,,HAFA SKAL NÁTTÚRUVERND Í HEIÐRI ALLAR STUNDIR”
-Vigdís Finnbogadóttir, fyrrv. forseti Íslands
Umhverfis- og náttúruverndarsamtök um allt land krefja stjórnvöld um varúð og virðingu í umgengni við náttúru og auðlindir landsins.
Óspillt náttúra og heilnæmt loftslag skiptir öllu fyrir framtíðina.
Stjórnvöld verða að bregðast við kallinu, sporna við náttúrutapi og fylgja eftir settum markmiðum í umhverfis og loftslagsmálum.
Frjáls félagasamtök um umhverfis- og náttúruvernd skora á stjórnvöld :
- Að stofna Hálendisþjóðgarð til verndar stærstu víðernum Evrópu hið fyrsta.
- Að endurheimta sjálfstætt umhverfis- og loftslagsráðuneyti óháð hagsmunaöflum í orku og iðnaði.
- Að efla samtal og samráð við samtök almennings um náttúruvernd og loftslagsaðgerðir.
- Að vernda haf- og landsvæði Íslands eins og samningar Sameinuðu þjóðanna kveða á um.
- Að nýta orku og allar auðlindir af hófsemd og virðingu við náttúru og almannaheill og láta af allri rányrkju.
- Að hraða orkuskiptum í samgöngum og efla almenningssamgöngur.
- Að flýta ferlum við endurheimt votlendis og stöðva frekari framræsingu.
Landvernd
Ungir umhverfissinnar
Aldin
Náttúruverndarsamtök Íslands
Náttúrugrið
SUNN
NAUST
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands
Fuglavernd
Hvalavinir verndun hafsins
Eldvötn
Vinir Þjórárvera
Verndarfélag Svartár og Suðurár
Sól til framtíðar
Fjöregg félag um náttúruvernd og heilbrigt umhverfi í Mývatnssveit
Vá félag um vernd fjarðar


