Aldur: hentar öllum aldurshópum
Efni og áhöld:
Blað og penni, símar, spjaldtölvur eða fartölvur.
Markmið:
- Að kynnast uppruna matarins sem við borðum og velta fyrir sér hvernig matur hefur áhrif á umhverfið.
Spurningarnar eru:
- Í hvaða landi er maturinn framleiddur? Fer framleiðsluferlið fram í fleiri en einu landi? Svaraðu þessu fyrir hverja matartegund sem er í máltíðinni sem þú valdir.
- Hversu marga kílómetra þurfti að flytja matinn frá þeim stað sem hann var búinn til þar til hann komst á diskinn þinn?
- Hversu margir plasthlutir voru í umbúðum utan um hráefni máltíðarinnar?
- Hversu miklum mat af disknum þínum var hent í ruslið? (Notaðu fjölda matskeiða sem mælieiningu fyrir magn af mat sem var hent).
- Er kolefnisspor matarsins hátt?
Þegar þú hefur svarað spurningunum skaltu ræða svörin við samnemendur þína. Að því loknu skulið þið eða bekkurinn skoða saman næstu spurningar.
Umræður í hópum:
- Hver framleiddi þennan mat? Heldur þú að hann hafi fengið borgað á réttlætanlegan hátt?
- Hvernig myndi máltíðin okkar líta út ef við værum ekki að flytja inn mat?
- Af hverju getum við keypt grænmeti og aðrar afurðir frá öðrum löndum þó að sama tegundin sé líka framleidd hér?
- Þekkið þið eitthvað af mismunandi merkingum? Græna skráargatið, Fair Trade, Blái engillinn, lífrænar vörur, vistvænar vörur, o.s.frv.?
- Verkefnið kemur úr óútgefinni bók um Menntun til sjálfbærni eftir Guðrúnu Schmidt.