BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Landvernd
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250607T140000
DTEND;TZID=UTC:20250607T170000
DTSTAMP:20260406T193940
CREATED:20250602T180231Z
LAST-MODIFIED:20250602T180231Z
UID:47199-1749304800-1749315600@landvernd.is
SUMMARY:Fuglalíf við Sogið
DESCRIPTION:Sogið og umhverfi þess er fuglaparadís. Laugardaginn 7. júní kl. 14:00 munu tveir félagar í Fuglavernd leiða fuglaskoðun og jafnvel fuglahlustun við þessa vatnsmestu lindá Íslands. \nFerðin hefst við Alviðrubæinn kl. 14. Mörg bílastæði eru við fjóshlöðuna. Gengið verður að Sogi\, hlustað og skimað eftir fuglum. Takið gjarnan með ykkur sjónauka\, og gleymið ekki börn eru hjartanlega velkomin. Mælt er með hlýjum hlífðarfatnaði því oft er staldrað við\, hlustað og jafnvel horft lengi. \nFuglaskoðunin varir í  um 2  klukkutíma. Síðan verður fuglaspjall í Alviðru. Landverndarkakó og kleinur verða í boði. Þá verður hægt að skoða og ræða þá uppstoppuðu fugla sem eru geymdir í bænum. Allir velkomnir. \n14:00 Fuglaskoðun hefst. \n16: 00 Kakó\, kleinur og spjall. \nAlviðra er staðsett við Biskupstungubraut undir Ingólfsfjalli á mótsvið Þrastarlund\, um 10 km frá Selfossi. \nSumarkveðja\, Landvernd og Fuglavernd
URL:https://landvernd.is/vidburdur/fuglalif-vid-sogid/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/SindriSkulason_straumond.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250614T140000
DTEND;TZID=UTC:20250614T160000
DTSTAMP:20260406T193940
CREATED:20250603T113836Z
LAST-MODIFIED:20250603T113836Z
UID:47203-1749909600-1749916800@landvernd.is
SUMMARY:Lífið í og við Sogið 
DESCRIPTION:Laugardaginn 14. júní 2025 kl. 14 – 16 munu náttúrufræðingarnir Einar Þorleifsson\, Rannveig Thoroddsen og Skúli Skúlason\, leiða létta fræðslugöngu um Þrastaskóg og Sogið. Litið verður eftir foldarskarti í skógarbotni og lagt við hlustir eftir fuglasöng á grein eða kvaki á Soginu\, um leið og fræðst verður um lífríki Sogsins\, tengslum þess við Þingvallavatn\, með áherslu á fiska\, og dregin fram sérstaða þess og verðmæti og sett í alþjóðlegt samhengi. \nDagskráin hefst á hlaði Alviðru\, sem er fræðslusetur Landverndar. Síðan verður haldið að Þrastalundi og gengið um skóginn og meðfram Soginu. Fræðslugangan er ætluð fólki á öllum aldri og börnin eru svo sannarlega velkomin. Takið með viðeigandi hlífðarfatnað og kíkir gæti komið að notum. Við lok göngu verða þjóðlegar veitingar í boði í Alviðrubænum.  \nSogið\, Alviðrujörðin og Þrastaskógur er ævintýraheimur. Verið velkomin.  \nAlviðrunefnd Landverndar
URL:https://landvernd.is/vidburdur/lifid-i-og-vid-sogid/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Blaberjakoppar-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250615T090000
DTEND;TZID=UTC:20250615T150000
DTSTAMP:20260406T193940
CREATED:20250613T094129Z
LAST-MODIFIED:20250613T094203Z
UID:47252-1749978000-1749999600@landvernd.is
SUMMARY:Árleg lúpínuhringferð um Reykjanesfólkvang
DESCRIPTION:Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd (Sjá) eru deild í Landvernd með það helsta markmið að gefa fólki tækifæri til að vinna að náttúruvernd.\nÞetta er góður félagsskapur sem nýtir krafta sína í skemmtilegum verkefnum í þágu náttúruverndar.\nÍ áratug höfum við vaktað nokkra staði í Reykjanesfólkvangi\, takmarkað útbreiðslu lúpínu til svæða sem eru að mestu lúpínulaus. Það gerum við árlega með því að hemja þar útbreiðslu lúpínu og höfum einnig stöðvað jarðvegseyðingu með grasfræi og áburði\n\nUmsjón: Þorvaldur Örn (s.895 6841) og Örn Þorvaldsson.\n\nUm er að ræða göngu á fallegri leið með leiðsögn og skemmtilegri lúpínuvinnu. \n\n\nMæting við N1 í Hafnarfirði kl. 9 eða í Seltún í Krýsuvík kl. 10.\n\nÖll hjartanlega velkomin! Bara mæta á staðinn. Fullkomið verk fyrir vinnufúsar hendur og hugarfar náttúruverndar
URL:https://landvernd.is/vidburdur/arleg-lupinuhringferd-um-reykjanesfolkvang/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/452254329_10231274801526911_2558524771965106453_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250619T180000
DTEND;TZID=UTC:20250619T200000
DTSTAMP:20260406T193940
CREATED:20250612T131442Z
LAST-MODIFIED:20250616T104404Z
UID:47224-1750356000-1750363200@landvernd.is
SUMMARY:Sköflungsganga Landverndar - Heiðar í háska - Mosfellsheiði
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 19. júní klukkan 18:00 🥾 \n  \n Leiðarlýsing á upphafsreit gönguleiðar:  Beygt er út af Suðurlandsvegi og Nesjavallavegur ekinn meðfram rörinu. Þrátt fyrir að við gerum ráð fyrir að flestir vilji fara á eigin bílum\, væri gott að sameinast í bíla hjá Össuri á Grjóthálsi en þaðan verður farið í síðasta lagi kl.17:15.  \n\nStaðsetning: Mæting og upphaf göngu er kl 18:00 á bílastæði sem er merkt inn á eftirfarandi hlekk \nsvo rata megi auðveldlega:  https://maps.app.goo.gl/iNgXsaXXVV6nV6Ls9 \n  \nLýsing gönguferðar:  Lengd gönguleiðar er ca. 5 km fram og til baka. Gert er ráð fyrir að gangan taki allt að þrjár klukkustundir með nestisstund. Mikilvægt er til öryggis að taka með skjólgóðan fatnað og góða skó en annars er leiðin greiðfær og við flestra hæfi og auðvitað gerum við ráð fyrir góðu gönguveðri og stórkostlegu útsýni. ☺\nAf Sköflungi er góð sýn yfir Mosfellsheiði\, einnig til Þingvalla og síðast en ekki síst yfir áhrifasvæði fyrirhugaðra framkvæmda við vindorkuver.  \n  \nÞetta er þriðja gangan undir merkjunum “Heiðar í háska” og voru hinar göngurnar fjölmennar og mæltust sérstaklega vel fyrir.  Allir áhugasamir eru hjartanlega velkomnir og athugið að gangan er ekki aðeins fyrir félaga í Landvernd. Við hvetjum hins vegar auðvitað þátttakendur til að ganga til liðs við Landvernd auk þess að taka þátt í samstöðugöngu gegn þeim áformum sem uppi eru. \n  \nÁform eru uppi um þrjú vindorkuver á milli Lyklafells og Sköflungs á Mosfellsheiði. \nHæð vindorku mannvirkja á svæðinu eru áætluð frá 180 – 210 metra á hæð. Vindorkuverum á Mosfellsheiði er ætlað að rísa í flasið á útivistarlandi og náttúruparadís höfuðborgarbúa. \nMikil andstaða er við þessi áform enda hefðu fyrirhuguð iðnaðarver áhrif á náttúru\, lífríki og upplifun og útivist á gríðarlega stóru svæði. Auk beinna samfélagslegra áhrifa hafa atvinnuflugmenn og áhugafólk um flug lýst yfir sérstökum áhyggjum af staðsetningu vindorkuvera á þessu svæði. \nStöndum saman og sýnum samhug í verki til varnar einstöku útivistarsvæði og heiðarlandi við rætur Hengils í bakgarði stór höfuðborgarsvæðisins og Þingvallasveitar.  \n  \nVerið velkomin í meðmælagöngu með heiðarlandi í hættu. \nLeiðsögumenn: Páll Ásgeir Ásgeirsson\, Rósa Sigrún Jónsdóttir\, \nAndrés Skúlason og Kristín Helga Gunnarsdóttir.  \n  \nVinsamlega athugið að skráning í ferðina er æskileg og hægt að gera það á facebook viðburðinum hér: https://fb.me/e/4KlX8DBub  \n  \nNánari upplýsingar veita: \nKristín Helga Gunnarsdóttir\, stjórnarfulltrúi í Landvernd – 896 9771. \nAndrés Skúlason verkefnastjóri Landvernd – 8995899.
URL:https://landvernd.is/vidburdur/skoflungsganga-landverndar-heidar-i-haska-mosfellsheidi/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/Skoflungur-.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250628T130000
DTEND;TZID=UTC:20250628T150000
DTSTAMP:20260406T193940
CREATED:20250613T100656Z
LAST-MODIFIED:20250626T141110Z
UID:47257-1751115600-1751122800@landvernd.is
SUMMARY:Upp á Ingólfsfjall
DESCRIPTION:Ganga upp á Ingólfsfjall og notalegheit með kakó og kleinum. \nSíðbúin Jónsmessuganga að Inghól og norður eftir fjallinu\, niður að Torfastöðum og til suðurs meðfram fjallshlíðinni að Alviðrubænum. \nIngólfsfjall\ner 551 m hátt virðulegt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu\, í vestur\, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi og að Torfastöðu\, sem er nokkuð brattari niðurleið. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt. \nIngólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann i vetursetu undir Ingólfsfjalli á leið til Reykjavíkur\, að því  er segir í Landnámu\, og flutti frá Reykjavík gamall maður aftur að fjallinu og lauk þar ævidögum sínum \nGengið verður frá bænum Alviðru\nHér má finna saðsetningu Alviðru á korti \neftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól\, þar sem Ingólfur landsnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Frá Inghól verður gengið norður eftir Ingólfsfjalli og komið niður á móts við Torfastaði. Það er nokkuð brött leið og því gott að hafa göngustaf með til að styðjast við. Þegar niður er komið er gengið til suðurs meðfram fjallinu að Alviðrubænum. Ætla má að gangan taki 4 til 6 klukkustundir. \nMunið göngustaf\, haldgóða skó\, hlífðarföt og nestisbita. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson fv. formaður Landverndar sem oft hefur gengið á fjallið. \nBoðið verður upp á kakó og kleinur í bænum að aflokinni göngu. \nÞeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða\, fallega\, vel merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst. \nAlviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðarnes II er eign Árnesinga og er einnig friðland með merktum gönguleiðum og opið almenningi. \nÍ sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir öðrum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins  er hér á síðu Landverndar \nviðburð má finna hér á facebooksíðu Alviðru
URL:https://landvernd.is/vidburdur/upp-a-ingolfsfjall/
LOCATION:Alviðra
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2025/06/14-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR