BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Landvernd - ECPv6.15.18//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Landvernd
X-ORIGINAL-URL:https://landvernd.is
X-WR-CALDESC:Events for Landvernd
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240623T130000
DTEND;TZID=UTC:20240623T180000
DTSTAMP:20260411T135439
CREATED:20240516T140216Z
LAST-MODIFIED:20240612T103532Z
UID:43206-1719147600-1719165600@landvernd.is
SUMMARY:Jónsmessuganga - sumardagskrá Alviðru
DESCRIPTION:Sunnudag 23. júní kl. 13:00-18:00 \nUpp á Ingólfsfjall – Jónsmessuganga \nIngólfsfjall er 551 m hátt virðulegt móbergsfjall í Ölfusi. Fjallið er bratt á þrjá vegu\, í vestur\, austur og suður en aflíðandi til norðurs að bænum Litla-Hálsi. Fjallið er „bæjarfjall“ Selfyssinga og þangað sækja þeir neysluvatn sitt. \nIngólfsfjall er nefnt eftir Ingólfi Arnarsyni sem talinn er hafa verið fyrstur til að nema varanlega land á Íslandi. Hafði hann i vetursetu undir Ingólfsfjalli á leið til Reykjavíkur\, að því  er segir í Landnámu\, og flutti frá Reykjavík gamall maður aftur að fjallinu og lauk þar ævidögum sínum. \nGengið verður frá bænum Alviðru (Sjá á korti)  eftir merktri gönguleið um gönguskarð ofan við bæinn og upp að Inghól\, þar sem Ingólfur landsnámsmaður var heygður. Þaðan er afar víðsýnt á góðum degi. Gangan upp og niður er brött og nokkuð erfið en gönguleiðin á fjallinu er auðveld. Ætla má að gangan taki um 4  klukkustundir. \nMunið göngustaf\, haldgóða skó\, hlífðarföt og nestisbita. Leiðsögumaður er Tryggvi Felixson fv. formaður Landverndar sem oft hefur gengið á fjallið. \nBoðið verður upp á kakó og kleinur í bænum að aflokinni göngu. \nÞeim sem ekki treysta sér á fjallið er bent á ákaflega áhugaverða\, fallega\, vel  merkta og auðfarna gönguleið um Öndverðarnes II meðfram Soginu og Hvítá. Leiðbeiningar um þessa gönguleið verða veittar í Alviðru áður en gangan á fjallið hefst. \nAllir eru hjartanlega velkomnir\, en gott væri að fá vísbendingu um fjölda gesta og göngumanna með að senda tölvupóst á alvidra@landvernd.is. \n  \nAlviðra er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðanes II er eign Árnesinga og er einnig friðland með merktum gönguleiðum og opið almenningi. \nStaðsetning Alviðru: https://ja.is/kort/?d=hashid%3AbqpbZ&x=402950&y=390092&type=map&nz=13.70 \nÍ sumar stendur Alviðra fræðslusetur Landverndar fyrir öðrum skemmtilegum og fræðandi viðburðum. Dagskrá sumarsins hér: https://landvernd.is/sumardagskra-alvidru-2024/ \n 
URL:https://landvernd.is/vidburdur/jonsmessuganga-sumardagskra-alvidru/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://landvernd.is/wp-content/uploads/2024/05/Vidburdir-Alvidra-2024-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR