Jolagjof-banner.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251130T130000
DTEND;TZID=UTC:20251130T170000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20251126T165047Z
LAST-MODIFIED:20251126T165047Z
UID:48323-1764507600-1764522000@landvernd.is
SUMMARY:Hringrásarjól
DESCRIPTION:Notað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði Norræna hússins\, Landverndar og Grænfánans!\nViðburðurinn er hluti af aðventudagskrá Norræna hússins og hvatningarátaki Landverndar og Grænfánans um Nægjusaman Nóvember.\nDagskrá:13:00-17:00 – Jólahringrásarmarkaður opinn og Textíl Barinn verður á staðnum!14:00-17.00 – Jólapeysusmiðja með Ýrúrarí\n\nJólahringrásarmarkaður:\nÞað sem nýtist þér ekki lengur gæti vel reynst fjársjóður annars – og öfugt! Komdu t.d. með bækur\, leikföng\, spil og skiptu fyrir eitthvað annað. Tilvalið tækifæri til þess að finna umhverfisvænar jólagjafir sem þú getur sett undir tréð með góðri samvisku.\nVið biðjum þátttakendur vinsamlegast aðeins að koma með hluti sem eru í góðu og nothæfu ástandi.\nSkiptimarkaðsflokkarnir eru:• Leikföng• Spariföt og prjónuð föt• Jólaskraut/jólamunir• Bækur og spil• Hlutir fyrir heimilið\n\nJólapeysu smiðja með Ýrúrarí:\nFjölskylduvæn smiðja þar sem peysur öðlast nýtt útlit í jólaþema fyrir desember.\nSmiðjan byggir á skapandi fataviðgerðar smiðjum textílhönnuðarins Ýrúrarí\, þar sem föt öðlast nýtt líf og útlit með mjög einföldum og aðgengilegum aðferðum.Þátttakendur koma sjálfir með peysu\, eða prjónaða flík\, sem þau vilja breyta og ef einhverjar sérstaklega jólalegar hugmyndir hafa vaknað fyrir smiðju\, eins og t.d að nota litlar jólaseríur eða úrelt jólaksraut heima úr geymslu\, þá er um að gera að taka slíkt með!\nÍ smiðjunni verður í boði ýmis efniviður og verkfæri sem hægt er að vinna með í einföldum og skrautlegum textíl aðferðum sem henta algjörum byrjendum sem og lengra komnum. Einnig verður í boði efniviður og lausnir til að taka þátt í smiðjunni án þess að koma með peysu eða flík\, enda ýmislegt sem hægt er að útbúa til að festa á flíkur tímabundið bara fyrir jólin.\nÆtlast er til að börn yngri en 12 ára komi í fylgd fullorðins.\n\nTextílbarinn:\nTextíl Barinn er lítið sprotafyrirtæki sem er með það að markmiði að endurnýta textíl og finna leiðir til að hanna vörur og koma aftur inn í hringrásarhagkerfið. Markmið þeirra er að auka vitund um endurvinnslu og endurnýtingu á textíl og þannig stuðla að ábyrgri neyslu\, skapandi lausnum og félagslegri þátttöku. Textílbarinn er með vinnustofu og litla verslun á Faxatorgi\, Faxafeni 10.\n\nVið hlökkum til að sjá ykkur og bendum einnig á að Plantan verður með sérstakan jólamatseðil og jóladrykki í boði.\nAðgengi að Elissu sal og andyri er gott\, lágur þröskuldur er inn í Elissu sal. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð.Nánar um aðgengismál má lesa með því að smella hér.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/hringrasarjol/
LOCATION:Norræna husið
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2023/11/hringrasarjol-landvernd.is_.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251113T140000
DTEND;TZID=UTC:20251113T180000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20251111T171650Z
LAST-MODIFIED:20251112T104603Z
UID:48185-1763042400-1763056800@landvernd.is
SUMMARY:Erindi á fundi fólksins
DESCRIPTION:Komdu á Fund Fólksins sem haldinn verður í Hörpu fimmtudaginn 13 nóvember. Leiðarljós Fundar fólksins er að efla lýðræði og samfélagsþátttöku með því að efna til samtals milli frjálsra félagasamtaka\, stjórnmálafólks og almennings. \nÞetta er stærsti viðburður ársins sem Almannaheill – Samtök þriðja geirans standa fyrir Vegleg dagskrá er í Kaldalóni kl.14-18. \n\n\nLandvernd verður með erindi á fundinum þar sem Ragnhildur Katla Jónsdóttir spjallar við salinn um það hvernig við getum fengið fleiri inn í náttúruverndina.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/erindi-a-fundi-folksins/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/11/Landmannalaugar-nov-22-e1764935523287.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251112T190000
DTEND;TZID=UTC:20251112T213000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20251029T161406Z
LAST-MODIFIED:20251030T135340Z
UID:47992-1762974000-1762983000@landvernd.is
SUMMARY:Bíósýning - The cost of growth
DESCRIPTION:Fyrir hvern er hagvöxturinn og á kostnað hvers? Hvað er raunverulegur kostnaður mannkyns og plánetunnar fyrir endalausan gróða hagkerfisins? Hvað ef loftslagsváin er í raun og veru vegna misnotkunar til gróða\, misréttis og valda? Hvernig myndi samfélag byggt á réttlæti\, jafnrétti og velferð umfram gróða líta út? \nÞetta og margt fleira kemur fram í nýrri heimildarmynd The cost of Growth sem Landvernd mun sýna í Bíó Paradís 12. nóvember klukkan 19:00. \nEkki missa af þessu! \nMiðasala er hér á vefsíðunni á MidiX.is
URL:https://landvernd.is/vidburdur/biosyning-the-cost-of-growth/
LOCATION:Bio paradís
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/10/image-400-2b28edcbe5a4311ac74a6f0d3b0f1bd0.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251102T130000
DTEND;TZID=UTC:20251102T160000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20251025T143204Z
LAST-MODIFIED:20251027T100924Z
UID:47987-1762088400-1762099200@landvernd.is
SUMMARY:Upptaktur að COP
DESCRIPTION:Þann 2. nóvember næstkomandi stendur Landvernd fyrir loftslagsvinnustofum þar sem línurnar eru lagðar fyrir COP30 sem verður í Brasilíu 10-21 nóvember. Þorgerður María\, formaður Landverndar og Laura Sólveig\, forseti Ungra umhverfissinna munu sækja ráðstefnuna. Við bjóðum félögum náttúru og umhverfisverndarsamtaka að mæta á vinnustofur til þess að útbúa veganesti fyrir fulltrúana á COP.\n\nVinnustofurnar verða haldnar í húsakynnum Dósaverksmiðjunnar – tungumálaskóla sem eru til húsa í Skeifunni 11C.\n\nVinnustofurnar verða fjórar en þátttakendur velja sér tvær og taka svo þátt í samantekt frá öllum fjórum.\n\nMæting 13:00 kaffi og kruðerí. Frjálst flæði í kaffi allan tímann.\n\n13:20 fyrsta vinnulota\n\n14:00 Önnur vinnulota\, Þátttakendur velja sér nýja vinnustofu.\n\n14:40 Samantekt úr hverri vinnustofu\n\n15:00 umræður\n\n15:30 Fundi slitið\n\nStjórn vinnustofanna eru ekki af verri endanum:\n\nKamma og Vala Arnardóttir \nHellnasker \nÞorgerður \nUngir umhverfissinnar \n \nGeta Íslendingar verið stoltir af sínu framlagi til Parísarsamningsins? Hvernig erum við í samanburði við önnur lönd. Þessar vinnustofur eru fullkominn staður fyrir þessar spurningar og fleiri!\n\nKomið og ræðið við fulltrúa okkar á leiðinni á þessa risastóru ráðstefnu í Bélem.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/upptaktur-ad-cop/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/12/COPkynning_vefur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20251101
DTEND;VALUE=DATE:20251102
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20251022T140115Z
LAST-MODIFIED:20251029T132325Z
UID:47952-1761955200-1762041599@landvernd.is
SUMMARY:Fjölskylduganga í Elliðaárdalnum
DESCRIPTION:Aflýst vegna Veðurs \n  \nHvatningarátak Landverndar og Grænfánans Nægjusamur nóvember vekur athygli á jákvæðum áhrifum nægjusemi á náttúru\, samfélag og eigið líf. Nægjusamur einstaklingur finnur að styrkur og hamingja kemur innan frá en ekki frá hlutum. Nægjusemi er eftirsóknarverð og stuðlar að frelsi\, meiri tíma og orku\, þakklæti\, hamingju og tilfinningu um að eiga nóg.  \nÍ tilefni af Nægjusömum nóvember bjóða Landvernd og Grænfáninn í skemmtilega samverustund\, Laugardaginn 1. nóvember í Elliðaárdal. \nVerjum tíma saman í náttúrunni\, förum í leiki leysum verkefni og njótum samverunnar \nMæting er við Toppstöðina í Elliðaárdal kl. 14:00.  
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fjolskylduganga-i-ellidaardalnum/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2023/11/Vefurinn-myndir-Vigdís-1-e1698928521811.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251018T170000
DTEND;TZID=UTC:20251018T190000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250930T164648Z
LAST-MODIFIED:20250930T164648Z
UID:47881-1760806800-1760814000@landvernd.is
SUMMARY:Sýning Bóndinn og verksmiðjan
DESCRIPTION:Bóndinn og verksmiðjan. Sýnd í Bíó Paradís klukkan 17\, 18. október\, 2025 \nBóndinn og verksmiðjan er átakanleg saga af baráttu einstaklings gegn stórfyrirtæki og afskiptaleysi yfirvalda. Með áhorfendaverðlaununum á Skjaldborg fær sagan þann hljómgrunn sem hún á skilið – sem persónuleg frásögn\, umhverfisádeila og áminningu um ábyrgð stjórnvalda að þeim beri að tryggja að stóriðjan valdi ekki skaða í nær og fjærumhverfi sínu. \nMyndin verður sýnd í samstarfi við Landvernd og önnur náttúrverndarsamtök.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/syning-bondinn-og-verksmidjan/
LOCATION:Bio paradís
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/09/bondinn-og-verksmidjan-e1759250799431.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251018T130000
DTEND;TZID=UTC:20251018T160000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20251008T142608Z
LAST-MODIFIED:20251017T185519Z
UID:47892-1760792400-1760803200@landvernd.is
SUMMARY:Rammaáætlun í ljósi reynslunnar
DESCRIPTION:Endilega fylgist með streyminu hér. \n\nNú hafa hagsmunasamtök\, náttúruverndarsinnar\, rannsakendur og fagaðilar rammaáætlunar lýst yfir áhyggjum tengdum því að ítrekað hefur verið farið gegn ráðleggingum Rammaáætlunar. Þá skjóta upp kollinum spurningar á við: Er rammaáætlun að þjóna tilgangi sínum? Eru niðurstöðurnar svona auðhunsaðar? Hvað þarf að bæta? \nÍ náttúru Íslands er margs konar auð að finna. Ásókn í þessar auðlindir af hálfu ýmissa hópa er mikil og vaxandi. Oft skarast hagsmunir þessara hópa og hefur það leitt til ágreinings um nýtingu landsins. Rammaáætlun er verkfæri til að greiða úr þessum ágreiningi\, og jafnframt samheiti yfir ákveðin lög\, ferli og aðferðafræði sem hafa þróast samstíga gegnum tíðina til þess að leysa þetta verkefni á sem farsælastan hátt. \nFyrir 3 árum skoraði Landvernd á alþingismenn til þess að bregðast við göllum á rammaáætlun. Þar var sagt að rammaáætlun þjóni ekki tilgangi sínum ef framkvæmdaraðilar komast upp með að sneiða framhjá henni. \nLaugardaginn 18. október\, klukkan 13:00\, stendur Landvernd fyrir viðburðinum “Rammaáætlun í ljósi reynslunnar” ásamt fleiri náttúruverndarasamtökum. Fundurinn verður haldinn í Veröld húsi Vigdísar á Háskólasvæðinu. Þar verða fræðsluerindi\, pallborð og mikilvæg málefni á dagskrá. \nGestir eru beðnir um að skrá sig hér: Please enable JavaScript in your browser to complete this form.Nafntekur þú vin með?		\n			Nafn með? þú\n			\n		\n		TölvupóstfangSubmit   \nHér eru drög að dagskrá fundarins \nStaður: Veröld Vigdísar og streymi \nStund: Laugardagur 18. Október frá klukkan 13.00 – 16.00.  \n 13.00 – 13.05 SETNING \nKYNNING.  formenn verkefnisstjórna rammaáætlunar \n13.05 – 13.15.       Almennt um aðferðafræði rammaáætlunar. \nErindi um Faghóp 1 : 13.15 – 13.20 \nErindi um Þjórsárver: 13.20 – 13.35 \nErindi um Hamarsvirkjun: 13.35 – 13.50 \nErindi um Héraðsvötn: 13.50 – 14.05 \nErindi um Garpsdal: 14.05 – 14.20.  \nKaffi: 14.20 – 14.40   \nPALLBORÐ  : 14.40 – 15.25 \nUMRÆÐUR.  15.25 – 15.45. \nÁLYKTUN FUNDAR borin upp til samþykktar og fundi slitið.   \n  \nEinnig viljum við benda á að myndin Bóndinn og verksmiðjan verður sýnd í Bíó Paradís klukkan 17:00 að fundi loknum og hvetjum við áhugsöm að kíkja á hana. \n  \n  \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/rammaaaetlun-i-ljosi-reynslunnar/
LOCATION:Haskoli íslands\, Sæmundargata\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2023/03/islenska-leidin-heimsmet-i-lelegri-frammistodu-landvernd-vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251004T120000
DTEND;TZID=UTC:20251004T160000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250926T142733Z
LAST-MODIFIED:20250926T142733Z
UID:47873-1759579200-1759593600@landvernd.is
SUMMARY:Skipulagsdagur framtíðar Alviðru
DESCRIPTION:Vinir Alviðru\, stjórn og starfsmenn Landverndar –  og aðrir velunnarrar. \nStjórn Alviðru boðar til fundar að Alviðru laugardaginn 4. október til að fá fram sjónarmið og hugmyndir um hvert á að stefna. \nGóðan dag \nVið opnum húsið með því að bjóða upp á hádegissúpu kl. 12:00. \nÍ kjölfarið verður fundur með eftirfarandi dagskrá: \n13:00 Staðan\, valkostir og möguleikar (Tryggvi Felixson og Auður I Ottesen) \n13:30 Hópavinna – þrír hópar: \n\nÞróun útisvæða\nÞróun aðstöðu og húsakosts\nFræðsla- og upplifun – nýting\n\n\n14:30  Niðurstaða hópavinnu og samræður \n16:00  Lok fundar\, kaffi og boðið í gönguferð \n\nVinsamlegast tilkynnið þátttöku í netfangið tryggvifel@gmail.com
URL:https://landvernd.is/vidburdur/skipulagsdagur-framtidar-alvidru/
LOCATION:Alviðra
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/09/IMG_2022-scaled.jpg
ORGANIZER;CN="alvi%C3%B0ra":MAILTO:s@sigurdurarni.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251003T160000
DTEND;TZID=UTC:20251004T160000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250925T111551Z
LAST-MODIFIED:20251002T095432Z
UID:47863-1759507200-1759593600@landvernd.is
SUMMARY:Heiðar í Háska- Garpsdalur
DESCRIPTION:Heiðar í Háska- Garpsdalur 3.-4. Október \nNú leggjum við af stað í enn eina göngu um heiðar í háska. Núna verður hellings krem á kökunni þar sem við bjóðum áhugasömum gestum að gera þetta að tveggja daga fjöri. Í þetta sinn liggur leið okkar að Garpsdal þar sem gríðarlegar virkjanaframkvæmdir eru á teikniborðinu. \nValkvætt er að koma snemma á Laugardeginum beint í Þurranes og hitta hópinn en fyrir þau sem vilja byrja ævintýrið á föstudeginum þá höfum við dagskrána hér. \nFÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER:\nkl 16:00 safnast saman á bílaplaninu við Össur og raðað í bíla. \nEkið í Þurranes\, 2 klst akstur. Gisting í gamla húsinu og eldunaraðstaða. \nVerð fyrir gistingu: 6000 á manninn.(svefnpokapláss) \nLAUGARDAGUR 4. OKTÓBER:\nKl 10:00 að upphafsstað að loknum morgunverði. \nNú horfum við til Garpsdals. Breytingar geta orðið á áður auglýstri gönguleið í samráði við landeigendur. \nMiðað er við 2-3 klst á göngu og nestistund. \n———— \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn *Símanúmer *Netfang *Ert þú félagi í Landvernd? *JáNei en ég bæti úr því:)Þessi ganga er ein af afar skemmtilegu viðburðum sem landvernd býður sínum félögum uppá 		\n			Fullt Komutími félagi\n			\n		\n		KomutímiÉg mæti á föstudeginum og gisti í svefnpokaplássi með hópnumÉg mæti á staðinn að morgni laugardagsSkrá mig í göngu  \nEkið sem leið liggur í höfuðstaðinn að göngu lokinni. \nMunið nesti fyrir kvöldverð\, morgunverð og göngu.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/heidar-i-haska-garpsdalur/
LOCATION:Garpsdalur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/DSC_0868-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250929T170000
DTEND;TZID=UTC:20250929T183000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250923T103617Z
LAST-MODIFIED:20250923T114019Z
UID:47838-1759165200-1759170600@landvernd.is
SUMMARY:🌍 LOFTSLAGSKVÍÐI – SAMTAL SEM SKIPTIR MÁLI 🌱
DESCRIPTION:Viðburður í tilefni Guls september.\n\nFinnið þið fyrir vanmáttarkennd eða kvíða þegar þið hugsið um loftslagsmálin? Þið eruð ekki ein. \nVið lifum sannarlega á óvissutímum en með opinni umræðu og aukinni meðvitund getum við skapað rými fyrir von\, aðgerðir og innri styrk. Mánudaginn 29. september bjóðum við ykkur á viðburð þar sem við getum deilt hugsunum og hugmyndum\, hlýðum á erindi og lítum inn á við. Opið öllum \nÞessi viðburður snýst bæði um vanmátt og von. Saman höfum við áhrif. \n\nRagnhildur Katla BSc í sálfræði og upplýsingafulltrúi Landverndar leiðir umræður og æfingar. En sérstakur gestur er Sverrir Norland\, rithöfundur\, útgefandi\, hugmyndasmiður og fjölmiðlamaður. Hann hefur á síðustu árum flutt mörg hundruð fyrirlestra í skólum\, fyrirtækjum og stofnunum\, bæði út frá bókum sínum og eins um önnur efni spanna allt frá karlmennsku í samtímanum\, loftslagsbreytingum\, tækni\, sköpunargáfu\, hatursorðræðu og gervigreind \n\n📅 [29.september 🕒 [17:00] 📍 [Loft hostel] \ná viðburðinum verður samtal\, æfingar og erindi.