BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Landvernd
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20251003T160000
DTEND;TZID=UTC:20251004T160000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250925T111551Z
LAST-MODIFIED:20251002T095432Z
UID:47863-1759507200-1759593600@landvernd.is
SUMMARY:Heiðar í Háska- Garpsdalur
DESCRIPTION:Heiðar í Háska- Garpsdalur 3.-4. Október \nNú leggjum við af stað í enn eina göngu um heiðar í háska. Núna verður hellings krem á kökunni þar sem við bjóðum áhugasömum gestum að gera þetta að tveggja daga fjöri. Í þetta sinn liggur leið okkar að Garpsdal þar sem gríðarlegar virkjanaframkvæmdir eru á teikniborðinu. \nValkvætt er að koma snemma á Laugardeginum beint í Þurranes og hitta hópinn en fyrir þau sem vilja byrja ævintýrið á föstudeginum þá höfum við dagskrána hér. \nFÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER:\nkl 16:00 safnast saman á bílaplaninu við Össur og raðað í bíla. \nEkið í Þurranes\, 2 klst akstur. Gisting í gamla húsinu og eldunaraðstaða. \nVerð fyrir gistingu: 6000 á manninn.(svefnpokapláss) \nLAUGARDAGUR 4. OKTÓBER:\nKl 10:00 að upphafsstað að loknum morgunverði. \nNú horfum við til Garpsdals. Breytingar geta orðið á áður auglýstri gönguleið í samráði við landeigendur. \nMiðað er við 2-3 klst á göngu og nestistund. \n———— \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn *Símanúmer *Netfang *Ert þú félagi í Landvernd? *JáNei en ég bæti úr því:)Þessi ganga er ein af afar skemmtilegu viðburðum sem landvernd býður sínum félögum uppá KomutímiÉg mæti á föstudeginum og gisti í svefnpokaplássi með hópnumÉg mæti á staðinn að morgni laugardagsSkrá mig í göngu  \nEkið sem leið liggur í höfuðstaðinn að göngu lokinni. \nMunið nesti fyrir kvöldverð\, morgunverð og göngu.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/heidar-i-haska-garpsdalur/
LOCATION:Garpsdalur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/DSC_0868-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250929T170000
DTEND;TZID=UTC:20250929T183000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250923T103617Z
LAST-MODIFIED:20250923T114019Z
UID:47838-1759165200-1759170600@landvernd.is
SUMMARY:🌍 LOFTSLAGSKVÍÐI – SAMTAL SEM SKIPTIR MÁLI 🌱
DESCRIPTION:Viðburður í tilefni Guls september.\n\nFinnið þið fyrir vanmáttarkennd eða kvíða þegar þið hugsið um loftslagsmálin? Þið eruð ekki ein. \nVið lifum sannarlega á óvissutímum en með opinni umræðu og aukinni meðvitund getum við skapað rými fyrir von\, aðgerðir og innri styrk. Mánudaginn 29. september bjóðum við ykkur á viðburð þar sem við getum deilt hugsunum og hugmyndum\, hlýðum á erindi og lítum inn á við. Opið öllum \nÞessi viðburður snýst bæði um vanmátt og von. Saman höfum við áhrif. \n\nRagnhildur Katla BSc í sálfræði og upplýsingafulltrúi Landverndar leiðir umræður og æfingar. En sérstakur gestur er Sverrir Norland\, rithöfundur\, útgefandi\, hugmyndasmiður og fjölmiðlamaður. Hann hefur á síðustu árum flutt mörg hundruð fyrirlestra í skólum\, fyrirtækjum og stofnunum\, bæði út frá bókum sínum og eins um önnur efni spanna allt frá karlmennsku í samtímanum\, loftslagsbreytingum\, tækni\, sköpunargáfu\, hatursorðræðu og gervigreind \n\n📅 [29.september 🕒 [17:00] 📍 [Loft hostel] \ná viðburðinum verður samtal\, æfingar og erindi.\nErindi þetta er byggt á samnefndri bók Sverris sem kom út árið 2021\nStríð og kliður: Hvað verður um ímyndunaraflið?\n\nÞurfum við að endurhugsa samfélög okkar frá grunni? Eru það hinir gæfustu sem lifa af? Er heimurinn virkilega að farast? Búum við í tækniræði? Hvað verður um óhemjurnar?\n\n\n\n\nSverrir hefur gefið út tólf bækur\, þ.m. talið lofuð verk á borð við Klettinn (2023) og Stríð og klið (2021). Þá hefur Sverrir gefið út tónlist við eigin texta\, nú síðast breiðskífurnar Hinir gæfustu lifa af (2025) og Mér líður best illa (2024). Sverrir er með mastersgráðu í skapandi skrifum frá Middlesex University í London og BA-gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/%f0%9f%8c%8d-loftslagskvidi-samtal-sem-skiptir-mali-%f0%9f%8c%b1/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/09/www.-Landvernd.is_.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250920T100000
DTEND;TZID=UTC:20250920T200000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250908T145537Z
LAST-MODIFIED:20250918T172401Z
UID:47680-1758362400-1758398400@landvernd.is
SUMMARY:Dagsferð að Dynk - Þjórsárferð Landverndar
DESCRIPTION:Laugardaginn 20.september 2025 10:00 🥾 🥾 \nLandvernd fer að Dynk í Þjórsá\nFossinn Dynkur í Þjórsá\, er tilkomumesti stórfoss Þjórsár sem skaðast og skerðist ef áform um Kjalölduveitu verða að veruleika. \nLandvernd býður til göngu að Dynk og ef veður leyfir kíkjum við á fleiri fossa sem óhætt er að fullyrða að komi á óvart fyrir fegurð. \nLagt verður af stað með rútu úr Árnesi klukkan 10.00 laugardaginn 20. september. \nGangan sjálf tekur frá 3 – 5 klukkustundir eftir því hvað við skoðum marga fossa. \nAkstur úr Árnesi að Kóngsási þar sem gangan hefst tekur 3 klukkustundir. \nFerðin kostar 15.000 yfir félagsmeðlimi Landverndar og 20.000 fyrir óskráða. \nNAUÐSYNLEGT ER AÐ KLÆÐA SIG VEL. VINDÞÉTT\, HLÝ FÖT\, VAÐSKÓ og NESTI.\n\nLeiðsögumenn eru af ekki af verri endanum \n* Björg Eva Erlendsdóttir\n* Sigþrúður Jónsdóttir \nAthugið að skráning í ferðina er nauðsynleg. \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn *Símanúmer *Netfang *Ert þú félagi í Landvernd? *JáNei en ég bæti úr því:)Þessi ganga er ein af afar skemmtilegu viðburðum sem landvernd býður sínum félögum uppá KomutímiÉg mæti á föstudeginum og gisti í svefnpokaplássi með hópnumÉg mæti á staðinn að morgni laugardagsSkrá mig í göngu
URL:https://landvernd.is/vidburdur/dagsferd-ad-dynk-thjorsarferd-landverndar/
LOCATION:Arnes\, Árnes\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/04/Dynkur_landvernd_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250914T140000
DTEND;TZID=UTC:20250914T170000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250902T133507Z
LAST-MODIFIED:20250902T133507Z
UID:47642-1757858400-1757869200@landvernd.is
SUMMARY:Alviðruhlaupið
DESCRIPTION:Ert þú hlaupagarpur? Hefur þú gaman að náttúrunni? Hefur þig alltaf langað til þess að kanna Sogið og gætir hugsað þér að komast sem lengst á sem stystum tíma?\n\nSunnudaginn 14. september kl. 14:00 verður hið árlega Alviðruhlaup í tilefni af Degi íslenskrar náttúru.\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nHlaupið verður frá bæjarhlaðinu í Alviðru\, á göngustíg á brúnni yfir Sogið og um stíga á birkivöxnu Öndverðarnesi með útsýni yfir Sogið og Hvítá. Vegalengdin er um 8 km.\n\n\n\n\n\nEftir hlaupið verður boðið upp á hressingu í Alviðru.\n\n\n\n\n\nÁhugasamir eru beðnir um að senda skilaboð á stjórnanda hlaupsins á netfangið: agusta.jonsdottir@gmail.com
URL:https://landvernd.is/vidburdur/alvidruhlaupid/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/05/Vidburdir-Alvidra-2024-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250914T140000
DTEND;TZID=UTC:20250914T160000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250828T131337Z
LAST-MODIFIED:20250828T141738Z
UID:47624-1757858400-1757865600@landvernd.is
SUMMARY:Uppskeruhátíð Alviðru
DESCRIPTION:Viljið þið gæða ykkur á gjöfum móður náttúru? Komdu að fagna degi íslenskrar náttúru  í gullfallegri náttúruperlu við land Alviðru með góðan mat og notalegan félagsskap. \nÍ tengslum við dag íslenskrar náttúru verður boðið til veislu og uppskerudags í Alviðru sunnudaginn\, 14. september\, kl. 14-17. Veisluborð verða dúkuð og boðið verður upp á grænmetissmakk úr grenndargarðinum\, kaffi og kakó. Gestir bera með sér veitingar að borðinu og njóta veislunnar saman undir stjórn Auðar I. Ottesen og Sigurðar Árna Þórðarsonar. Hið árlega Alviðruhlaup verður einnig á þessum uppskerudegi. \nAuður og Sigurður Árni taka vel á móti gestum sem hvattir eru til að leggja lítilræði til Pálínuboðsins og njóta þess að gleðjast saman í Alviðru. \n  \nVerið velkomin! \n(…með góða skapið\, snarl og/eða hlaupaskóna)
URL:https://landvernd.is/vidburdur/uppskeruhatid-alvidru/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/Alvidra-PallJokull.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250911T170000
DTEND;TZID=UTC:20250911T190000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250903T161004Z
LAST-MODIFIED:20250908T141310Z
UID:47644-1757610000-1757617200@landvernd.is
SUMMARY:Heiðar í Háska - Skoðum stærðarinnar mælingamastur.
DESCRIPTION:Nú á fimmtudaginn er haldið aftur um Heiðar í Háska og í þetta sinn skoðum við stærðarinnar mælingamastur.\n Mæting kl 17:00 á áningarstað við Nesjavallaveg en þar er mjög rúmgott stæði fyrir bíla. (smellið á slóðina eða notið hnitin  64.116705\, -21.479747 )\nLýsing \nUm er að ræða c.a. 2\,5 km mjög létta göngu sem mun taka um 2 klst.fram og til baka með stoppum og leiðsögn. Markmiðið er að skoða 120 m hátt mælingamastur sem reist hefur verið fyrir áformað vindorkuver á svæðinu.  Horft verður til þeirra áhrifa sem sjálft mastrið hefur og svo máta það við 210 metra hátt vindorkuver sem er áformað er þarna á svæðinu. Landið þarna á Mosfellsheiði er skilgreint sem þjóðlenda. \nÁ þennan viðburð í bakgarði höfuðborgarinnar geta allir mætt og líka þeir sem ekki eiga kost á að ganga. Þetta verður fróðleg kynning á málefninu en um leið gott tækifæri til að sýna samstöðu gegn því að landið leggist undir stóriðju vindorkurisanna. Áhrifin verða einnig tíunduð á áningarstað þar sem ásýnd og áhrif eru einnig umtalsverð frá mælimastri.\n\nöll velkomin\nLeiðsögn Kristín Helga Gunnarsdóttir og Andrés Skúlason Landvernd. \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/heidar-i-haska-skodum-staerdarinnar-maelingamastur/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/09/Hengill--scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250824T140000
DTEND;TZID=UTC:20250824T160000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250815T134945Z
LAST-MODIFIED:20250815T135707Z
UID:47555-1756044000-1756051200@landvernd.is
SUMMARY:Jarðfræðiganga með Formanni Landverndar
DESCRIPTION:Sunnudaginn 24. ágúst verður Jarðfræði- fræðslu ganga með Formanni Landverndar frá Alviðru um Ingólfsfjall og umhverfi. \nFræðslugangan hefst kl. 14:00 og stendur yfir í einn og hálfan tíma. Gengið verður upp í hlíðar Ingólfsfjalls og leitað ummerkja jökla og brims. Fólki er frjálst að ganga á topp Ingólfsfjalls að fræðslugöngu lokinni eða fylgja leiðsögumanni til baka að Alviðru. Boðið verður upp á kaffi og spjall í húsnæði Alviðru að göngu lokinni. Gott er að taka með sér lúpu eða stækkunargler\, áttavita\, steinabók og vatn að drekka. Gangan hentar vel fyrir börn sem fullorðna. \nÞorgerður María Þorbjarnardóttir\, jarðfræðingur og formaður Landverndar leiðir gönguna.\nUpphafsstaður er bæjarhlaðið að Alviðru.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/jardfraediganga-med-formanni-landverndar/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/DSC_0868-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250823T160000
DTEND;TZID=UTC:20250823T180000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250805T110838Z
LAST-MODIFIED:20250805T111655Z
UID:47504-1755964800-1755972000@landvernd.is
SUMMARY:Loftlagsfestival 2025
DESCRIPTION:Loftslagsfestival 2025 verður á menningarnótt 23. ágúst!\nViðburðurinn verður haldinn á Hjartatorgi í miðbænum klukkan 16:00-18:00\nÖll eru velkomin en það má búast við ræðum\, leik\, lifandi fjöri\, lifandi tónlist og fleira! \n\n\n\nClimate Festival 2025 will be held on Culture Night on August 23rd!\nEveryone is welcome to attend and you can expect speeches\, live music and more!\n\n\nSjá meira á Facebook viðburðinum
URL:https://landvernd.is/vidburdur/loftlagsfestival/
LOCATION:Hjartatorg\, Smiðjustígur 4\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/521289108_771062428818275_7074505991231445932_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250817T140000
DTEND;TZID=UTC:20250817T170000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250806T154351Z
LAST-MODIFIED:20250806T161341Z
UID:47512-1755439200-1755450000@landvernd.is
SUMMARY:Veiðar hjá Alviðru
DESCRIPTION:Veiðar hjá Alviðru. Hefur þú áhuga á veiðum? Hefur þú prófað það áður eða ert ennþá að dýfa tánum í þetta friðsæla en fjöruga sport? \nNú gefst tækifæri til að veiða í Soginu fyrir landi Alviðru\, sem er rómað fyrir náttúrufegurð og stórfiska. Alviðrunefnd og veiðifélagið Starir bjóða fólki með veiðiáhuga að fræðast og veiða í Soginu. Allir eru velkomnir. Veitt er á flugu. \nVeiðidagur Alviðru verður sunnudagin\, 17. ágúst\, 2025.\n  \n \n  \nMæting við Alviðrubæ kl. 14:00 á sunnudaginn  \nSagt verður frá veiðum í Soginu. Skipt verður í hópa og vísað til veiðistaða. Leiðsögumaður frá Störum ráðleggur veiðimönnum. \n  \nDagskrá lýkur um kl. 17:00. Kakó\, kaffi og kleinur verða í boði í Alviðru. \n  \nGerið svo vel að tilkynna nöfn veiðimanna í tölvupósti: s@sigurdurarni.is \nÞau sem fyrst skrá þátttöku ganga fyrir ef mikill fjöldi vill veiða. \nHlökkum til að sjá ykkur!
URL:https://landvernd.is/vidburdur/veidar-hja-alvidru/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/08/Alvidruveidi.jpg
ORGANIZER;CN="alvi%C3%B0ra":MAILTO:s@sigurdurarni.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250717T080000
DTEND;TZID=UTC:20250717T170000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250625T145848Z
LAST-MODIFIED:20250625T145848Z
UID:47383-1752739200-1752771600@landvernd.is
SUMMARY:Anda og þakka fyrir náttúru íslands
DESCRIPTION:Athugið þetta er ekki viðburður heldur ósk um sameiginlega samfélagshugsun. \n  \ní Dag skulum við anda og þakka fyrir fallegu náttúru okkar. \n \nHvar sem við erum stödd á Íslandi. Finnum grasið undir tánum og vindinn í eyrunum. Ef við erum heppin þá finnum við kannski fyrir sólargeislunum leika við andlitið \n  \nVerndum náttúruna okkar
URL:https://landvernd.is/vidburdur/anda-og-thakka-fyrir-natturu-islands/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Afrit-af-Sortulyng-Large.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250702T183000
DTEND;TZID=UTC:20250702T183000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250625T142459Z
LAST-MODIFIED:20250627T120056Z
UID:47381-1751481000-1751481000@landvernd.is
SUMMARY:Fuglafjör í Vatnsmýrinni
DESCRIPTION:Landvernd ætlar að halda skemmtilegt fuglafjör í Vatnsmýrinni fyrir unga sem aldna þar sem við kynnumst náttúruperlunni í nálægð\n\nMiðvikudaginn 2. júlí ætlum við að halda stórskemmtilegan viðburð fyrir öll sem eru áhugasöm um Fugla.\n\n\nÞetta er einstaklega aðgengilegur viðburður fyrir unga sem aldna á höfuðborgarsvæðinu því við ætlum okkur að hittast í Vatsmýrinni.Þar má rölta um og draga andann í miðborgar náttúruperlu.Fuglafylgirinn Hlynur Steinsson er þekktur fyrir að fræða fólk á skemmtilegan hátt um fiðraðar verur. Fyrst fáum við að sjá fjaðrir og fleira úr mikilli nálægð en færum okkur svo út með sjónaukana.Hver veit hvort við förum í einhverja leiki\nVerið öll velkomin í fuglafjör í Vatnsmýrinni\nMeð kíki eða án\, stór eða smá\, fuglaelskendur eða fólk sem nýtur náttúrunnar. \nÞó tæknilega séð gæti þetta verið á kvöldmatartíma þá er vissulega hægt að borða fyrir eða eftir eða bara koma með nesti og nasla með fuglunum. \nÞetta verður fljúgandi frjálst flæði.\n\nEndilega skoðið facebook viðburðinn og setjið Going\nHlökkum til að sjá ykkur
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fuglafjor-i-vatnsmyrinni/
LOCATION:Vatnsmyrin\, Sæmundargata\, Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2020/06/loftslagsvernd-fuglar-sky-900.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250628T130000
DTEND;TZID=UTC:20250628T150000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250613T100656Z
LAST-MODIFIED:20250626T141110Z
UID:47257-1751115600-1751122800@landvernd.is
SUMMARY:Upp á Ingólfsfjall
DESCRIPTION:Ganga upp á Ingólfsfjall og notalegheit með kakó og kleinum. \nSíðbúin Jónsmessuganga að Inghól og norður eftir fjallinu\, niður að Torfastöðum og til suðurs meðfram fjallshlíðinni að Alviðrubænum. \nIngólfsfjall\ner 551 m hátt virðulegt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu\, í vestur\, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi og að Torfastöðu\, sem er nokkuð brattari niðurleið. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt. \nIngólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann i vetursetu undir Ingólfsfjalli á leið til Reykjavíkur\, að því  er segir í Landnámu\, og flutti frá Reykjavík gamall maður aftur að fjallinu og lauk þar ævidögum sínum \nGengið verður frá bænum Alviðru\nHér má finna saðsetningu Alviðru á korti \neftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól\, þar sem Ingólfur landsnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Frá Inghól verður gengið norður eftir Ingólfsfjalli og komið niður á móts við Torfastaði. Það er nokkuð brött leið og því gott að hafa göngustaf með til að styðjast við. Þegar niður er komið er gengið til suðurs meðfram fjallinu að Alviðrubænum. Ætla má að gangan taki 4 til 6 klukkustundir. \nMunið göngustaf\, haldgóða skó\, hlífðarföt og nestisbita. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson fv. formaður Landverndar sem oft hefur gengið á fjallið. \nBoðið verður upp á kakó og kleinur í bænum að aflokinni göngu. \nÞeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða\, fallega\, vel merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst. \nAlviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðarnes II er eign Árnesinga og er einnig friðland með merktum gönguleiðum og opið almenningi. \nÍ sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir öðrum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins  er hér á síðu Landverndar \nviðburð má finna hér á facebooksíðu Alviðru
URL:https://landvernd.is/vidburdur/upp-a-ingolfsfjall/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/14-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250619T180000
DTEND;TZID=UTC:20250619T200000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250612T131442Z
LAST-MODIFIED:20250616T104404Z
UID:47224-1750356000-1750363200@landvernd.is
SUMMARY:Sköflungsganga Landverndar - Heiðar í háska - Mosfellsheiði
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 19. júní klukkan 18:00 🥾 \n  \n Leiðarlýsing á upphafsreit gönguleiðar:  Beygt er út af Suðurlandsvegi og Nesjavallavegur ekinn meðfram rörinu. Þrátt fyrir að við gerum ráð fyrir að flestir vilji fara á eigin bílum\, væri gott að sameinast í bíla hjá Össuri á Grjóthálsi en þaðan verður farið í síðasta lagi kl.17:15.  \n\nStaðsetning: Mæting og upphaf göngu er kl 18:00 á bílastæði sem er merkt inn á eftirfarandi hlekk \nsvo rata megi auðveldlega:  https://maps.app.goo.gl/iNgXsaXXVV6nV6Ls9 \n  \nLýsing gönguferðar:  Lengd gönguleiðar er ca. 5 km fram og til baka. Gert er ráð fyrir að gangan taki allt að þrjár klukkustundir með nestisstund. Mikilvægt er til öryggis að taka með skjólgóðan fatnað og góða skó en annars er leiðin greiðfær og við flestra hæfi og auðvitað gerum við ráð fyrir góðu gönguveðri og stórkostlegu útsýni. ☺\nAf Sköflungi er góð sýn yfir Mosfellsheiði\, einnig til Þingvalla og síðast en ekki síst yfir áhrifasvæði fyrirhugaðra framkvæmda við vindorkuver.  \n  \nÞetta er þriðja gangan undir merkjunum “Heiðar í háska” og voru hinar göngurnar fjölmennar og mæltust sérstaklega vel fyrir.  Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir og athugið að gangan er ekki aðeins fyrir félaga í Landvernd. Við hvetjum hins vegar auðvitað þátttakendur til að ganga til liðs við Landvernd auk þess að taka þátt í samstöðugöngu gegn þeim áformum sem uppi eru. \n  \nÁform eru uppi um þrjú vindorkuver á milli Lyklafells og Sköflungs á Mosfellsheiði. \nHæð vindorku mannvirkja á svæðinu eru áætluð frá 180 – 210 metra á hæð. Vindorkuverum á Mosfellsheiði er ætlað að rísa í flasið á útivistarlandi og náttúruparadís höfuðborgarbúa. \nMikil andstaða er við þessi áform enda hefðu fyrirhuguð iðnaðarver áhrif á náttúru\, lífríki og upplifun og útivist á gríðarlega stóru svæði. Auk beinna samfélagslegra áhrifa hafa atvinnuflugmenn og áhugafólk um flug lýst yfir sérstökum áhyggjum af staðsetningu vindorkuvera á þessu svæði. \nStöndum saman og sýnum samhug í verki til varnar einstöku útivistarsvæði og heiðarlandi við rætur Hengils í bakgarði stór höfuðborgarsvæðisins og Þingvallasveitar.  \n  \nVerið velkomin í meðmælagöngu með heiðarlandi í hættu. \nLeiðsögumenn: Páll Ásgeir Ásgeirsson\, Rósa Sigrún Jónsdóttir\, \nAndrés Skúlason og Kristín Helga Gunnarsdóttir.  \n  \nVinsamlega athugið að skráning í ferðina er æskileg og hægt að gera það á facebook viðburðinum hér: https://fb.me/e/4KlX8DBub  \n  \nNánari upplýsingar veita: \nKristín Helga Gunnarsdóttir\, stjórnarfulltrúi í Landvernd – 896 9771. \nAndrés Skúlason verkefnastjóri Landvernd – 8995899.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/skoflungsganga-landverndar-heidar-i-haska-mosfellsheidi/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Skoflungur-.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250615T090000
DTEND;TZID=UTC:20250615T150000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250613T094129Z
LAST-MODIFIED:20250613T094203Z
UID:47252-1749978000-1749999600@landvernd.is
SUMMARY:Árleg lúpínuhringferð um Reykjanesfólkvang
DESCRIPTION:Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd (Sjá) eru deild í Landvernd með það helsta markmið að gefa fólki tækifæri til að vinna að náttúruvernd.\nÞetta er góður félagsskapur sem nýtir krafta sína í skemmtilegum verkefnum í þágu náttúruverndar.\nÍ áratug höfum við vaktað nokkra staði í Reykjanesfólkvangi\, takmarkað útbreiðslu lúpínu til svæða sem eru að mestu lúpínulaus. Það gerum við árlega með því að hemja þar útbreiðslu lúpínu og höfum einnig stöðvað jarðvegseyðingu með grasfræi og áburði\n\nUmsjón: Þorvaldur Örn (s.895 6841) og Örn Þorvaldsson.\n\nUm er að ræða göngu á fallegri leið með leiðsögn og skemmtilegri lúpínuvinnu. \n\n\nMæting við N1 í Hafnarfirði kl. 9 eða í Seltún í Krýsuvík kl. 10.\n\nÖll hjartanlega velkomin! Bara mæta á staðinn. Fullkomið verk fyrir vinnufúsar hendur og hugarfar náttúruverndar
URL:https://landvernd.is/vidburdur/arleg-lupinuhringferd-um-reykjanesfolkvang/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/452254329_10231274801526911_2558524771965106453_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250614T140000
DTEND;TZID=UTC:20250614T160000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250603T113836Z
LAST-MODIFIED:20250603T113836Z
UID:47203-1749909600-1749916800@landvernd.is
SUMMARY:Lífið í og við Sogið 
DESCRIPTION:Laugardaginn 14. júní 2025 kl. 14 – 16 munu náttúrufræðingarnir Einar Þorleifsson\, Rannveig Thoroddsen og Skúli Skúlason\, leiða létta fræðslugöngu um Þrastaskóg og Sogið. Litið verður eftir foldarskarti í skógarbotni og lagt við hlustir eftir fuglasöng á grein eða kvaki á Soginu\, um leið og fræðst verður um lífríki Sogsins\, tengslum þess við Þingvallavatn\, með áherslu á fiska\, og dregin fram sérstaða þess og verðmæti og sett í alþjóðlegt samhengi. \nDagskráin hefst á hlaði Alviðru\, sem er fræðslusetur Landverndar. Síðan verður haldið að Þrastalundi og gengið um skóginn og meðfram Soginu. Fræðslugangan er ætluð fólki á öllum aldri og börnin eru svo sannarlega velkomin. Takið með viðeigandi hlífðarfatnað og kíkir gæti komið að notum. Við lok göngu verða þjóðlegar veitingar í boði í Alviðrubænum.  \nSogið\, Alviðrujörðin og Þrastaskógur er ævintýraheimur. Verið velkomin.  \nAlviðrunefnd Landverndar
URL:https://landvernd.is/vidburdur/lifid-i-og-vid-sogid/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Blaberjakoppar-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250607T140000
DTEND;TZID=UTC:20250607T170000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250602T180231Z
LAST-MODIFIED:20250602T180231Z
UID:47199-1749304800-1749315600@landvernd.is
SUMMARY:Fuglalíf við Sogið
DESCRIPTION:Sogið og umhverfi þess er fuglaparadís. Laugardaginn 7. júní kl. 14:00 munu tveir félagar í Fuglavernd leiða fuglaskoðun og jafnvel fuglahlustun við þessa vatnsmestu lindá Íslands. \nFerðin hefst við Alviðrubæinn kl. 14. Mörg bílastæði eru við fjóshlöðuna. Gengið verður að Sogi\, hlustað og skimað eftir fuglum. Takið gjarnan með ykkur sjónauka\, og gleymið ekki börn eru hjartanlega velkomin. Mælt er með hlýjum hlífðarfatnaði því oft er staldrað við\, hlustað og jafnvel horft lengi. \nFuglaskoðunin varir í  um 2  klukkutíma. Síðan verður fuglaspjall í Alviðru. Landverndarkakó og kleinur verða í boði. Þá verður hægt að skoða og ræða þá uppstoppuðu fugla sem eru geymdir í bænum. Allir velkomnir. \n14:00 Fuglaskoðun hefst. \n16: 00 Kakó\, kleinur og spjall. \nAlviðra er staðsett við Biskupstungubraut undir Ingólfsfjalli á mótsvið Þrastarlund\, um 10 km frá Selfossi. \nSumarkveðja\, Landvernd og Fuglavernd
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fuglalif-vid-sogid/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/SindriSkulason_straumond.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250526T180000
DTEND;TZID=UTC:20250526T200000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250519T131448Z
LAST-MODIFIED:20250519T131448Z
UID:47043-1748282400-1748289600@landvernd.is
SUMMARY:Fræðsluganga í Heiðmörk
DESCRIPTION:Lagt verður af stað frá Elliðavatnsbænum kl. 18:00\, mánudaginn 26. maí.Gangan tekur um tvo tíma og endar á sama stað.\nViðburðurinn er í boði Landverndar\, Ferðafélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur.\nGott aðgengi almennings að grænum svæðum hefur ómetanlegt gildi fyrir lýðheilsu og samfélag. Almannarétturinn tryggir fólki náttúruupplifun\, en þekking á náttúrunni styður jafnframt við náttúruvernd.\nVerðmæti í húfi\nHeiðmörk er stærsta og fjölsóttasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Þar gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri náttúru – plöntum\, dýralífi\, vötnum og jarðmyndunum – í skjólgóðu og aðgengilegu umhverfi rétt við borgarmörkin.\nÁform eru uppi um að takmarka aðgengi að svæðinu\, enda þar vatnsból borgarinnar. Samtökin sem standa að göngunni treysta því að unnt verði að samræma nauðsynlega vernd vatnsbóla og almannarétt um frjálsa för um Heiðmörk – í anda sjálfbærni og lýðræðis. Slíkt hefur tekist annars staðar og getur líka tekist hér.\nGengið verður að þeim svæðum í Heiðmörk sem fyrirhugað er að girða af og loka. Í göngunni verður rætt um þau verðmæti sem í húfi eru.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fraedsluganga-i-heidmork/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/05/fraedsluganga-2.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250523T160000
DTEND;TZID=UTC:20250523T190000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250428T141657Z
LAST-MODIFIED:20250513T125704Z
UID:46228-1748016000-1748026800@landvernd.is
SUMMARY:Aðalfundur Landverndar 2025
DESCRIPTION:Aðalfundur félagsins verður haldinn 23. maí næstkomandi. Við hvetjum alla félaga til að taka daginn frá.\n\nStjórn Landverndar óskar eftir framboðum í stjórn en ár hvert er kosið í 5 embætti til tveggja ára. Í ár er kosið er í fjögur stjórnarsæti auk formannsembættis.\nKjörgengir í stjórn eru skráðir félagar og fulltrúar félaga og samtaka í Landvernd sem eru skuldlausir við samtökin. Framboð berist á landvernd@landvernd.is fyrir 9. maí 2025.\n\nÁlyktunartillögur og tillögur að lagabreytingum skulu berast á landvernd@landvernd.is fyrir 13. maí. Lög Landverndar má finna hér: https://landvernd.is/log-landverndar/\n\n\nDagskrá aðalfundar í Tjarnarbíói 23. maí 2025. \n  \n16.00 Setning fundar. Þorgerður María. \n16.05 Ávarp umhverfis\, orku og auðlindaráðherra. Jóhann Páll Jóhannsson. \n16.20 – Aðalfundarstörf. \n·         Kosning fundarstjóra og fundarritara. \n·         Kosning í nefndir\, kjörnefnd\, allsherjarnefnd og laganefnd \n·         Skýrsla stjórnar\, \n·         Kynning ársreiknings og hann lagður fram til samþykktar. \n·         Kosning skoðunarmanna reikninga. \n16.40 Ný stefna borin upp til samþykktar. \n16.55 Lagabreytingar bornar upp til samþykktar og tillaga um árgjald. \n17.00 – 17.15 Kaffihlé. \n17.15 Niðurstaða úr stjórnarkjöri\, Ný stjórn kynnt og stjórnarmenn kvaddir. \n17.30 Grænfáninn – menntun til framtíðar. \n17.40 Gjörningur í mynd og söng. \n17.50 Ályktanir fundarins bornar upp til samþykktar. \n18.10 – 18.40 Almennar umræður. \n18:40 Viðurkenning Landverndar. \n18:50 Fundi slitið\, léttar veitingar\, snarl og spjall \n19.30 Fræðsluganga í kringum Tjörnina\, eða á næsta bar\, eftir því sem veður og aðstæður leyfa.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/adalfundur-landverndar-2025/
LOCATION:Tjarnarbíó\, Tjarnargata 12\, Reykjavík\, 101
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/04/Blagresi-Bakkafjordur-sigurdur-fjalar-jonsson-y2UrTPXoRgE-unsplash-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250523T153000
DTEND;TZID=UTC:20250523T193000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250515T130718Z
LAST-MODIFIED:20250516T124609Z
UID:46979-1748014200-1748028600@landvernd.is
SUMMARY:Skráning á aðalfund Landverndar 2025
DESCRIPTION:Boðað er til aðalfundar Landverndar föstudaginn 23. maí. Húsið opnar 15:30 og hefst fundurinn á slaginu 16:00. \nSjá allar upplýsingar um fundinn hér. \n  \nSkráning á aðalfund\n\n\nFundargestir eru beðnir að skrá sig fyrirfram. \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn *Símanúmer *Netfang *Kennitala *Reikningsnúmer *Bæta við upphæð *skrá mig   \nSkráning á aðalfund Landverndar 2025
URL:https://landvernd.is/vidburdur/skraning-a-adalfund-landverndar-2025/
LOCATION:Tjarnarbíó\, Tjarnargata 12\, Reykjavík\, 101
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/05/Adalfundur-Landverndar-Facebook-Cover.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250512T200000
DTEND;TZID=UTC:20250512T213000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250429T141402Z
LAST-MODIFIED:20250429T141402Z
UID:46244-1747080000-1747085400@landvernd.is
SUMMARY:Stefnumótunarfundur Landverndar
DESCRIPTION:Stefnumótunarfundur Landverndar verður haldinn mánudaginn 12. maí\, klukkan 20.00\, Guðrúnartúni 1\, 105 Reykjavík.\nTil umræðu verða stefnudrög stjórnar Landverndar sem lögð verða fyrir aðalfund 23. maí.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/stefnumotunarfundur-landverndar-2/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/04/Hafdu-ahrif-drog-ad-nyrri-stefnu-Landverndar-kynnt.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250510T140000
DTEND;TZID=UTC:20250510T160000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250507T144800Z
LAST-MODIFIED:20250507T144800Z
UID:46580-1746885600-1746892800@landvernd.is
SUMMARY:Sáningarvaka í Alviðru
DESCRIPTION:Sáningarvaka í Alviðru\, laugardaginn 10. maí\nSamverustund með Auði I. Ottesen garðyrkjufræðingi verður í Alviðru – fræðslusetri Landverndar – laugardaginn\, 10. maí\, frá kl. 14-16. Þessi maífræðsla er ætluð þeim sem vilja ná árangri í matjurtarækt og njóta ríkulegrar uppskeru garðvinnunnar. \n\nAuður hefur umsjón með grenndargörðunum í Alviðru og mun kynna ræktunarmöguleika þar. Allir félagar í Landvernd eiga kost á að rækta eigið grænmeti í grenndargarðinum. Auður fræðir um forræktun\, hvaða tegundum megi sá beint út í beð og um mismunandi ræktunaraðferðir. Ráðlagt verður með áburðargjöf og lífrænar lausnir gegn vágestum og plöntusjúkdómum. Kynntar verða fjölmargar tegundir krydd- og matjurta. \n\nÞau\, sem áhuga hafa á að rækta í grenndargarðinum\, geta skráð sig til þátttöku á sáningarvökunni.\nTil fjáröflunnar gerð kryddspírala í grenndargarðinum verður selt kaffi og með því. Einnig verða til sölu kryddjurtir og forræktað grænmeti.\nAlviðra er náttúruverndar- og fræðslustofnun Landverndar staðsett undir Ingólfsfjalli vestan við Sogið\, um 10 km. frá Selfossi við Biskupstungubraut.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/saningarvaka-i-alvidru/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/05/Add-a-heading-Facebook-Post.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20250508
DTEND;VALUE=DATE:20250509
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250502T151839Z
LAST-MODIFIED:20250502T151839Z
UID:46263-1746662400-1746748799@landvernd.is
SUMMARY:Heimildamyndin Ocean með David Attenborough
DESCRIPTION:“Hafið er lífbúnaður plánetunnar okkar og helsti bandamaður okkar í baráttunni gegn hamfarahlýnun. Samt er það á krossgötum\, við erum að sjúga lífið úr hafinu.“ \nSir David Attenborough hefur tileinkað stóran part ævi sinnar til umhverfsimála og fræðslu um lífríki jarðar. Heimildamyndin Ocean\, eða Hafið með David Attenborough\, verður sýnd í kvikmyndahúsum um allan heim 8. maí næstkomandi\, á 99 ára afmæli Attenborough. \nHafið verður sýnd þrisvar sinnum í Smárabíói fyrir almenna gesti en 9. maí verður sérstök Íslandsfrumsýning á vegum Icelandic Wildlife Fund\, Landverndar\, Náttúruverndarsamtök\, Hvalavinir-Stop whaling in Iceland og NASF. Toby Nowlan\, leikstjóri myndarinnar\, verður viðstaddur og ávarpar gesti
URL:https://landvernd.is/vidburdur/heimildamyndin-ocean-med-david-attenborough/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250415T170000
DTEND;TZID=UTC:20250415T190000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250414T153510Z
LAST-MODIFIED:20250414T153510Z
UID:46191-1744736400-1744743600@landvernd.is
SUMMARY:Fræðsluganga um Ögmundarhraun
DESCRIPTION:Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Landvernd bjóða í fræðslugöngu um Ögmundarhraun þar sem við fræðumst um hnignun lands og landgræðslu. Hver er staða minjaverndar vegna landeyðingar og eldgosa?\n\nMæting er klukkan 17:00 við jaðar Ögmundahrauns austan megin á bílastæði sunnan við Suðurstrandaveg. Gert er ráð fyrir 2 klst göngu
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fraedsluganga-um-ogmundarhraun/
LOCATION:Ögmundarhraun\, Suðustrandarvegur\, Iceland
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/02/46-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250403T190000
DTEND;TZID=UTC:20250403T210000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250320T143402Z
LAST-MODIFIED:20250403T152106Z
UID:46121-1743706800-1743714000@landvernd.is
SUMMARY:Málþing um áhrif vindorkuvera á náttúru
DESCRIPTION:Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landvernd bjóða til málþings um áhrif virkjunar vindorku á náttúru. Markmið fundarins er að fræðast um þau áhrif sem þessi aðferð til orkuöflunar kemur til með hafa á íslenska náttúru. Sérfræðingar á mismunandi sviðum munu flytja erindi og setjast í lok fundar í pallborð þar sem tekið verður við spurningum úr sal.\nFundurinn verður haldinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og mun formaður umhverfis- og skipulagsráðs Múlaþings einnig veita upplýsingar um það sem sveitarfélagið hefur verið að vinna að í tengslum við vindorkumöguleika og nýtt aðalskipulag.\nÖllum er boðið að koma og fræðast með okkur. Boðið verður upp á léttar veitingar.\n\nDagskrá:19:00 Setning fundar19:05 Þorvarður Árnason: Vindorkuvæðing Íslands – áhrif á landslag og víðerni19:20 Vigdís Freyja Helmutsdóttir: Áhrif vindorkuvera á búfénað og gróðurfar19:35 Jóhann Óli Hilmarsson: Fuglar og vindmyllur\, rannsóknir og áhrif19:50 Stutt kaffihlé20:00 Andrés Skúlason: Áhrif á umhverfi og samfélag20:15 Jónína Brynjólfsdóttir: Vindorkunýting á forsendu sveitarstjórna20:30 Pallborðsumræður21:00 Fundi slitið\nFundinum verður streymt en aðeins fólki í sal býðst að bera fram spurningar\nHlekkur á streymi\nLjósmynd: Skarphéðinn G. Þórisson. Snæfell.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/vindorka-nattura/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/03/Vindorka-nattura-TAKA-32.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250403T170000
DTEND;TZID=UTC:20250403T183000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250326T104054Z
LAST-MODIFIED:20250326T104054Z
UID:46147-1743699600-1743705000@landvernd.is
SUMMARY:Drög að nýrri stefnu Landverndar kynnt á Egilsstöðum
DESCRIPTION:Þorbjörg María Þorbjarnardóttir\, formaður Landverndar og Björg Eva Erlendsdóttir\, framkvæmdastjóri Landverndar\, kynna drög að nýrri stefnu Landverndar. \n\nFélagar í Landvernd hafa tækifæri til að koma með athugasemdir við drögin. \n\nSjáumst í Tehúsinu\, Egilsstöðum\, 3. apríl milli 17:00 og 18:30.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/drog-ad-nyrri-stefnu-landverndar-kynnt-a-egilsstodum/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/03/Hafdu-ahrif-drog-ad-nyrri-stefnu-Landverndar-kynnt.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250402T170000
DTEND;TZID=UTC:20250402T183000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250330T150458Z
LAST-MODIFIED:20250331T131944Z
UID:46154-1743613200-1743618600@landvernd.is
SUMMARY:Náttúruverndarstefna í Leifshúsum á Norðurlandi
DESCRIPTION:Landvernd fer í hringferð um Ísland í næstu viku og heimsækir náttúruverndarfélög og kynnir sér náttúru\, landsvæði\, framkvæmdasvæði og skógrækt með leiðsögn heimafólks á hverjum stað. \nNáttúruverndarfólk sem vill slást í hópinn\, eða hefur mikilvæga sögu að segja getur haft samband við Landvernd á leið um landið\, í netfangið bjorgeva@landvernd.is og þorgerður@landvernd.is. \nFyrsta stopp. \nSamtök um náttúruvernd á Norðurlandi\, (SUNN) og Landvernd boða til félagsfundar um stefnumótun í náttúruvernd. \n\nFundurinn hefst klukkan 18.00 og lýkur klukkan 19.30.\nDagskrá:\nKynning Sunn\, Rakel Hinriksdóttir\, formaður.\nKynning Landvernd\, Þorgerður María Þorbjarnardóttir\, formaður.\nStefnumótun og strengir samstilltir um umhverfis\, loftslags og náttúruvernd.\nÖll velkomin.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/natturuverndarstefna-i-leifshusum-a-nordurlandi/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250313T200000
DTEND;TZID=UTC:20250313T220000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250123T190756Z
LAST-MODIFIED:20250123T190756Z
UID:45810-1741896000-1741903200@landvernd.is
SUMMARY:Vinnustofa í teikningu til áhrifa - Félagakvöld Landverndar
DESCRIPTION:Á félagakvöldi Landverndar í mars ætlar Rán Flygenring að koma til okkar og halda vinnustofu í teikningu til áhrifa.\nRán hefur vakið athygli fyrir margt en meðal annars með því að gefa út nokkrar myndskýrslur um bæði hvalveiðar og fiskeldi.\nÁ vinnustofunni munum við ræða saman um áhrif teikninga og gera teikniæfingar saman. Blöð og pennar verða í boði en fólk er einnig hvatt til þess að koma með sín eigin teiknigögn.\nViðburðurinn er fyrir félaga í Landvernd. Öll geta gerst félagar á síðu Landverndar: www.landvernd.is/gerast-felagi/\nLandvernd eru frjáls félagasamtök sem eru rekin með félagsgjöldum og styrkjum. Þú getur haft áhrif með því að ganga í Landvernd.————————————–\nRán hefur sinnt margvíslegum hönnunar- og teiknistörfum á ferlinum; m.a. var hún grafískur hönnuður og listrænn stjórnandi á vinnustofu Atla Hilmarssonar á árunum 2009-2010 og Hirðteiknari Reykjavíkurborgar árið 2011 áður en hún lagðist í tæplega áratugarlangt flakk um heiminn.\nRán er nú sjálfstætt starfandi mynd- og rithöfundur\, listamaður og hönnuður í Reykjavík. Hún hefur skrifað bækur með eigin teikningum og texta og einnig unnið bækur í félagi við aðra. Bækur Ránar hafa komið út á ensku og þýsku\, auk íslensku.\nHún hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga til verðlauna fyrir verk sín\, bæði á Íslandi og erlendis.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/vinnustofa-i-teikningu-til-ahrifa-felagakvold-landverndar/
LOCATION:Skrifstofa Landverndar\, Guðrúnartún 1\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/01/Vinnustofa-i-teikningu.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250224T170000
DTEND;TZID=UTC:20250224T180000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250220T132949Z
LAST-MODIFIED:20250224T165657Z
UID:45948-1740416400-1740420000@landvernd.is
SUMMARY:Stefnumótunarfundur Landverndar
DESCRIPTION:Félagsfundur Landverndar.\n\nÁfram verður unnið að stefnumótun Landverndar\, mánudaginn 24. febrúar\, klukkan 17:00 – 18:00.\n\nValfrjálst er hvort mætt sé á fundinn í Guðrúnartún 1 eða á Zoom.\n\nHér er hlekkur á fundinn: Join the meeting now\n\n\nUm stefnumótun Landverndar\n\nÍ janúar hófst vinna að endurskoðun stefnu Landverndar. Fjölmennur stefnumótunarfundur var haldinn fyrr í febrúar og ávarpaði orku-\, umhverfis- og loftslagsráðherra fundinn.\nNý stefna verður lögð fram til samþykktar á aðalfundi Landverndar 23. maí.\n\nStefna Landverndar byggir á stefnumótandi félagsfundum sem haldnir eru á þriggja ára fresti. Stefnu Landverndar áranna 2022-2024 er að finna hér: https://landvernd.is/stefna-landverndar-2022-2024/
URL:https://landvernd.is/vidburdur/stefnumotunarfundur-landverndar/
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/02/Stefnumotun-Landverndar.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250210T200000
DTEND;TZID=UTC:20250210T213000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250210T105905Z
LAST-MODIFIED:20250210T110420Z
UID:45850-1739217600-1739223000@landvernd.is
SUMMARY:Stefnumót við ráðherra
DESCRIPTION:Fyrsti stefnumótunarfundur Landverndar af nokkrum verður haldinn rafrænt þriðjudaginn 11. febrúar frá klukkan 20:00 – 21:30.\nJóhann Páll Jóhannsson\, umhverfis-\, orku- og loftslagsráðherra\, ávarpar fundinn.\nÍ janúar hófst vinna að endurskoðun stefnu Landverndar sem lögð verður fram á aðalfundi. Á félagsfundinum ræðum við stefnuna og þær breytingatillögur sem þegar hafa komið fram um stefnuna.\nNý stefna verður lögð fram til samþykktar á aðalfundi Landverndar.\nStefna Landverndar byggir á stefnumótandi félagafundum sem haldnir eru á þriggja ára fresti. Stefnu Landverndar áranna 2022-2024 er að finna hér: https://landvernd.is/stefna-landverndar-2022-2024/\n\nHér er hlekkur á fundinn:\nhttps://us02web.zoom.us/j/87888394024\n\nFundurinn átti upphaflega að vera í dag en var færður vegna stefnuræðu forsætisráðherra sem var færð til vegna óveðurs í síðustu viku.\n\nVerið öll innilega velkomin!
URL:https://landvernd.is/vidburdur/stefnumot-vid-radherra/
LOCATION:online
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/02/taka-thrju.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250123T200000
DTEND;TZID=UTC:20250123T213000
DTSTAMP:20260406T230318
CREATED:20250123T185641Z
LAST-MODIFIED:20250123T190038Z
UID:45805-1737662400-1737667800@landvernd.is
SUMMARY:Náttúruverndarsamráð
DESCRIPTION:Kæru náttúruverndarar nær og fjær. Við endutökum leikinn frá í fyrra og boðum til samráðs meðlima og aðildarfélaga Landverndar. Viðburðurinn fer fram á netinu milli 20:00 og 21:30 – 23.01.25.  Á viðburðinum verða umræður um stefnumótun Landverndar sem framundan er og almennar umræður um umhverfismál á Íslandi.\n\nHlökkum til að sjá ykkur!\n\n\nhttps://us02web.zoom.us/j/86398660260 \nFundarboðið er undir viðburðir á facebook og efst í horninu stendur JOIN og þar opnast hlekkur þegar fundur byrjar. \nÞað er ekki nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram\, en þegar til fundar kemur þarf að skrá sig inn með réttu nafni og gjarnan samtökum líka. \nDagskrá: \nÞorgerður fagnar fundargestum segir fá stefnumótun og býður fólki að taka þátt og fer yfir það allra helsta í náttúruvernd sem varðar okkur öll. \nGrænfáninn kynnir sína starfsemi. \nNáttúruverndarfélög Sunn\, Naust\, SVS \, DÍS og fleiri kynna sín stærstu mál. \nInnlegg frá Grímsey um togveiðar í landgrunninu. \nInnlegg frá baráttuhópi um verndun Laugarness. \n  \nBjörg Eva sinnir tímavörslu. \nTvær mínútur á hvert innlegg. \nEftir innlegg eru umræður. BEE heldur áfram að passa að enginn steli fundinum. \n\n  \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/natturuverndarsamrad/
LOCATION:Fjarfundur á Zoom
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/01/Blue-and-Gold-Elegant-Whisky-Tasting-Facebook-Event-Cover.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR