Aldur: 10-16 ára
Markmið:
- Nemendur tengjast eldri kynslóðum og fræðast um neyslu á fötum á fyrri tímum.
- Þjálfa nemendur í samskiptum og viðtalstækni
Tími: 1 kennslustund
Framkvæmd: Nemendur geta búið til spurningar sjálfir eða stuðst við hugmyndir sem fylgja verkefninu.
Spurningar
Hvaðan fékkst þú fötin þín þegar þú varst á okkar aldri?
Af hverju fékkst þú ný föt?
Úr hvaða efni voru fötin þín?
Hve oft fékkst þú ný föt?
Fékkst þú alltaf þau föt sem þig langaði í?
Hvað varð um fötin þín þegar þú gast ekki lengur notað þau?
Hvað finnst þér um hvernig föt eru notuð í dag?
Hvernig heldur þú að notkun á fatnaði verði í framtíðinni? – Munum við kaupa meira eða minna af fatnaði og hvernig munum við nýta fötin okkar?
Hvernig heldur þú að við nýtum fötin okkar sem best í framtíðinni?
Er eitthvað sem þú vilt segja okkur um fatnað í gamla daga?
Þetta verkefni og fleiri sem tengjast fatasóun má finna í þessum kennsluleiðbeiningum
Af-stad-med-urgangsforvarnir-Kennsluleidbeiningar.pdf (samangegnsoun.is)
sem Landvernd þýddi og staðfærði.