Aldur: 4-16 ára
Tími: tímabil
Markmið:
- Að kynna umhverfismarkmið varðandi flokkun og endurvinnslu fyrir öllum nýjum nemendum skólans.
- Að nemendur geti unnið skipulega við að kanna hvernig nemendum og starfsfólki gengur að vinna skv. umhverfismarkmiðum sínum varðandi flokkun og endurvinnslu.
- Að nemendur setji fram tilgátur og hugmyndir til að leysa þau vandamál sem upp koma innan veggja skólans og varða flokkun og endurvinnslu.
Efni og áhöld: Pappír og skriffæri, flokkunardallar.
Framkvæmd
Með spæjurunum er farið yfir þá flokkunardalla sem eiga að vera í hverri kennslustofu og hvaða hlutverki hver og einn þjónar. Hver ber ábyrgð á að losa þessa dalla og hvar þeir eru losaðir. Hafa spæjararnir orðið vitni af einhverjum vandræðum varðandi flokkunina eða losunina? Ef svo er hafa þeir þá einhverjar hugmyndir um lausn á þeim vandræðum.
Undirbúningur kennara
Finna til alla þá flokkunardalla sem eiga að vera í hverri stofu ásamt Grænfánaveggspjöldum sem minna á rafmagnssparnað, vatnssparnað og umhverfissáttmála skólans.
Undirbúningur nemanda
Farið yfir umhverfissáttmála skólans, hvað grænfánaveggspjöldin tákna og hvað hver flokkunardallur stendur fyrir. Útbúinn spurningalisti sem nemendahópur (grænfánanefndin) fer með inn í hvern bekk og kannar þannig stöðu mála hjá öllum bekkjum.