\nErindi þetta er byggt á samnefndri bók Sverris sem kom út árið 2021\nStríð og kliður: Hvað verður um ímyndunaraflið?\n\nÞurfum við að endurhugsa samfélög okkar frá grunni? Eru það hinir gæfustu sem lifa af? Er heimurinn virkilega að farast? Búum við í tækniræði? Hvað verður um óhemjurnar?\n\n\n\n\nSverrir hefur gefið út tólf bækur\, þ.m. talið lofuð verk á borð við Klettinn (2023) og Stríð og klið (2021). Þá hefur Sverrir gefið út tónlist við eigin texta\, nú síðast breiðskífurnar Hinir gæfustu lifa af (2025) og Mér líður best illa (2024). Sverrir er með mastersgráðu í skapandi skrifum frá Middlesex University í London og BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/%f0%9f%8c%8d-loftslagskvidi-samtal-sem-skiptir-mali-%f0%9f%8c%b1/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/09/www.-Landvernd.is_.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250920T100000
DTEND;TZID=UTC:20250920T200000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250908T145537Z
LAST-MODIFIED:20250918T172401Z
UID:47680-1758362400-1758398400@landvernd.is
SUMMARY:Dagsferð að Dynk - Þjórsárferð Landverndar
DESCRIPTION:Laugardaginn 20.september 2025 10:00 🥾 🥾 \nLandvernd fer að Dynk í Þjórsá\nFossinn Dynkur í Þjórsá\, er tilkomumesti stórfoss Þjórsár sem skaðast og skerðist ef áform um Kjalölduveitu verða að veruleika. \nLandvernd býður til göngu að Dynk og ef veður leyfir kíkjum við á fleiri fossa sem óhætt er að fullyrða að komi á óvart fyrir fegurð. \nLagt verður af stað með rútu úr Árnesi klukkan 10.00 laugardaginn 20. september. \nGangan sjálf tekur frá 3 – 5 klukkustundir eftir því hvað við skoðum marga fossa. \nAkstur úr Árnesi að Kóngsási þar sem gangan hefst tekur 3 klukkustundir. \nFerðin kostar 15.000 yfir félagsmeðlimi Landverndar og 20.000 fyrir óskráða. \nNAUÐSYNLEGT ER AÐ KLÆÐA SIG VEL. VINDÞÉTT\, HLÝ FÖT\, VAÐSKÓ og NESTI.\n\nLeiðsögumenn eru af ekki af verri endanum \n* Björg Eva Erlendsdóttir\n* Sigþrúður Jónsdóttir \nAthugið að skráning í ferðina er nauðsynleg. \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn *Símanúmer *		\n			Komutími félagi þú\n			\n		\n		Netfang *Ert þú félagi í Landvernd? *JáNei en ég bæti úr því:)Þessi ganga er ein af afar skemmtilegu viðburðum sem landvernd býður sínum félögum uppá KomutímiÉg mæti á föstudeginum og gisti í svefnpokaplássi með hópnumÉg mæti á staðinn að morgni laugardagsSkrá mig í göngu
URL:https://landvernd.is/vidburdur/dagsferd-ad-dynk-thjorsarferd-landverndar/
LOCATION:Arnes\, Árnes\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/04/Dynkur_landvernd_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250914T140000
DTEND;TZID=UTC:20250914T170000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250902T133507Z
LAST-MODIFIED:20250902T133507Z
UID:47642-1757858400-1757869200@landvernd.is
SUMMARY:Alviðruhlaupið
DESCRIPTION:Ert þú hlaupagarpur? Hefur þú gaman að náttúrunni? Hefur þig alltaf langað til þess að kanna Sogið og gætir hugsað þér að komast sem lengst á sem stystum tíma?\n\nSunnudaginn 14. september kl. 14:00 verður hið árlega Alviðruhlaup í tilefni af Degi íslenskrar náttúru.\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nHlaupið verður frá bæjarhlaðinu í Alviðru\, á göngustíg á brúnni yfir Sogið og um stíga á birkivöxnu Öndverðarnesi með útsýni yfir Sogið og Hvítá. Vegalengdin er um 8 km.\n\n\n\n\n\nEftir hlaupið verður boðið upp á hressingu í Alviðru.\n\n\n\n\n\nÁhugasamir eru beðnir um að senda skilaboð á stjórnanda hlaupsins á netfangið: agusta.jonsdottir@gmail.com
URL:https://landvernd.is/vidburdur/alvidruhlaupid/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/05/Vidburdir-Alvidra-2024-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250914T140000
DTEND;TZID=UTC:20250914T160000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250828T131337Z
LAST-MODIFIED:20250828T141738Z
UID:47624-1757858400-1757865600@landvernd.is
SUMMARY:Uppskeruhátíð Alviðru
DESCRIPTION:Viljið þið gæða ykkur á gjöfum móður náttúru? Komdu að fagna degi íslenskrar náttúru  í gullfallegri náttúruperlu við land Alviðru með góðan mat og notalegan félagsskap. \nÍ tengslum við dag íslenskrar náttúru verður boðið til veislu og uppskerudags í Alviðru sunnudaginn\, 14. september\, kl. 14-17. Veisluborð verða dúkuð og boðið verður upp á grænmetissmakk úr grenndargarðinum\, kaffi og kakó. Gestir bera með sér veitingar að borðinu og njóta veislunnar saman undir stjórn Auðar I. Ottesen og Sigurðar Árna Þórðarsonar. Hið árlega Alviðruhlaup verður einnig á þessum uppskerudegi. \nAuður og Sigurður Árni taka vel á móti gestum sem hvattir eru til að leggja lítilræði til Pálínuboðsins og njóta þess að gleðjast saman í Alviðru. \n  \nVerið velkomin! \n(…með góða skapið\, snarl og/eða hlaupaskóna)
URL:https://landvernd.is/vidburdur/uppskeruhatid-alvidru/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/Alvidra-PallJokull.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250911T170000
DTEND;TZID=UTC:20250911T190000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250903T161004Z
LAST-MODIFIED:20250908T141310Z
UID:47644-1757610000-1757617200@landvernd.is
SUMMARY:Heiðar í Háska - Skoðum stærðarinnar mælingamastur.
DESCRIPTION:Nú á fimmtudaginn er haldið aftur um Heiðar í Háska og í þetta sinn skoðum við stærðarinnar mælingamastur.\n Mæting kl 17:00 á áningarstað við Nesjavallaveg en þar er mjög rúmgott stæði fyrir bíla. (smellið á slóðina eða notið hnitin  64.116705\, -21.479747 )\nLýsing \nUm er að ræða c.a. 2\,5 km mjög létta göngu sem mun taka um 2 klst.fram og til baka með stoppum og leiðsögn. Markmiðið er að skoða 120 m hátt mælingamastur sem reist hefur verið fyrir áformað vindorkuver á svæðinu.  Horft verður til þeirra áhrifa sem sjálft mastrið hefur og svo máta það við 210 metra hátt vindorkuver sem er áformað er þarna á svæðinu. Landið þarna á Mosfellsheiði er skilgreint sem þjóðlenda. \nÁ þennan viðburð í bakgarði höfuðborgarinnar geta allir mætt og líka þeir sem ekki eiga kost á að ganga. Þetta verður fróðleg kynning á málefninu en um leið gott tækifæri til að sýna samstöðu gegn því að landið leggist undir stóriðju vindorkurisanna. Áhrifin verða einnig tíunduð á áningarstað þar sem ásýnd og áhrif eru einnig umtalsverð frá mælimastri.\n\nöll velkomin\nLeiðsögn Kristín Helga Gunnarsdóttir og Andrés Skúlason Landvernd. \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/heidar-i-haska-skodum-staerdarinnar-maelingamastur/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/09/Hengill--scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250824T140000
DTEND;TZID=UTC:20250824T160000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250815T134945Z
LAST-MODIFIED:20250815T135707Z
UID:47555-1756044000-1756051200@landvernd.is
SUMMARY:Jarðfræðiganga með Formanni Landverndar
DESCRIPTION:Sunnudaginn 24. ágúst verður Jarðfræði- fræðslu ganga með Formanni Landverndar frá Alviðru um Ingólfsfjall og umhverfi. \nFræðslugangan hefst kl. 14:00 og stendur yfir í einn og hálfan tíma. Gengið verður upp í hlíðar Ingólfsfjalls og leitað ummerkja jökla og brims. Fólki er frjálst að ganga á topp Ingólfsfjalls að fræðslugöngu lokinni eða fylgja leiðsögumanni til baka að Alviðru. Boðið verður upp á kaffi og spjall í húsnæði Alviðru að göngu lokinni. Gott er að taka með sér lúpu eða stækkunargler\, áttavita\, steinabók og vatn að drekka. Gangan hentar vel fyrir börn sem fullorðna. \nÞorgerður María Þorbjarnardóttir\, jarðfræðingur og formaður Landverndar leiðir gönguna.\nUpphafsstaður er bæjarhlaðið að Alviðru.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/jardfraediganga-med-formanni-landverndar/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/DSC_0868-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250823T160000
DTEND;TZID=UTC:20250823T180000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250805T110838Z
LAST-MODIFIED:20250805T111655Z
UID:47504-1755964800-1755972000@landvernd.is
SUMMARY:Loftlagsfestival 2025
DESCRIPTION:Loftslagsfestival 2025 verður á menningarnótt 23. ágúst!\nViðburðurinn verður haldinn á Hjartatorgi í miðbænum klukkan 16:00-18:00\nÖll eru velkomin en það má búast við ræðum\, leik\, lifandi fjöri\, lifandi tónlist og fleira! \n\n\n\nClimate Festival 2025 will be held on Culture Night on August 23rd!\nEveryone is welcome to attend and you can expect speeches\, live music and more!\n\n\nSjá meira á Facebook viðburðinum
URL:https://landvernd.is/vidburdur/loftlagsfestival/
LOCATION:Hjartatorg\, Smiðjustígur 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/521289108_771062428818275_7074505991231445932_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250817T140000
DTEND;TZID=UTC:20250817T170000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250806T154351Z
LAST-MODIFIED:20250806T161341Z
UID:47512-1755439200-1755450000@landvernd.is
SUMMARY:Veiðar hjá Alviðru
DESCRIPTION:Veiðar hjá Alviðru. Hefur þú áhuga á veiðum? Hefur þú prófað það áður eða ert ennþá að dýfa tánum í þetta friðsæla en fjöruga sport? \nNú gefst tækifæri til að veiða í Soginu fyrir landi Alviðru\, sem er rómað fyrir náttúrufegurð og stórfiska. Alviðrunefnd og veiðifélagið Starir bjóða fólki með veiðiáhuga að fræðast og veiða í Soginu. Allir eru velkomnir. Veitt er á flugu. \nVeiðidagur Alviðru verður sunnudagin\, 17. ágúst\, 2025.\n  \n \n  \nMæting við Alviðrubæ kl. 14:00 á sunnudaginn  \nSagt verður frá veiðum í Soginu. Skipt verður í hópa og vísað til veiðistaða. Leiðsögumaður frá Störum ráðleggur veiðimönnum. \n  \nDagskrá lýkur um kl. 17:00. Kakó\, kaffi og kleinur verða í boði í Alviðru. \n  \nGerið svo vel að tilkynna nöfn veiðimanna í tölvupósti: s@sigurdurarni.is \nÞau sem fyrst skrá þátttöku ganga fyrir ef mikill fjöldi vill veiða. \nHlökkum til að sjá ykkur!
URL:https://landvernd.is/vidburdur/veidar-hja-alvidru/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/Alvidruveidi.jpg
ORGANIZER;CN="alvi%C3%B0ra":MAILTO:s@sigurdurarni.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250717T080000
DTEND;TZID=UTC:20250717T170000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250625T145848Z
LAST-MODIFIED:20250625T145848Z
UID:47383-1752739200-1752771600@landvernd.is
SUMMARY:Anda og þakka fyrir náttúru íslands
DESCRIPTION:Athugið þetta er ekki viðburður heldur ósk um sameiginlega samfélagshugsun. \n  \ní Dag skulum við anda og þakka fyrir fallegu náttúru okkar. \n \nHvar sem við erum stödd á Íslandi. Finnum grasið undir tánum og vindinn í eyrunum. Ef við erum heppin þá finnum við kannski fyrir sólargeislunum leika við andlitið \n  \nVerndum náttúruna okkar
URL:https://landvernd.is/vidburdur/anda-og-thakka-fyrir-natturu-islands/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Afrit-af-Sortulyng-Large.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250702T183000
DTEND;TZID=UTC:20250702T183000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250625T142459Z
LAST-MODIFIED:20250627T120056Z
UID:47381-1751481000-1751481000@landvernd.is
SUMMARY:Fuglafjör í Vatnsmýrinni
DESCRIPTION:Landvernd ætlar að halda skemmtilegt fuglafjör í Vatnsmýrinni fyrir unga sem aldna þar sem við kynnumst náttúruperlunni í nálægð\n\nMiðvikudaginn 2. júlí ætlum við að halda stórskemmtilegan viðburð fyrir öll sem eru áhugasöm um Fugla.\n\n\nÞetta er einstaklega aðgengilegur viðburður fyrir unga sem aldna á höfuðborgarsvæðinu því við ætlum okkur að hittast í Vatsmýrinni.Þar má rölta um og draga andann í miðborgar náttúruperlu.Fuglafylgirinn Hlynur Steinsson er þekktur fyrir að fræða fólk á skemmtilegan hátt um fiðraðar verur. Fyrst fáum við að sjá fjaðrir og fleira úr mikilli nálægð en færum okkur svo út með sjónaukana.Hver veit hvort við förum í einhverja leiki\nVerið öll velkomin í fuglafjör í Vatnsmýrinni\nMeð kíki eða án\, stór eða smá\, fuglaelskendur eða fólk sem nýtur náttúrunnar. \nÞó tæknilega séð gæti þetta verið á kvöldmatartíma þá er vissulega hægt að borða fyrir eða eftir eða bara koma með nesti og nasla með fuglunum. \nÞetta verður fljúgandi frjálst flæði.\n\nEndilega skoðið facebook viðburðinn og setjið Going\nHlökkum til að sjá ykkur
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fuglafjor-i-vatnsmyrinni/
LOCATION:Vatnsmyrin\, Sæmundargata\, Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2020/06/loftslagsvernd-fuglar-sky-900.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250628T130000
DTEND;TZID=UTC:20250628T150000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250613T100656Z
LAST-MODIFIED:20250626T141110Z
UID:47257-1751115600-1751122800@landvernd.is
SUMMARY:Upp á Ingólfsfjall
DESCRIPTION:Ganga upp á Ingólfsfjall og notalegheit með kakó og kleinum. \nSíðbúin Jónsmessuganga að Inghól og norður eftir fjallinu\, niður að Torfastöðum og til suðurs meðfram fjallshlíðinni að Alviðrubænum. \nIngólfsfjall\ner 551 m hátt virðulegt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu\, í vestur\, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi og að Torfastöðu\, sem er nokkuð brattari niðurleið. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt. \nIngólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann i vetursetu undir Ingólfsfjalli á leið til Reykjavíkur\, að því  er segir í Landnámu\, og flutti frá Reykjavík gamall maður aftur að fjallinu og lauk þar ævidögum sínum \nGengið verður frá bænum Alviðru\nHér má finna saðsetningu Alviðru á korti \neftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól\, þar sem Ingólfur landsnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Frá Inghól verður gengið norður eftir Ingólfsfjalli og komið niður á móts við Torfastaði. Það er nokkuð brött leið og því gott að hafa göngustaf með til að styðjast við. Þegar niður er komið er gengið til suðurs meðfram fjallinu að Alviðrubænum. Ætla má að gangan taki 4 til 6 klukkustundir. \nMunið göngustaf\, haldgóða skó\, hlífðarföt og nestisbita. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson fv. formaður Landverndar sem oft hefur gengið á fjallið. \nBoðið verður upp á kakó og kleinur í bænum að aflokinni göngu. \nÞeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða\, fallega\, vel merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst. \nAlviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðarnes II er eign Árnesinga og er einnig friðland með merktum gönguleiðum og opið almenningi. \nÍ sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir öðrum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins  er hér á síðu Landverndar \nviðburð má finna hér á facebooksíðu Alviðru
URL:https://landvernd.is/vidburdur/upp-a-ingolfsfjall/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/14-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250619T180000
DTEND;TZID=UTC:20250619T200000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250612T131442Z
LAST-MODIFIED:20250616T104404Z
UID:47224-1750356000-1750363200@landvernd.is
SUMMARY:Sköflungsganga Landverndar - Heiðar í háska - Mosfellsheiði
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 19. júní klukkan 18:00 🥾 \n  \n Leiðarlýsing á upphafsreit gönguleiðar:  Beygt er út af Suðurlandsvegi og Nesjavallavegur ekinn meðfram rörinu. Þrátt fyrir að við gerum ráð fyrir að flestir vilji fara á eigin bílum\, væri gott að sameinast í bíla hjá Össuri á Grjóthálsi en þaðan verður farið í síðasta lagi kl.17:15.  \n\nStaðsetning: Mæting og upphaf göngu er kl 18:00 á bílastæði sem er merkt inn á eftirfarandi hlekk \nsvo rata megi auðveldlega:  https://maps.app.goo.gl/iNgXsaXXVV6nV6Ls9 \n  \nLýsing gönguferðar:  Lengd gönguleiðar er ca. 5 km fram og til baka. Gert er ráð fyrir að gangan taki allt að þrjár klukkustundir með nestisstund. Mikilvægt er til öryggis að taka með skjólgóðan fatnað og góða skó en annars er leiðin greiðfær og við flestra hæfi og auðvitað gerum við ráð fyrir góðu gönguveðri og stórkostlegu útsýni. ☺\nAf Sköflungi er góð sýn yfir Mosfellsheiði\, einnig til Þingvalla og síðast en ekki síst yfir áhrifasvæði fyrirhugaðra framkvæmda við vindorkuver.  \n  \nÞetta er þriðja gangan undir merkjunum “Heiðar í háska” og voru hinar göngurnar fjölmennar og mæltust sérstaklega vel fyrir.  Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir og athugið að gangan er ekki aðeins fyrir félaga í Landvernd. Við hvetjum hins vegar auðvitað þátttakendur til að ganga til liðs við Landvernd auk þess að taka þátt í samstöðugöngu gegn þeim áformum sem uppi eru. \n  \nÁform eru uppi um þrjú vindorkuver á milli Lyklafells og Sköflungs á Mosfellsheiði. \nHæð vindorku mannvirkja á svæðinu eru áætluð frá 180 – 210 metra á hæð. Vindorkuverum á Mosfellsheiði er ætlað að rísa í flasið á útivistarlandi og náttúruparadís höfuðborgarbúa. \nMikil andstaða er við þessi áform enda hefðu fyrirhuguð iðnaðarver áhrif á náttúru\, lífríki og upplifun og útivist á gríðarlega stóru svæði. Auk beinna samfélagslegra áhrifa hafa atvinnuflugmenn og áhugafólk um flug lýst yfir sérstökum áhyggjum af staðsetningu vindorkuvera á þessu svæði. \nStöndum saman og sýnum samhug í verki til varnar einstöku útivistarsvæði og heiðarlandi við rætur Hengils í bakgarði stór höfuðborgarsvæðisins og Þingvallasveitar.  \n  \nVerið velkomin í meðmælagöngu með heiðarlandi í hættu. \nLeiðsögumenn: Páll Ásgeir Ásgeirsson\, Rósa Sigrún Jónsdóttir\, \nAndrés Skúlason og Kristín Helga Gunnarsdóttir.  \n  \nVinsamlega athugið að skráning í ferðina er æskileg og hægt að gera það á facebook viðburðinum hér: https://fb.me/e/4KlX8DBub  \n  \nNánari upplýsingar veita: \nKristín Helga Gunnarsdóttir\, stjórnarfulltrúi í Landvernd – 896 9771. \nAndrés Skúlason verkefnastjóri Landvernd – 8995899.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/skoflungsganga-landverndar-heidar-i-haska-mosfellsheidi/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Skoflungur-.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250615T090000
DTEND;TZID=UTC:20250615T150000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250613T094129Z
LAST-MODIFIED:20250613T094203Z
UID:47252-1749978000-1749999600@landvernd.is
SUMMARY:Árleg lúpínuhringferð um Reykjanesfólkvang
DESCRIPTION:Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd (Sjá) eru deild í Landvernd með það helsta markmið að gefa fólki tækifæri til að vinna að náttúruvernd.\nÞetta er góður félagsskapur sem nýtir krafta sína í skemmtilegum verkefnum í þágu náttúruverndar.\nÍ áratug höfum við vaktað nokkra staði í Reykjanesfólkvangi\, takmarkað útbreiðslu lúpínu til svæða sem eru að mestu lúpínulaus. Það gerum við árlega með því að hemja þar útbreiðslu lúpínu og höfum einnig stöðvað jarðvegseyðingu með grasfræi og áburði\n\nUmsjón: Þorvaldur Örn (s.895 6841) og Örn Þorvaldsson.\n\nUm er að ræða göngu á fallegri leið með leiðsögn og skemmtilegri lúpínuvinnu. \n\n\nMæting við N1 í Hafnarfirði kl. 9 eða í Seltún í Krýsuvík kl. 10.\n\nÖll hjartanlega velkomin! Bara mæta á staðinn. Fullkomið verk fyrir vinnufúsar hendur og hugarfar náttúruverndar
URL:https://landvernd.is/vidburdur/arleg-lupinuhringferd-um-reykjanesfolkvang/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/452254329_10231274801526911_2558524771965106453_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250614T140000
DTEND;TZID=UTC:20250614T160000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250603T113836Z
LAST-MODIFIED:20250603T113836Z
UID:47203-1749909600-1749916800@landvernd.is
SUMMARY:Lífið í og við Sogið 
DESCRIPTION:Laugardaginn 14. júní 2025 kl. 14 – 16 munu náttúrufræðingarnir Einar Þorleifsson\, Rannveig Thoroddsen og Skúli Skúlason\, leiða létta fræðslugöngu um Þrastaskóg og Sogið. Litið verður eftir foldarskarti í skógarbotni og lagt við hlustir eftir fuglasöng á grein eða kvaki á Soginu\, um leið og fræðst verður um lífríki Sogsins\, tengslum þess við Þingvallavatn\, með áherslu á fiska\, og dregin fram sérstaða þess og verðmæti og sett í alþjóðlegt samhengi. \nDagskráin hefst á hlaði Alviðru\, sem er fræðslusetur Landverndar. Síðan verður haldið að Þrastalundi og gengið um skóginn og meðfram Soginu. Fræðslugangan er ætluð fólki á öllum aldri og börnin eru svo sannarlega velkomin. Takið með viðeigandi hlífðarfatnað og kíkir gæti komið að notum. Við lok göngu verða þjóðlegar veitingar í boði í Alviðrubænum.  \nSogið\, Alviðrujörðin og Þrastaskógur er ævintýraheimur. Verið velkomin.  \nAlviðrunefnd Landverndar
URL:https://landvernd.is/vidburdur/lifid-i-og-vid-sogid/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Blaberjakoppar-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250607T140000
DTEND;TZID=UTC:20250607T170000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250602T180231Z
LAST-MODIFIED:20250602T180231Z
UID:47199-1749304800-1749315600@landvernd.is
SUMMARY:Fuglalíf við Sogið
DESCRIPTION:Sogið og umhverfi þess er fuglaparadís. Laugardaginn 7. júní kl. 14:00 munu tveir félagar í Fuglavernd leiða fuglaskoðun og jafnvel fuglahlustun við þessa vatnsmestu lindá Íslands. \nFerðin hefst við Alviðrubæinn kl. 14. Mörg bílastæði eru við fjóshlöðuna. Gengið verður að Sogi\, hlustað og skimað eftir fuglum. Takið gjarnan með ykkur sjónauka\, og gleymið ekki börn eru hjartanlega velkomin. Mælt er með hlýjum hlífðarfatnaði því oft er staldrað við\, hlustað og jafnvel horft lengi. \nFuglaskoðunin varir í  um 2  klukkutíma. Síðan verður fuglaspjall í Alviðru. Landverndarkakó og kleinur verða í boði. Þá verður hægt að skoða og ræða þá uppstoppuðu fugla sem eru geymdir í bænum. Allir velkomnir. \n14:00 Fuglaskoðun hefst. \n16: 00 Kakó\, kleinur og spjall. \nAlviðra er staðsett við Biskupstungubraut undir Ingólfsfjalli á mótsvið Þrastarlund\, um 10 km frá Selfossi. \nSumarkveðja\, Landvernd og Fuglavernd
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fuglalif-vid-sogid/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/SindriSkulason_straumond.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250526T180000
DTEND;TZID=UTC:20250526T200000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250519T131448Z
LAST-MODIFIED:20250519T131448Z
UID:47043-1748282400-1748289600@landvernd.is
SUMMARY:Fræðsluganga í Heiðmörk
DESCRIPTION:Lagt verður af stað frá Elliðavatnsbænum kl. 18:00\, mánudaginn 26. maí.Gangan tekur um tvo tíma og endar á sama stað.\nViðburðurinn er í boði Landverndar\, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur.\nGott aðgengi almennings að grænum svæðum hefur ómetanlegt gildi fyrir lýðheilsu og samfélag. Almannarétturinn tryggir fólki náttúruupplifun\, en þekking á náttúrunni styður jafnframt við náttúruvernd.\nVerðmæti í húfi\nHeiðmörk er stærsta og fjölsóttasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri náttúru – plöntum\, dýralífi\, vötnum og jarðmyndunum – í skjólgóðu og aðgengilegu umhverfi rétt við borgarmörkin.\nÁform eru uppi um að takmarka aðgengi að svæðinu\, enda þar vatnsból borgarinnar. Samtökin sem standa að göngunni treysta því að unnt verði að samræma nauðsynlega vernd vatnsbóla og almannarétt um frjálsa för um Heiðmörk – í anda sjálfbærni og lýðræðis. Slíkt hefur tekist annars staðar og getur líka tekist hér.\nGengið verður að þeim svæðum í Heiðmörk sem fyrirhugað er að girða af og loka. Í göngunni verður rætt um þau verðmæti sem í húfi eru.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fraedsluganga-i-heidmork/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/05/fraedsluganga-2.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250523T160000
DTEND;TZID=UTC:20250523T190000
DTSTAMP:20260406T143118
CREATED:20250428T141657Z
LAST-MODIFIED:20250513T125704Z
UID:46228-1748016000-1748026800@landvernd.is
SUMMARY:Aðalfundur Landverndar 2025
DESCRIPTION:Aðalfundur félagsins verður haldinn 23. maí næstkomandi. Við hvetjum alla félaga til að taka daginn frá.\n\nStjórn Landverndar óskar eftir framboðum í stjórn en ár hvert er kosið í 5 embætti til tveggja ára. Í ár er kosið er í fjögur stjórnarsæti auk formannsembættis.\nKjörgengir í stjórn eru skráðir félagar og fulltrúar félaga og samtaka í Landvernd sem eru skuldlausir við samtökin. Framboð berist á landvernd@landvernd.is fyrir 9. maí 2025.\n\nÁlyktunartillögur og tillögur að lagabreytingum skulu berast á landvernd@landvernd.is fyrir 13. maí. Lög Landverndar má finna hér: https://landvernd.is/log-landverndar/\n\n\nDagskrá aðalfundar í Tjarnarbíói 23. maí 2025. \n  \n16.00 Setning fundar. Þorgerður María. \n16.05 Ávarp umhverfis\, orku og auðlindaráðherra. Jóhann Páll Jóhannsson. \n16.20 – Aðalfundarstörf. \n·         Kosning fundarstjóra og fundarritara. \n·         Kosning í nefndir\, kjörnefnd\, allsherjarnefnd og laganefnd \n·         Skýrsla stjórnar\, \n·         Kynning ársreiknings og hann lagður fram til samþykktar. \n·         Kosning skoðunarmanna reikninga. \n16.40 Ný stefna borin upp til samþykktar. \n16.55 Lagabreytingar bornar upp til samþykktar og tillaga um árgjald. \n17.00 – 17.15 Kaffihlé. \n17.15 Niðurstaða úr stjórnarkjöri\, Ný stjórn kynnt og stjórnarmenn kvaddir. \n17.30 Grænfáninn – menntun til framtíðar. \n17.40 Gjörningur í mynd og söng. \n17.50 Ályktanir fundarins bornar upp til samþykktar. \n18.10 – 18.40 Almennar umræður. \n18:40 Viðurkenning Landverndar. \n18:50 Fundi slitið\, léttar veitingar\, snarl og spjall \n19.30 Fræðsluganga í kringum Tjörnina\, eða á næsta bar\, eftir því sem veður og aðstæður leyfa.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/adalfundur-landverndar-2025/
LOCATION:Tjarnarbíó\, Tjarnargata 12\, Reykjavík\, 101
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/04/Blagresi-Bakkafjordur-sigurdur-fjalar-jonsson-y2UrTPXoRgE-unsplash-scaled.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR