BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Landvernd
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250403T190000
DTEND;TZID=UTC:20250403T210000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20250320T143402Z
LAST-MODIFIED:20250403T152106Z
UID:46121-1743706800-1743714000@landvernd.is
SUMMARY:Málþing um áhrif vindorkuvera á náttúru
DESCRIPTION:Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landvernd bjóða til málþings um áhrif virkjunar vindorku á náttúru. Markmið fundarins er að fræðast um þau áhrif sem þessi aðferð til orkuöflunar kemur til með hafa á íslenska náttúru. Sérfræðingar á mismunandi sviðum munu flytja erindi og setjast í lok fundar í pallborð þar sem tekið verður við spurningum úr sal.\nFundurinn verður haldinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og mun formaður umhverfis- og skipulagsráðs Múlaþings einnig veita upplýsingar um það sem sveitarfélagið hefur verið að vinna að í tengslum við vindorkumöguleika og nýtt aðalskipulag.\nÖllum er boðið að koma og fræðast með okkur. Boðið verður upp á léttar veitingar.\n\nDagskrá:19:00 Setning fundar19:05 Þorvarður Árnason: Vindorkuvæðing Íslands – áhrif á landslag og víðerni19:20 Vigdís Freyja Helmutsdóttir: Áhrif vindorkuvera á búfénað og gróðurfar19:35 Jóhann Óli Hilmarsson: Fuglar og vindmyllur\, rannsóknir og áhrif19:50 Stutt kaffihlé20:00 Andrés Skúlason: Áhrif á umhverfi og samfélag20:15 Jónína Brynjólfsdóttir: Vindorkunýting á forsendu sveitarstjórna20:30 Pallborðsumræður21:00 Fundi slitið\nFundinum verður streymt en aðeins fólki í sal býðst að bera fram spurningar\nHlekkur á streymi\nLjósmynd: Skarphéðinn G. Þórisson. Snæfell.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/vindorka-nattura/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/03/Vindorka-nattura-TAKA-32.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250403T170000
DTEND;TZID=UTC:20250403T183000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20250326T104054Z
LAST-MODIFIED:20250326T104054Z
UID:46147-1743699600-1743705000@landvernd.is
SUMMARY:Drög að nýrri stefnu Landverndar kynnt á Egilsstöðum
DESCRIPTION:Þorbjörg María Þorbjarnardóttir\, formaður Landverndar og Björg Eva Erlendsdóttir\, framkvæmdastjóri Landverndar\, kynna drög að nýrri stefnu Landverndar. \n\nFélagar í Landvernd hafa tækifæri til að koma með athugasemdir við drögin. \n\nSjáumst í Tehúsinu\, Egilsstöðum\, 3. apríl milli 17:00 og 18:30.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/drog-ad-nyrri-stefnu-landverndar-kynnt-a-egilsstodum/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/03/Hafdu-ahrif-drog-ad-nyrri-stefnu-Landverndar-kynnt.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250402T170000
DTEND;TZID=UTC:20250402T183000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20250330T150458Z
LAST-MODIFIED:20250331T131944Z
UID:46154-1743613200-1743618600@landvernd.is
SUMMARY:Náttúruverndarstefna í Leifshúsum á Norðurlandi
DESCRIPTION:Landvernd fer í hringferð um Ísland í næstu viku og heimsækir náttúruverndarfélög og kynnir sér náttúru\, landsvæði\, framkvæmdasvæði og skógrækt með leiðsögn heimafólks á hverjum stað. \nNáttúruverndarfólk sem vill slást í hópinn\, eða hefur mikilvæga sögu að segja getur haft samband við Landvernd á leið um landið\, í netfangið bjorgeva@landvernd.is og þorgerður@landvernd.is. \nFyrsta stopp. \nSamtök um náttúruvernd á Norðurlandi\, (SUNN) og Landvernd boða til félagsfundar um stefnumótun í náttúruvernd. \n\nFundurinn hefst klukkan 18.00 og lýkur klukkan 19.30.\nDagskrá:\nKynning Sunn\, Rakel Hinriksdóttir\, formaður.\nKynning Landvernd\, Þorgerður María Þorbjarnardóttir\, formaður.\nStefnumótun og strengir samstilltir um umhverfis\, loftslags og náttúruvernd.\nÖll velkomin.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/natturuverndarstefna-i-leifshusum-a-nordurlandi/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250313T200000
DTEND;TZID=UTC:20250313T220000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20250123T190756Z
LAST-MODIFIED:20250123T190756Z
UID:45810-1741896000-1741903200@landvernd.is
SUMMARY:Vinnustofa í teikningu til áhrifa - Félagakvöld Landverndar
DESCRIPTION:Á félagakvöldi Landverndar í mars ætlar Rán Flygenring að koma til okkar og halda vinnustofu í teikningu til áhrifa.\nRán hefur vakið athygli fyrir margt en meðal annars með því að gefa út nokkrar myndskýrslur um bæði hvalveiðar og fiskeldi.\nÁ vinnustofunni munum við ræða saman um áhrif teikninga og gera teikniæfingar saman. Blöð og pennar verða í boði en fólk er einnig hvatt til þess að koma með sín eigin teiknigögn.\nViðburðurinn er fyrir félaga í Landvernd. Öll geta gerst félagar á síðu Landverndar: www.landvernd.is/gerast-felagi/\nLandvernd eru frjáls félagasamtök sem eru rekin með félagsgjöldum og styrkjum. Þú getur haft áhrif með því að ganga í Landvernd.————————————–\nRán hefur sinnt margvíslegum hönnunar- og teiknistörfum á ferlinum; m.a. var hún grafískur hönnuður og listrænn stjórnandi á vinnustofu Atla Hilmarssonar á árunum 2009-2010 og Hirðteiknari Reykjavíkurborgar árið 2011 áður en hún lagðist í tæplega áratugarlangt flakk um heiminn.\nRán er nú sjálfstætt starfandi mynd- og rithöfundur\, listamaður og hönnuður í Reykjavík. Hún hefur skrifað bækur með eigin teikningum og texta og einnig unnið bækur í félagi við aðra. Bækur Ránar hafa komið út á ensku og þýsku\, auk íslensku.\nHún hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga til verðlauna fyrir verk sín\, bæði á Íslandi og erlendis.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/vinnustofa-i-teikningu-til-ahrifa-felagakvold-landverndar/
LOCATION:Skrifstofa Landverndar\, Guðrúnartún 1\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/01/Vinnustofa-i-teikningu.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250224T170000
DTEND;TZID=UTC:20250224T180000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20250220T132949Z
LAST-MODIFIED:20250224T165657Z
UID:45948-1740416400-1740420000@landvernd.is
SUMMARY:Stefnumótunarfundur Landverndar
DESCRIPTION:Félagsfundur Landverndar.\n\nÁfram verður unnið að stefnumótun Landverndar\, mánudaginn 24. febrúar\, klukkan 17:00 – 18:00.\n\nValfrjálst er hvort mætt sé á fundinn í Guðrúnartún 1 eða á Zoom.\n\nHér er hlekkur á fundinn: Join the meeting now\n\n\nUm stefnumótun Landverndar\n\nÍ janúar hófst vinna að endurskoðun stefnu Landverndar. Fjölmennur stefnumótunarfundur var haldinn fyrr í febrúar og ávarpaði orku-\, umhverfis- og loftslagsráðherra fundinn.\nNý stefna verður lögð fram til samþykktar á aðalfundi Landverndar 23. maí.\n\nStefna Landverndar byggir á stefnumótandi félagsfundum sem haldnir eru á þriggja ára fresti. Stefnu Landverndar áranna 2022-2024 er að finna hér: https://landvernd.is/stefna-landverndar-2022-2024/
URL:https://landvernd.is/vidburdur/stefnumotunarfundur-landverndar/
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/02/Stefnumotun-Landverndar.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250210T200000
DTEND;TZID=UTC:20250210T213000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20250210T105905Z
LAST-MODIFIED:20250210T110420Z
UID:45850-1739217600-1739223000@landvernd.is
SUMMARY:Stefnumót við ráðherra
DESCRIPTION:Fyrsti stefnumótunarfundur Landverndar af nokkrum verður haldinn rafrænt þriðjudaginn 11. febrúar frá klukkan 20:00 – 21:30.\nJóhann Páll Jóhannsson\, umhverfis-\, orku- og loftslagsráðherra\, ávarpar fundinn.\nÍ janúar hófst vinna að endurskoðun stefnu Landverndar sem lögð verður fram á aðalfundi. Á félagsfundinum ræðum við stefnuna og þær breytingatillögur sem þegar hafa komið fram um stefnuna.\nNý stefna verður lögð fram til samþykktar á aðalfundi Landverndar.\nStefna Landverndar byggir á stefnumótandi félagafundum sem haldnir eru á þriggja ára fresti. Stefnu Landverndar áranna 2022-2024 er að finna hér: https://landvernd.is/stefna-landverndar-2022-2024/\n\nHér er hlekkur á fundinn:\nhttps://us02web.zoom.us/j/87888394024\n\nFundurinn átti upphaflega að vera í dag en var færður vegna stefnuræðu forsætisráðherra sem var færð til vegna óveðurs í síðustu viku.\n\nVerið öll innilega velkomin!
URL:https://landvernd.is/vidburdur/stefnumot-vid-radherra/
LOCATION:online
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/02/taka-thrju.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250123T200000
DTEND;TZID=UTC:20250123T213000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20250123T185641Z
LAST-MODIFIED:20250123T190038Z
UID:45805-1737662400-1737667800@landvernd.is
SUMMARY:Náttúruverndarsamráð
DESCRIPTION:Kæru náttúruverndarar nær og fjær. Við endutökum leikinn frá í fyrra og boðum til samráðs meðlima og aðildarfélaga Landverndar. Viðburðurinn fer fram á netinu milli 20:00 og 21:30 – 23.01.25.  Á viðburðinum verða umræður um stefnumótun Landverndar sem framundan er og almennar umræður um umhverfismál á Íslandi.\n\nHlökkum til að sjá ykkur!\n\n\nhttps://us02web.zoom.us/j/86398660260 \nFundarboðið er undir viðburðir á facebook og efst í horninu stendur JOIN og þar opnast hlekkur þegar fundur byrjar. \nÞað er ekki nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram\, en þegar til fundar kemur þarf að skrá sig inn með réttu nafni og gjarnan samtökum líka. \nDagskrá: \nÞorgerður fagnar fundargestum segir fá stefnumótun og býður fólki að taka þátt og fer yfir það allra helsta í náttúruvernd sem varðar okkur öll. \nGrænfáninn kynnir sína starfsemi. \nNáttúruverndarfélög Sunn\, Naust\, SVS \, DÍS og fleiri kynna sín stærstu mál. \nInnlegg frá Grímsey um togveiðar í landgrunninu. \nInnlegg frá baráttuhópi um verndun Laugarness. \n  \nBjörg Eva sinnir tímavörslu. \nTvær mínútur á hvert innlegg. \nEftir innlegg eru umræður. BEE heldur áfram að passa að enginn steli fundinum. \n\n  \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/natturuverndarsamrad/
LOCATION:Fjarfundur á Zoom
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/01/Blue-and-Gold-Elegant-Whisky-Tasting-Facebook-Event-Cover.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241212T170000
DTEND;TZID=UTC:20241212T180000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241204T152137Z
LAST-MODIFIED:20241204T152137Z
UID:45692-1734022800-1734026400@landvernd.is
SUMMARY:Hver er tilgangurinn? Kynning á COP16 og COP29 ráðstefnunum
DESCRIPTION:Formaður Landverndar\, Þorgerður María Þorbjarnardóttir\, er nýlega komin heim til Íslands eftir að hafa lagt land undir fót og sótt tvær ráðstefnur Sameinuðu þjóðanna. Ráðstefnurnar sem Þorgerður sótti voru annarsvegar COP16 um samning um líffræðilegan fjölbreytileika\, og haldin var í Cali í Kólumbíu\, og hinsvegar COP29 um samning um loftslagsbreytingar\, sem haldin var í Baku í Azerbaijan. \nRáðstefnurnar voru ólíkar en áttu það sameiginlegt að rifist var um orðalag sem skerpa á hvernig samkomulag næst um þessi stóru málefni samtímans. Þorgerður býður félögum í Landvernd á kynningu um ferðalagið og samningaviðræðurnar. Hvað átti sér stað innan sem utan formlegra samningaviðræða? Hvernig er að fara á tvær stórar ráðstefnur í einni beit? Eru þær einhvers virði? Þessu og fleiru ætlar Þorgerður að leitast við að svara í kynningunni. \nVið hlökkum til að sjá ykkur!
URL:https://landvernd.is/vidburdur/hver-er-tilgangurinn-kynning-a-cop16-og-cop29-radstefnunum/
LOCATION:Hafnar.Haus\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/12/COPkynning_vefur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241207T130000
DTEND;TZID=UTC:20241207T160000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241129T112756Z
LAST-MODIFIED:20241129T112756Z
UID:45657-1733576400-1733587200@landvernd.is
SUMMARY:Aðventuganga og jólatré í Alviðru
DESCRIPTION:Aðventan! \nVið bíðum og notum tímann til að undirbúa hátíð ljóssins. Undir Ingólfsfjalli við Sogið á móts við Þrastarlund er jörðin Alviðra. Þar fögnum við aðventunni með göngu út í vetrarríkið og svo með söng\, jólasögu og piparkökum í hlýjunni inni í gamla bænum. \nAlviðra\, fræðslusetur Landverndar\, er friðland\, náttúruskóli og útvistarparadís með Ingólfsfjall í bakgarðinum. Hér og þar á jörðinni leynast tré sem hafa alla burði til að verða falleg jólatré. Við leitum þeirra í göngunni\, fellum og tökum með heim í bæ. Þessi tré eiga sér framtíð sem jólatré í stofu þátttakenda þegar nær dregur að jólum. \nMæting við gamla bóndabæinn kl. 13:00 laugardaginn 7. desember. Eftir göngu verður boðið upp á heitt að drekka\, piparkökur\, jólasögu og söng í gamla bæjarhúsinu. Ef við komust í stuð göngum við í kringum! \nVið tökum sunnudaginn 8. desember frá\, til vara\, ef veður eru válynd þann 7. desember. Best að fylgjast með fésbókarsíðu Alviðru fræðsluseturs Landverndar til að leita frétta um hvort breyting verður á dagsetningu vegna veðurs. \nVerið velkomin!
URL:https://landvernd.is/vidburdur/adventuganga-og-jolatre-i-alvidru/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/11/alvidra.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20241205
DTEND;VALUE=DATE:20241220
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241125T140946Z
LAST-MODIFIED:20241125T141640Z
UID:45622-1733356800-1734652799@landvernd.is
SUMMARY:Hringrásarjól á Amtsbókasafninu
DESCRIPTION:Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Hringrásarjól Amtsbókasafnsins 2024! Þau eru unnin í samvinnu við Landvernd og Fjölsmiðjuna og hugmyndin fengin að láni frá Norræna Húsinu. \nÍ desembermánuði umlykur hinn sanni jólaandi sýningarrými safnsins. \nUmhverfisvæn innpökkunarstöð verður á sínum stað.\nSkiptihilla sem Fjölsmiðjan lánar verður á staðnum þar sem öllum er velkomið að koma með hluti sem þau eru hætt að nota en vilja gefa framhaldslíf. Einnig er fólki velkomið að taka eitthvað sem gæti nýst þeim. Í hillunni má einnig koma með smádót ef ské kynni að jólasveinar ættu leið hjá. Á fataslá má koma með eða taka spariföt fyrir fólk á öllum aldri\nÍ einu horninu verður svo innskot þar sem skreytt verður með umhverfisvænu jólaskrauti\, annað hvort föndruðu úr endurunnu efni eða fengið í Fjölsmiðjunni. Í kósíhorninu verður hægt að setjast niður og slappa af\, jafnvel lesa blöðin eða nota nuddtækið okkar. \nLíklega á eitthvað eftir að bætast hér við\, fylgist með og verum umhverfisvæn saman í desember! \n—\nWe warmly welcome you to the Amtsbókasafniðs Circular Christmas 2024! They are made in collaboration with Landvernd and Fjölsmiðjan and the idea was borrowed from the Nordic House. \nDuring the month of December\, the true Christmas spirit surrounds the museum’s exhibition space.\nAn environmentally friendly wrapping station will be in place.\nA swap shelf that Fjölsmiðjan will lend will be on site where everyone is welcome to bring items that they have stopped using but want to give a second life to. People are also welcome to take something that could be useful to them. You can also bring small items to the shelf in case Santa Claus happens to be passing by\nYou can bring or take thrifted clothes for people of all ages at the clothes rack.\nIn one corner there will be an insert where it will be decorated with environmentally friendly Christmas decorations\, either handmade from recycled materials or obtained from Fjölsmiðjan. In the cozy corner you can sit down and relax\, even read the newspapers or use our massager. \nThere will probably be more to come\, stay tuned and let’s be eco-friendly together in December!\nWe encourage you to attend the event in an environmentally friendly manner. The bus is free and all buses stop in the city center 300 meters from the museum.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/hringrasarjol-a-amtsbokasafninu/
LOCATION:Amtsbokasafnið a Akureyri\, Brekkugata 17\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/11/467748168_955299309979270_2121737953656853454_n.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241201T120000
DTEND;TZID=UTC:20241201T160000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241125T140012Z
LAST-MODIFIED:20241125T140012Z
UID:45612-1733054400-1733068800@landvernd.is
SUMMARY:HRINGRÁSARJÓL: Jólagjafaskiptimarkaður og silkiprent
DESCRIPTION:Notað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði Norræna hússins\, Landverndar og Grænfánans! *In english below* \nDagskrá\n12:00 – 16:00 Jólahringrásarmarkaðurinn opnar\n13:00 – 16:00 Silkiprent fyrir alla fjölskylduna með BrummBrumm \nJólahringrásarmarkaður:\nÞað sem nýtist þér ekki lengur gæti vel reynst fjársjóður annars – og öfugt! Komdu t.d. með bækur\, leikföng\, spil og skiptu fyrir eitthvað annað. Tilvalið tækifæri til þess að finna umhverfisvænar jólagjafir sem þú getur sett undir tréð með góðri samvisku. Við biðjum þátttakendur vinsamlegast aðeins að koma með hluti sem eru í góðu og nothæfu ástandi. \nSkiptimarkaðsflokkarnir eru:\n• Leikföng\n• Spariföt og prjónuð föt\n• Jólaskraut/jólamunir\n• Bækur og spil\n• Hlutir fyrir heimilið \nSilkiprent:\nBrummBrumm bjóða gestum að silkiprenta eitthvað skemmtilegt í jólapakkann. Komdu með þinn eigin textíl (t.d. boli\, taupoka eða eitthvað annað). \nViðburðurinn er hluti af Aðventudagskrá Norræna hússins og hvatningarátaki Landverndar og Grænfánans um Nægjusaman Nóvember. Við hlökkum til að sjá ykkur og bendum einnig á að Sónó Matseljur verða með sérstakan jólamatseðil og jóladrykki í boði. \nAÐGENGI: Elissa Salur Hefur gott aðgengi en þó er lágur þröskuldur inn í salinn. Á sömu hæð eru aðgengileg salerni. Öll salerni hússins eru kynhlutlaus.\n–\n*EN*\nHave a circular Christmas this year with the Nordic house\, Landvernd and Grænfáninn!\nProgram:\n12:00 – 16:00 Circular Christmas market is open\n13:00 – 16:00 Silkprint workshop with BrummBrumm will be open. \nChristmas swap market:\nOne man’s ”junk” is another man’s treasure! Bring items that you don’t have use for anymore and swap with others. Use the opportunity find environmentally friendly Christmas gifts that you can place under the tree in good conscience. We request that people only bring items that are in good and usable condition. \nThe categories of items that can be brought are the following:\n• Toys\n• Christmas clothing and knitted clothing.\n• Christmas decorations\n• Books and board games\n• Household items \nSilkscreen print:\nBrummBrumm invites families to print something fun to put under the Christmas tree (bring your own textile or use our reusable paper stash). \nThe event is a part of the Advent program of the Nordic house and the awareness campaign „Thrifty November“ by Landvernd and Grænfáninn. We look forward to seeing you. Make sure not to miss out on the new Christmas menu and drinks on offer at Sónó Matseljur. \nACCESSIBILITY: The Auditorium and bathrooms are wheelchair accessible\, please note a small threshold is into Elissa auditorium. Bathrooms are gender-neutral.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/hringrasarjol-jolagjafaskiptimarkadur-og-silkiprent/
LOCATION:Norræna husið
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/11/hringras_norraena.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241128T200000
DTEND;TZID=UTC:20241128T210000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241029T132222Z
LAST-MODIFIED:20241114T140146Z
UID:45227-1732824000-1732827600@landvernd.is
SUMMARY:Er tenging á milli nægjusemi og núvitundar?
DESCRIPTION:Þuríður Helga Kristjánsdóttir núvitundarkennari fjallar um tengslin milli nægjusemi og núvitundar og hvernig einfaldar æfingar geta dregið úr efnishyggju og neysluáráttu\, sem því miður eru áberandi í samfélaginu. Áráttan á ytra verðmætamat\, eins og það að eignast stöðugt meira\, hefur verulegar afleiðingar – ekki aðeins á náttúruna\, heldur einnig á andlega líðan okkar. \nÞuríður mun fjalla um og kenna æfingar sem styrkja gildi á borð við þakklæti\, samkennd og nægjusemi og hvernig þessir þættir hafa jákvæð áhrif á líðan. \nFundurinn fer fram á Zoom: https://us02web.zoom.us/j/87873519462 \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/er-tenging-a-milli-naegjusemi-og-nuvitundar/
LOCATION:Fjarfundur á Zoom
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/10/thuridur_naegjuseminuvitund-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241124T100000
DTEND;TZID=UTC:20241124T123000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241029T120328Z
LAST-MODIFIED:20241029T120328Z
UID:45219-1732442400-1732451400@landvernd.is
SUMMARY:Skammdegisganga í Elliðaárdal
DESCRIPTION:Í tilefni af hvatningarverkefninu Nægjusamur nóvember bjóða Landvernd\, Grænfáninn og Ferðafélag Íslands í skammdegisgöngu\, sunnudaginn 24. nóvember í Elliðaárdal. \nMæting er við Toppstöðina í Elliðaárdal kl. 10:00 og er áætlað að gangan standi til hádegis.   \nÞau Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir leiða gönguna fyrir hönd Ferðafélags Íslands og segja okkur sögur af morðum\, iðnvæðingu Íslands á 18. öld og sýna okkur útilegumannahelli sem fáir vita um. \nÍ lok göngunnar ætlum við síðan að setjast niður saman\, maula á nesti og spjalla. Við hvetjum göngugarpa til að mæta með heitt á brúsa og smurt með! \nHlökkum til að sjá ykkur! \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/skammdegisganga-i-ellidaardal/
LOCATION:Toppstöðin\, Rafstöðvarvegur 4\, Reykjavík\, Elliðaárdalur\, 110\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/10/skammdegisganga_vefur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241123T140000
DTEND;TZID=UTC:20241123T160000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241115T111530Z
LAST-MODIFIED:20241121T140743Z
UID:45445-1732370400-1732377600@landvernd.is
SUMMARY:Hvert stefna flokkarnir í umhverfismálum?
DESCRIPTION:Landvernd\, Ungir umhverfissinnar\, auk fleiri náttúruverndarsamtaka\, bjóða formönnum flokkanna til sín að ræða stefnur flokka í umhverfis- og loftslagsmálum. \nVerndun loftslags og náttúru eru mikilvægustu málefni samtímans\, við eigum allt okkar undir heilbrigðum hringrásarkerfum jarðarinnar. Loftslagsbreytingar og hnignun vistkerfa hafa þegar mikil áhrif á líf okkar allra! \nFulltrúar flokkanna taka þátt í pallborði og ræða stefnur sínar og Ungir Umhverfissinnar mæta með einkunnagjöf Sólarinnar\, þar sem gefin eru stig fyrir umhverfis- og loftslagsmál í stefnum allra stjórnmálaflokka. Stigagjöfin sýnir styrkleika og veikleika og stöðu flokkanna. \n📍 Fundurinn fer fram laugardaginn 23. nóvember\, kl. 14:00 í sal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8. Fundinum verður streymt. \nÁtta flokkar hafa staðfest fulltrúa fyrir sína hönd:\n– Sjálfstæðisflokkur: Guðlaugur Þór Þórðarson\n– Vinstri græn: Svandís Svavarsdóttir\n– Viðreisn: Aðalsteinn Leifsson\n– Píratar: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir\n– Sósíalistaflokkurinn: Sanna Magdalena Mörtudóttir\n– Framsókn: Halla Hrund Logadóttir\n– Miðflokkurinn: Bergþór Ólason\n– Samfylkingin: Þórunn Sveinbjarnardóttir\n– Lýðræðisflokkurinn: Arnar Þór Jónsson \n/// \nDagskrá fundar: \nLjóti kór\, söngur. \nKynning\, Guðmundur Steingrímsson\, formaður Landverndar stýrir. \nPallborð með frambjóðendum. Með umræðustjórn fara Stefán Jón Hafstein og Björg Eva Erlendsdóttir. \nSólin. Snorri Hallgrímsson\, forseti Ungra umhverfissinna\, afhendir flokkunum Sólarstig.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/hvert-stefna-flokkarnir-i-umhverfismalum/
LOCATION:Islensk Erfðagreining\, Sturlugata 8\, Reykjavík\, 102
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/11/fundur_VEFcover.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241113T200000
DTEND;TZID=UTC:20241113T210000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241105T145558Z
LAST-MODIFIED:20241105T150418Z
UID:45329-1731528000-1731531600@landvernd.is
SUMMARY:Kynslóð eftir kynslóð: Spjall um nægjusemi
DESCRIPTION:Miðvikudagskvöldið 13. nóvember standa Landvernd og Grænfáninn\, í samstarfi við Saman gegn sóun\, fyrir kynslóðaspjalli í Hannesarholti\, frá kl. 20-21. Þar ræða fulltrúar þriggja kynslóða um nægjusemi og ýmsar hugleiðingar tengdar henni. Gunnar Hersveinn\, rithöfundur og heimpsekingur\, leiðir spjallið.  \nHvað þýðir nægjusemi í dag? Getur nægjusemi stuðlað að aukinni hamingju og frelsi? Hvernig líta ólíkar kynslóðir á nægjusemi? \nGunnar Hersveinn\, rithöfundur og heimpsekingur\, mun leiða spjall á milli fulltrúa þriggja ólíkra kynslóða þar sem þessum og fleiri spurningum og hugleiðingum verður velt upp. Áheyrendum býðst síðan að taka virkan þátt\, með spurningum og eigin skoðunum og upplifunum. \nViðburðurinn er hluti af hvatningarátaki Landverndar og Grænfánaverkefnis undir heitinu Nægjusamur nóvember. Markmiðið er að upphefja nægjusemi sem jákvætt skref fyrir okkur sem einstaklinga og samfélag til þess að stuðla að góðu og heilbrigðu lífi og minnka um leið vistsporið okkar. Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins og áhersla á nægjusemi er mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað. \nTökum virkan þátt í að endurstilla neyslumenningu okkar\, náttúrunni og okkur til bóta. Við hlökkum til að sjá sem flest!\nNánari upplýsingar um átakið má finna hér.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/kynslod-eftir-kynslod-spjall-um-naegjusemi-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/11/Kynslodaspjall-Vefur-2.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241112T200000
DTEND;TZID=UTC:20241112T210000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241025T113644Z
LAST-MODIFIED:20241025T113644Z
UID:45179-1731441600-1731445200@landvernd.is
SUMMARY:Kynslóð eftir kynslóð: Spjall um nægjusemi
DESCRIPTION:Þriðjudagskvöldið 12. nóvember standa Landvernd og Grænfáninn\, í samstarfi við Tehúsið\, fyrir kynslóðaspjalli í Tehúsinu á Egilsstöðum\, frá kl. 20-21. Þar ræða fulltrúar þriggja kynslóða um nægjusemi og ýmsar hugleiðingar tengdar henni.   \nVissir þú að nægjusemi er nauðsynlegt skref í loftslagsbaráttunni og í átt að sjálfbærri þróun? En hvað þýðir nægjusemi í dag? Hvernig líta ólíkar kynslóðir á nægjusemi? Getur nægjusemi stuðlað að aukinni hamingju? \nÞað eru þau Guðmundur Ármannsson\, bóndi á Vaði\, Guðrún Schmidt hjá Landvernd\, og Glúmur Björnsson\, jarðfræðingur sem munu ræða þessar hugleiðingar á kynslóðaspjallinu. Áheyrendur  býðst síðan að taka virkan þátt í spjallinu með spurningum og eigin skoðunum og upplifunum. \nViðburðurinn er hluti af hvatningarátaki Landverndar og Grænfánaverkefnis undir heitinu Nægjusamur nóvember. Markmiðið er að upphefja nægjusemi sem jákvætt skref fyrir okkur sem einstaklinga og samfélag til þess að stuðla að góðu og heilbrigðu lífi og minnka um leið vistsporið okkar. Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins og áhersla á nægjusemi er mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað. \nTökum virkan þátt í að endurstilla neyslumenningu okkar\, náttúrunni og okkur til bóta. Við hlökkum til að sjá sem flest!\nNánari upplýsingar um átakið má finna hér.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/kynslod-eftir-kynslod-spjall-um-naegjusemi/
LOCATION:Tehusið\, Kaupvangur 17\, Egilsstaðir\, 700\, Iceland
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/10/Kynslodaspjall-Vefur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241106T170000
DTEND;TZID=UTC:20241106T183000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241024T135912Z
LAST-MODIFIED:20241028T142150Z
UID:45135-1730912400-1730917800@landvernd.is
SUMMARY:Kjósum nægjusemi
DESCRIPTION:Stígðu skrefið að aukinni hamingju og minna vistspori með því að velja nægjusemi. \nLandvernd og Neytendasamtökin bjóða á fræðslustund um nægjusemi og neysluhyggju\, miðvikudaginn 6. nóvember kl. 17:00-18:30\, á Loft hostel. Fyrir þau sem ekki komast á svæðið verður viðburðinum streymt í gegnum Facebook síðu Landverndar. Ath. að þó verður ekki hægt að streyma umræðunum í lokin.  \n„Nægjusemi – fyrir þig og umhverfið\,“ er erindi Guðrúnar Schmidt\, sérfræðings hjá Landvernd. Nægjusemi stuðlar ekki aðeins að aukinni hamingju og frelsi\, heldur er hún grunnforsenda sjálfbærrar þróunar og árangri í loftslagsmálum. Guðrún kynnir fyrir okkur hugtakið nægjusemi\, stöðu þess í vestrænum heimi og mikilvægi þess fyrir nútíð og framtíð – ekki síst í tengslum við loftslagsmál. \n„Er ekki bara komið nógember?“\, Breki Karlsson\, formaður Neytendasamtakanna\, fjallar um örfá atriði sem gott er að hafa í huga áður en þú sankar að þér öllu draslinu á kaupgleðileikjunum í nóvember. \nNægjusamur nóvember er hvatningarátak Landverndar og Grænfánans og er hugsað sem mótsvar við neysluhyggjunni sem einkennir þennan mánuð. Fyrirlesturinn er einn af mörgum viðburðum í Nægjusömum nóvember. \nGerum nægjusemi að nýja norminu! \nHlökkum til að sjá ykkur! \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/kjosum-naegjusemi/
LOCATION:Loft\, Bankastræti 7\, Reykjavik\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/10/kjosum_naegju_Loft_vefur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241102T140000
DTEND;TZID=UTC:20241102T220000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20241101T114637Z
LAST-MODIFIED:20241101T114637Z
UID:45308-1730556000-1730584800@landvernd.is
SUMMARY:COP RVK ~ Hátíð líffræðilegrar fjölbreytni og loftslagsaðgerða\, HREKKJAVÖKUBALL LÍFVERANNA
DESCRIPTION:/english below/\nUngir umhverfissinnar blása til allsherjar hátíðar í tilefni COP16 og COP29\, aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og loftslagsbreytingar. Hvað þýðir þetta alltsaman? og hvað er hægt að gera?? \nMálþing\, búningasmiðja ÝRÚRARÍ\, listasýning\, loftslagsvænn kvöldverður og hrekkjavökuball lífveranna  \nVið höfum fengið til liðs við okkur stórkostleg systursamtök og fjöldan allan af aktívistum og listafólki til þess að taka þátt\, því loftslagsaðgerðir og náttúruvernd GETA OG VERÐA að fara hönd í hönd  \nDAGSKRÁ 2.NÓVEMBER \n14-18 BÚNINGASMIÐJA ÝRÚRARÍ – breyttu gamalli peysu í glæsielgan búning fyrir ballið\n14:00 LOFTSLAGSMÁL OG LÍFFRÆÐILEG FJÖLBREYTNI 101 – örerindi Ungra umhverfissinna á mannamáli\n15:00 Pallborð: LAUSNIR ~ LOFTSLAGSAÐGERÐIR OG NÁTTÚRUVERND HÖND Í HÖND\n16:00 Pallborð: SÓLIN OG SVO KOM TUNGLIÐ ~ hvernig eru stjórnvöld að standa sig? Fulltrúar flokka mætast í pallborði.\n17-19 HAPPY HOUR ~ tilboð á barnum\n18-20 LOFTSLAGSVÆNN KVÖLDVERÐUR ~ dýrindis ruslað grænkerafæði í boði Ungra umhverfissinna\n20-22 HREKKJAVÖKUBALL LÍFVERANNA ~ klæddu þig upp sem uppáhalds lífveran þín og dansaðu af þér rassinn. KUSK og Óviti + SAKANA. \nFrítt er inn og hvetjum við ung sem aldin að mæta og baða sig í von og gleði\, lausnum og listaverkum. Í Iðnó er hjólastólaaðgengi og verða erindi og pallborð táknmálstúlkuð. Viðburðurinn hlaut styrk úr Loftslagssjóði ungs fólks í Reykjavík. Þökkum við Reykjavíkurborg og Bloomberg Philanthropies kærlega fyrir. \n~~~~~\nThe Icelandic Young Environmentalists celebrate COP16 and COP19\, the UN Conferences on climate change and biological diversity\, with a lively festival in Iðnó and you are invited!! What does it all mean and what can we do?? \nSeminar\, costume workshop with ÝRÚRARÍ\, artworks\, climate friendly dinner\, and halloween party with a biodiversity theme WHAT’S THERE NOT TO LOVE  \nWe’re teaming up with sister organizations and an army of activists and artists to remind us that nature conservation and climate actions CAN AND MUST go hand in hand  \nPROGRAM 2nd OF NOVEMBER \n14-18 ÝRÚRARÍ MENDING WORKSHOP ~ upcycle old clothing to a gorgeous costume for the night\n14:00 CLIMATE CHANGE AND BIOLOGICAL DIVERSITY 101 ~ tiny lecture by Ungir umhverfissinnar\n15:00 Panel: SOLUTIONS ~ CLIMATE SOLUTIONS AND NATURE CONSERVATION HAND IN HAND\n16:00 Panel: SÓLIN 2024? ~ how are the politicians handling it? Party representatives meet in a panel.\n16-19 HAPPY HOUR ~ offers at the bar\n18-20 CLIMATE FRIENDLY DINNER ~ Ungir umhverfissinnar offer a delicatessen dumpster dived dinner\n20-22 BIODIVERSITY THEMED HALLOWEEN PARTY ~ come dance as your favorite living creature. KUSK & Óviti + SAKANA.\nThe full program is free of charge and open to all\, full of hope and happiness\, action and artworks. Iðnó has wheelchair access and talks+panels will be interpereted to sign language. The event got funding from Reykjavík youth climate fund. Thank you Reykjavík municipality and Bloomberg Philanthrophies.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/cop-rvk-hatid-liffraedilegrar-fjolbreytni-og-loftslagsadgerda-hrekkjavokuball-lifveranna/
LOCATION:iðnó\, Vonarstræti 3\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/11/coprvk.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20241007T200000
DTEND;TZID=UTC:20241007T220000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240905T111326Z
LAST-MODIFIED:20240905T111326Z
UID:44676-1728331200-1728338400@landvernd.is
SUMMARY:Félagakvöld: Gagnvirk vinnustofa um aðgerðir í loftslagsmálum
DESCRIPTION:FJARFUNDUR \n\n\nHefur þú einhvern tíma velt því fyrir þér hvað þarf til\, til að halda hlýnun jarðar fyrir neðan  1\,5°C eða sem næst 2°C? \nEr nóg að fjárfesta í grænni orku til að ná loftslagsmarkmiðum? Getum við bætt orkunýtni til að draga úr hlýnun? Hvaða áhrif hafa tæknilausnir á borð við Carbfix? Getum við plantað nægilega mikið af trjám og hvað ef við gerumst öll grænmetisætur? Climate Interactive og MIT hafa þróað kvikt kerfislíkan sem stjórnvöld og alþjóðastofnanir nota til að spá fyrir um áhrif ólíkra aðgerða á hlýnun jarðar – auk hliðaráhrifa á jöfnuð\, heilsu og líffræðilegan fjölbreytileika. Markmiðið er að svara stóru spurningunni: Hvaða aðgerðir duga til að ná loftslagsmarkmiðum? Á vinnustofu Landverndar fá þátttakendur tækifæri til prófa ólíkar lausnir. Tvær vinnustofur eru í boði\, á staðnum og á netinu. \nÁ vinnustofunni munum við nota En-ROADS loftslagsherminn til að meta áhrif mismunandi aðgerða á loftslagsbreytingar. Við munum einnig setja upp leik þar sem þátttakendur taka að sér hlutverk samningamanna\, eins og fulltrúa Evrópusambandsins\, eyríkja eða orkuframleiðenda. \nLeiðbeinendur á vinnustofunni eru Aðalsteinn Leifsson\, fyrrverandi ríkissáttasemjari og sérfræðingur í samningatækni og Ágústa Þóra Jónsdóttir\, fyrrverandi varaformaður í Landvernd og doktorsnemi í umhverfis og auðlindafræði í HÍ. \nKomdu og lærðu um hvaða aðgerðir virka best til að draga úr hlýnun jarðar og hvernig við getum náð markmiðunum okkar saman. \nFélagakvöld Landverndar eru fyrir félaga í Landvernd. Endilega skráið ykkur og takið þátt í starfinu.\nhttps://landvernd.is/gerast-felagi/ \n  \nFundurinn fer fram á Zoom – https://us02web.zoom.us/j/89604210925 \n  \nAthugið að skráning er nauðsynleg. \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn *Netfang *Símanúmer		\n			Símanúmer nafn Landvernd?\n			\n		\n		Ertu skráð/ur í Landvernd?JáNei\, en bæti úr því fyrir vinnustofunaVinnustofan fer fram á fjarfundaformi og er ætluð félögum í Landvernd.\nSkrá mig    \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/felagakvold-gagnvirk-vinnustofa-um-adgerdir-i-loftslagsmalum/
LOCATION:Fjarfundur á Zoom
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/09/felagakvold_gagnvirk_vinnustofa-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240930T150000
DTEND;TZID=UTC:20240930T170000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240905T102545Z
LAST-MODIFIED:20240918T094938Z
UID:44717-1727708400-1727715600@landvernd.is
SUMMARY:Gagnvirk vinnustofa um loftslagsaðgerðir
DESCRIPTION:Mánudaginn 30. september frá kl 15:00-17:00 í Háskólanum í Reykjavík\, stofu M208 🗣️ \n  \nHefur þú einhvern tíma velt því fyrir þér hvað þarf til\, til að halda hlýnun jarðar fyrir neðan  1\,5°C eða sem næst 2°C? \nEr nóg að fjárfesta í grænni orku til að ná loftslagsmarkmiðum? Getum við bætt orkunýtni til að draga úr hlýnun? Hvaða áhrif hafa tæknilausnir á borð við Carbfix? Getum við plantað nægilega mikið af trjám og hvað ef við gerumst öll grænmetisætur? Climate Interactive og MIT hafa þróað kvikt kerfislíkan sem stjórnvöld og alþjóðastofnanir nota til að spá fyrir um áhrif ólíkra aðgerða á hlýnun jarðar – auk hliðaráhrifa á jöfnuð\, heilsu og líffræðilegan fjölbreytileika. Markmiðið er að svara stóru spurningunni: Hvaða aðgerðir duga til að ná loftslagsmarkmiðum? Á vinnustofu Landverndar fá þátttakendur tækifæri til prófa ólíkar lausnir. \nÁ vinnustofunni munum við nota En-ROADS loftslagsherminn til að meta áhrif mismunandi aðgerða á loftslagsbreytingar. Við munum einnig setja upp leik þar sem þátttakendur taka að sér hlutverk samningamanna\, eins og fulltrúa Evrópusambandsins\, eyríkja eða orkuframleiðenda. \nKomdu og lærðu um hvaða aðgerðir virka best til að draga úr hlýnun jarðar og hvernig við getum náð markmiðunum okkar saman. \nLeiðbeinendur á vinnustofunni eru Aðalsteinn Leifsson\, fyrrverandi ríkissáttasemjari og sérfræðingur í samningatækni\, og Ágústa Þóra Jónsdóttir\, fyrrverandi varaformaður í Landvernd og doktorsnemi í umhverfis og auðlindafræði í HÍ. \n📍 Vinnustofan fer fram í MBA stofu HR\, númer M208 \nVið vekjum athygli á að tvær vinnustofur verða í boði. Sú fyrri er opin öllum og fer fram sem hér segir\, 30. september í Háskólanum í Reykjavík\, en sú seinni verður á fjarfundaformi\, þann 7. október\, fyrir félaga í Landvernd. \n  \nAthugið að skráning á vinnustofuna er nauðsynleg. \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn *Netfang *		\n			Landvernd? skráð/ur í\n			\n		\n		SímanúmerErtu skráð/ur í Landvernd?JáNei\, en bæti úr því fyrir vinnustofunaVinnustofan er opin öllum sem vilja. Við hvetjum þó alla þátttakendur til að ganga í félagið. \n\nÞað tekur enga stund að skrá sig hér: landvernd.is/gerast-felagi/Skrá mig   \nNánari upplýsingar veita: \nBjörg Eva Erlendsdóttir\, framkvæmdastjóri Landverndar – 896 1222. \nLúna Grétudóttir\, upplýsingafulltrúi Landverndar – 848 9258.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/gagnvirk-vinnustofa-um-loftslagsadgerdir/
LOCATION:Háskólinn i Reykjavik\, Menntavegur 1\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/09/Vinnustofa_loftslagsmal-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240921T130000
DTEND;TZID=UTC:20240921T143000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240906T122155Z
LAST-MODIFIED:20240906T130054Z
UID:44756-1726923600-1726929000@landvernd.is
SUMMARY:Félagabíó Landverndar: Ozi - bjargvættur skógarins
DESCRIPTION:Bíósýning \n\nÍ samstarfi við Myndform og Laugarásbíó býður Landvernd skráðum félögum sérstakan afslátt á sýninguna Ozi – Bjargvættur skógarins. Miðaverð fyrir skráða félaga er aðeins 1.000 kr.  \nHér kynnumst við Ozi\, litlum munaðarlausum órangútanapa sem er um það bil að láta til sín taka og bjarga skóginum þar sem hún á heima. Ozi týndi foreldrum sínum þegar heimili þeirra var eyðilagt og hún fær skjól hjá aðilum sem bjarga villtum dýrum sem kenna henni hægt og rólega að tjá sig með táknmáli. Með nýrri færni og náttúrulegum hæfileikum á samfélagsmiðlum er Ozi skyndilega komin með fylgjendur hvaðanæva að úr heiminum. Þegar hún kemst að því að foreldrar hennar gætu enn verið á lífi fer hún af stað að leita að þeim og segja heiminum um leið frá slæmri stöðu regnskógarins áður en það verður of seint. Hún fær hjálp frá apanum Chance og hinum skemmtilega nashyrningi Honkus. Ozi kemst að því að ein rödd getur svo sannarlega breytt heiminum \nVegna takmarkaðs sætisfjölda er mikilvægt að skrá alla sem ætla að mæta. Foreldrar sem mæta með börn þurfa því að taka fram fjölda barna sem koma með á viðburðinn hér að neðan. Börnin þurfa þó ekki að vera skráð sérstaklega í Landvernd. \nSkráning hér að neðan jafngildir plássi á sýninguna – greitt er fyrir miðann á staðnum. \nAthugið að afslátturinn er einungis ætlaður skráðum félögum í Landvernd. Skráðu þig í félagið hér:\nhttps://landvernd.is/gerast-felagi/ \n  \n  \nAthugið að skráning er nauðsynleg. \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Nafn félags *Netfang félags *Netfang ábyrgðaraðila *		\n			í Hvað ábyrgðaraðila\n			\n		\n		símanúmer ábyrgðaraðilaHvað ætlar þitt félag að ganga fyrir í grænu göngunni í ár?Skrá mig    \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/felagabio-landverndar-ozi-bjargvaettur-skogarins/
LOCATION:Laugarasbio\, Laugarás\, Reykjavík\, 104\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/09/Ozi-komin_1920x1080.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240908T093000
DTEND;TZID=UTC:20240908T133000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240823T151708Z
LAST-MODIFIED:20240829T144545Z
UID:44227-1725787800-1725802200@landvernd.is
SUMMARY:Brekkukambsganga Landverndar - Heiðar í háska
DESCRIPTION:Please enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn *Netfang *Símanúmer		\n			Netfang Landvernd? í\n			\n		\n		Ertu skráð/ur í Landvernd?JáNei\, en bæti úr því fyrir ferðinaFerðin er ætluð öllum náttúruunnendum\, en ekki einungis félögum í Landvernd. Við hvetjum þó alla þátttakendur til að ganga í félagið. \n\nÞað tekur enga stund að skrá sig hér: landvernd.is/gerast-felagi/Skrá mig í ferðina  \nSunnudaginn 08. september kl 09:30 🥾 🥾 \nGengið verður upp Brekkukamb frá Miðsandi í Hvalfirði. \nVið hittumst kl 09:30\, við gömlu Þyrilssjoppuna. \nGengið verður sem leið liggur upp á Brekkukamb\, sem er í 647 m hæð (sama hækkun og upp að Steini á Esjunni). \nGert er ráð fyrir að gangan taki allt að fjórar klukkustundir. \nFólk ekur á eigin bílum\, en  fyrir þá sem koma úr Reykjavík verður sameinast í bíla hjá Össuri á Grjóthálsi\, kl. 8:30 \nAllir náttúruunnendur eru hjartanlega velkomnir og athugið að gangan er ekki aðeins fyrir félaga í Landvernd. En við hvetjum auðvitað þátttakendur til að ganga í Landvernd og taka þátt í að verja náttúruna. \nÁformuð eru allt að tólf vindorkuvirki í fyrirhuguðu vindorkuveri á Brekkukambi og verður hvert virki 250 metra hátt. Vindorkuverið á Brekkukambi er áætlað um 50 MW að stærð og á að rísa í landi bæjarins Brekku. Nærsamfélagið hefur veitt harða mótspyrnu enda hefði fyrirhugað iðnaðarver mikil áhrif á alla aðra starfssemi á stóru svæði auk augljósra áhrifa á náttúru og lífríki. Nágrannar óttast að vistkerfum með fuglalífi verði stefnt í hættu\, auk sjón og hljóðmengunar vindorkuvers sem myndi tróna í 900 metra hæð yfir héraði á hæsta fjalli Hvalfjarðarstrandarinnar. \nMætið í meðmælagöngu með landi því heiðarnar eru í hættu. \nFararstjórar eru Páll Ásgeir Ásgeirsson\, Rósa Sigrún Jónsdóttir\, heimafólk í Hvalfirði og fulltrúar Landverndar. \nAthugið að skráning í ferðina er nauðsynleg. \nNánari upplýsingar veita: \nBjörg Eva Erlendsdóttir\, framkvæmdastjóri Landverndar – 896 1222. \nKristín Helga Gunnarsdóttir\, stjórnarfulltrúi í Landvernd – 896 9771. \nLúna Grétudóttir\, upplýsingafulltrúi Landverndar – 848 9258.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/brekkukambsganga-landverndar-heidar-i-haska/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/08/Brekkukam-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240905T200000
DTEND;TZID=UTC:20240905T220000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240816T144633Z
LAST-MODIFIED:20240816T144633Z
UID:43978-1725566400-1725573600@landvernd.is
SUMMARY:Tengslarof náttúru og manns - hvað gerum við nú?
DESCRIPTION:FJARFUNDUR\nHvernig getur núvitund og innri vegvísar veitt styrk og liðveislu í náttúru- og umhverfisvernd?\nVaxandi skilningur er meðal fólks og fræðimanna á að mörg þeirra vandamála sem steðja að heiminum í dag hvort sem er í umhverfis og loftslagmálum\, vegna ófriðar og stríðsátaka\, ófjöfnuðar\, streitu\, einmannaleika sé í raun afleiðing af ákveðnu tengslaleysi sem átt hefur sér stað milli manns og náttúru\, milli fólks og einnig innra með okkur sjálfum. \nÞetta tengslarof á að hluta til uppruna sinn í þeirri orðræðu að maðurinn sé aðskilinn frá náttúrunni og sé henni jafnvel æðri\, að manneskjur séu óháðar hvor annarri og að sumar manneskjur séu æðri öðrum og einnig að hugurinn sé aðskilin frá líkamanum.\nRannsóknir hafa bent á að núvitund er hentug leið til að ná betri tengingu við sjálfan sig\, aðra og náttúruna. Innri þættir\, það er viðhorf og gildismat fólks eru lyftistöng þess viðsnúnings sem þarf að verða til að takast á við áskoranir samtímans. Við þurfum að hjálpast að við að snúa við þeirri framgöngu sem hefur leitt til þess að álag og virðingaleysi sligar fólk\, samfélög og náttúru.\nVið fáum hana Þuríði Helgu Kristjánsdóttur á félagakvöld Landverndar til að fara yfir málin með okkur. \nÞuríður Helga er í kennaranámi í Mindfulness Based Sustainable Transformation sem þróað hefur verið af Inner Green Deal í samstarfi við Inner Development Goals og sjálfbærnideild Háskólans í Lundi. Námsefnið hefur meðal annars verið kennt við umhverfisstofnanir Evrópusambandsins og Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Rannsóknir sýna að 43% þáttakenda finna aukna trú á eigin getu og 83% þátttakenda vilja innleiða meiri sjálfbærni í sínu lífi. \nÖll sem mæta hafa möguleika á að skrá sig á námskeið hjá Þuríði þar sem farið er á dýptina um þessi mál. \nFélagakvöld Landverndar eru fyrir félaga í Landvernd. Endilega skráið ykkur og takið þátt í starfinu.\nhttps://landvernd.is/gerast-felagi/ \n\nFundurinn fer fram á Zoom – https://us02web.zoom.us/j/87366511785
URL:https://landvernd.is/vidburdur/tengslarof-natturu-og-manns-hvad-gerum-vid-nu/
LOCATION:Fjarfundur á Zoom
CATEGORIES:Fundur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/06/Tengslarof.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240831T140000
DTEND;TZID=UTC:20240831T160000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240517T105937Z
LAST-MODIFIED:20240820T152754Z
UID:43223-1725112800-1725120000@landvernd.is
SUMMARY:Alviðruhlaupið - sumardagskrá Alviðru
DESCRIPTION:Hlaupið verður frá Alviðru\, niður að Þrastalundi\, undir brúna og hringur tekinn um Öndverðarnes\, komið er tilbaka og endað við Alviðru. Hringurinn er 7 km langur og lítil hækkun\, en undirlagið er mjög gróft og stundum er kjarrið frekar þétt. Þannig að mælt er með því að flýta sér hægt til að forðast meiðsli. Hringurinn má sjá á Strava á eftirfarandi tengli:\nhttps://strava.app.link/iYHRB8rpaJb \nHlaupaleiðin er afar skemmtileg\, og lítil hækkun\, hlaupið er um kjarr\, og niður að bakka Sogsins. Við lofum fallegu útsýni og frábærri útiveru.\nBoðið er upp á hressingu í Alviðru eftir hlaupið. \nUppskeruhátið er hjá grenndagörðum Alviðru sama dag\, þannig að stuðningsfólk hlaupara getur tekið þátt í henni á meðan hlaupið stendur yfir. \n  \nPlease enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafn		\n			Fullt nafn Símanúmer\n			\n		\n		NetfangSímanúmerSkrá mig
URL:https://landvernd.is/vidburdur/natturuhlaup-sumardagskra-alvidru/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/05/Vidburdir-Alvidra-2024.png
ORGANIZER;CN="Landvernd":MAILTO:landvernd@landvernd.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240825T140000
DTEND;TZID=UTC:20240825T160000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240517T110359Z
LAST-MODIFIED:20240517T110359Z
UID:43226-1724594400-1724601600@landvernd.is
SUMMARY:Fræðsluganga við rætur Ingólfsfjalls - sumardagskrá Alviðru
DESCRIPTION:Sunnudaginn 25. ágúst verður fræðsluganga um jarðfræði Ingólfsfjalls og umhverfis. \nFræðslugangan hefst kl. 14:00 og stendur yfir í einn og hálfan tíma. Gengið verður upp í hlíðar Ingólfsfjalls og leitað ummerkja jökla og brims. Fólki er frjálst að ganga á topp Ingólfsfjalls að fræðslugöngu lokinni eða fylgja leiðsögumanni til baka að Alviðru. Boðið verður upp á kaffi og spjall í húsnæði Alviðru að göngu lokinni. Gott er að taka með sér lúpu eða stækkunargler\, áttavita\, steinabók og vatn að drekka. Gangan hentar vel fyrir börn sem fullorðna. \nÞorgerður María Þorbjarnardóttir\, jarðfræðingur og formaður Landverndar leiðir gönguna.\nUpphafsstaður er bæjarhlaðið að Alviðru.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fraedsluganga-vid-raetur-ingolfsfjalls-sumardagskra-alvidru/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/05/Fraedsluganga.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240818T140000
DTEND;TZID=UTC:20240818T170000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240618T115453Z
LAST-MODIFIED:20240812T162528Z
UID:43939-1723989600-1724000400@landvernd.is
SUMMARY:Veiðidagur í Soginu
DESCRIPTION:Veiðidagur í Soginu í samstarfi við Starir ehf. \nHefur þig dreymt um að kasta fyrir lax í einstakri náttúrufegurð? \nSunnudag 18. ágúst bjóða Alviðra og veiðifélagið Starir ehf gestum að kynna sér lax- og silungsveiði í Soginu\, standa á árbakkanum og kast agni fyrir fisk. \nSogið er einstakt fljót sem fellur úr Þingvallavatni um 19 km leið þar til það sameinast Hvítá og saman mynda þessi tvö ólíku vatnsföll Ölfusá\, vatnsmestu á landsins. Sogið er vatnsmesta lindá landsins. Fljótið hefur löngum verið vin stangveiðimanna vegna náttúrufegurðar og rómaðrar lax- og silungsveiði. \nMæting á hlaðinu í Alviðru sunnudaginn 18. ágúst kl. 14:00 þar sem veiðidagurinn verður undirbúinn. Þá verður farið niður að bökkum Sogsins til að njóta náttúrunnar og fara yfir nokkur undirstöðuatriði í stangveiði með aðstoð starfsmanna Starir ehf. Að lokum er gestum boðið í kakó og kleinur í Alviðrubænum. Reiknað er með að dagskrá ljúki kl. 17:00. \nVið mælum með að koma með vöðlur eða góð stígvel\, og að sjálfsögðu að búa sig almennt vel til útiveru. \nÍ sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir öðrum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins hér: https://landvernd.is/sumardagskra-alvidru-2024/
URL:https://landvernd.is/vidburdur/veididagur-i-soginu/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/06/I-samstarfi-vid-Starir-ehf.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240811T093000
DTEND;TZID=UTC:20240811T140000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240606T131154Z
LAST-MODIFIED:20240823T125530Z
UID:43845-1723368600-1723384800@landvernd.is
SUMMARY:Grjóthálsganga Landverndar - Heiðar í háska
DESCRIPTION:Please enable JavaScript in your browser to complete this form.Fullt nafnNetfangSímanúmer		\n			Fullt skráð/ur nafn\n			\n		\n		Ertu skráð/ur í landvernd?JáNei\, en bæti úr því fyrir ferðinaFerðin er ætlum félögum Landverndar. Það tekur enga stund að skrá sig hér: landvernd.is/gerast-felagi/Skrá mig í ferðina  \nSunnudaginn 11. ágúst kl 09:30 🥾 🥾 \nGengið verður eftir Grjóthálsi frá Króki að Skarðshömrum í Norðurárdal\, Borgarbyggð. \nVið leggjum af stað gangandi frá hliðinu í Króki kl. 09:30. \nGengið verður upp að Fiskivatni og að hinni fornu Fiskivatnsrétt. Þaðan liggur leiðin eftir Grjóthálsinum um fagurt og gróið heiðarland\, vatnaperlur\, mýrlendi\, mela og mólendi og niður Skarðið að Skarðshömrum. \nGönguleiðin er 15 km löng og laus við stíga og stikur í hæðóttu landi og er gangan ætluð vönu þúfnagöngufólki. Áætlað er að koma að Skarðshömrum síðdegis. \nÚtsýnið frá Grjóthálsi er vítt og fagurt um Borgarfjarðarhérað og Baulutindur fylgir okkur eftir og vakir yfir göngufólki. Við ætlum að skoða svæði sem erlend stórfyrirtæki og innlendir húskarlar og lukkuriddarar þeirra ásælast undir stóriðju í vindorku og öll þau svæði sem verða fyrir skaða ef af þessum sturluðu áformum verður. \nMætið í meðmælagöngu með landi því heiðarnar eru í hættu. \nLeiðsögumenn eru af heimaslóð: \n* Thelma Harðardóttir á Skarðshömrum\n* Guðrún Sigurjónsdóttir og Eiður Ólason á Glitsstöðum\n* Kristín Helga Gunnarsdóttir í Króki \nAthugið að skráning í ferðina er nauðsynleg.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/grjothalsganga-landverndar-heidar-i-haska/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/06/Baula-Grabrok-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240623T130000
DTEND;TZID=UTC:20240623T180000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240516T140216Z
LAST-MODIFIED:20240612T103532Z
UID:43206-1719147600-1719165600@landvernd.is
SUMMARY:Jónsmessuganga - sumardagskrá Alviðru
DESCRIPTION:Sunnudag 23. júní kl. 13:00-18:00 \nUpp á Ingólfsfjall – Jónsmessuganga \nIngólfsfjall er 551 m hátt virðulegt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu\, í vestur\, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt. \nIngólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann i vetursetu undir Ingólfsfjalli á leið til Reykjavíkur\, að því  er segir í Landnámu\, og flutti frá Reykjavík gamall maður aftur að fjallinu og lauk þar ævidögum sínum. \nGengið verður frá bænum Alviðru (Sjá á korti)  eftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól\, þar sem Ingólfur landsnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp og niður er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Ætla má að gangan taki um 4  klukkustundir. \nMunið göngustaf\, haldgóða skó\, hlífðarföt og nestisbita. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson fv. formaður Landverndar sem oft hefur gengið á fjallið. \nBoðið verður upp á kakó og kleinur í bænum að aflokinni göngu. \nÞeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða\, fallega\, vel  merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst. \nAllir eru hjartanlega velkomnir\, en gott væri að fá vísbendingu um fjölda gesta og göngumanna með að senda tölvupóst á alvidra@landvernd.is. \n  \nAlviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðanes II er eign Árnesinga og er einnig friðland með merktum gönguleiðum og opið almenningi. \nStaðsetning Alviðru: https://ja.is/kort/?d=hashid%3AbqpbZ&x=402950&y=390092&type=map&nz=13.70 \nÍ sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir öðrum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins hér: https://landvernd.is/sumardagskra-alvidru-2024/ \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/jonsmessuganga-sumardagskra-alvidru/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/05/Vidburdir-Alvidra-2024-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240615T140000
DTEND;TZID=UTC:20240615T160000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240516T134135Z
LAST-MODIFIED:20240612T140753Z
UID:43201-1718460000-1718467200@landvernd.is
SUMMARY:Smádýralíf við Sogið - Sumardagskrá Alviðru
DESCRIPTION:Laugardaginn 15. júní kl. 14:00 mun Gísli Már Gíslason skordýrafræðingur\, fræða okkur um heim skordýranna.\nSkordýr eru fjölbreyttasti flokkur dýra á jörðinni og á Íslandi hefur skordýrum fjölgað undanfarin ár af ýmsum ástæðum. \nMæting á hlaðinu í Alviðri og svo verður farið að bökkum Sogsins\, vatnsmestu lindá landsins. Gengið verður með bökkum fljótsins og teknir upp steinar úr vatninu við bakkana og skoðað smádýralíf á þeim\, sem er aðallega rykmýslirfur og bitmýslirfur. Einnig eru þar vorflugnalirfur\, og a.m.k. tvær aðrar ættir tvívængja\, lækjarfluga og ránfluga. \nOfan vatns er hægt að háfa fullorðnar flugur þessara skordýra\, sem og skordýr sem lifa allan sinn aldur á landi. Eftir skoðunaferðina verður boðið upp á kakó og kleinur í bóndabænum og samræður um mikilvægi skordýranna í lífríki Íslands.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/smadyralif-i-og-vid-sogid-sumardagskra-alvidru/
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/05/Vidburdir-Alvidra-2024-2.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240608T140000
DTEND;TZID=UTC:20240608T160000
DTSTAMP:20260406T194820
CREATED:20240516T133809Z
LAST-MODIFIED:20240516T133809Z
UID:43198-1717855200-1717862400@landvernd.is
SUMMARY:Fuglar og flóra við Sogið - sumardagskrá Alviðru
DESCRIPTION:Í júní eru dagarnir langir og náttúran skartar sínu fegursta.\n\nLaugardaginn 8. júní kl. 14:00 -16:00 munu náttúrufræðingarnir  Rannveig Thoroddsen og Einar Þorleifsson  leiða létta og skemmtilega fræðslugöngu um Þrastarskóg. Litið verður eftir foldarskarti í skógarbotni og lagt við hlustir eftir fuglasöng á grein eða kvaki á Soginu.\n\nGangan er létt og hentar allri fjölskyldunni. Hún hefst við Alviðru og að lokinni göngu er boðið upp á kaffi/kakó og kleinur í Alviðru.  Alviðra er í Ölfusi\, undir Ingólfsfjalli: Sjá á korti 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fuglar-og-flora-vid-sogid-sumardagskra-alvidru/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/05/7.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR