Áhyggjur af stöðu loftslagsmála og umhverfismála eru algengar. Stundum getur verið erfitt að vita hvað maður sjálfur getur gert í stöðunni. Þá er gott ráð að skrifa niður á blað þær áhyggjur sem eru efst í huga og greina þær svo með aðferð áhyggjutrésins.
Skrifaðu niður þær áhyggjur sem þú hefur og farðu síðan í gegnum áhyggjutréð með þær.
Hér er lítið dæmi.
Get ég gert eitthvað í þessu?
Ég hef áhyggjur af umhverfismálunum. Get ég gert eitthvað í því? Já, það er allskonar hægt að gera.
Já
Þú getur til dæmis æft þig í að:
1. Ferðast á umhverfisvænni máta
2. Borða umhverfisvænni fæðu
4. Sporna gegn plastnotkun
6. Minnka neysluna
Hvað, hvenær, hvernig?
Ég ætla að byrja á því að minnka neysluna mína. Ég hef kynnt mér málið og ákveðið að ráðast í eftirfarandi aðgerðir.
- Minnka fatasóun með því að nota fötin mín lengur og gefa svo gömlu fötin mín áfram í stað þess að henda þeim. Á næsta ári ætla ég svo í fatabann í hálft ár þar sem ég kaupi mér bara það sem mig virkilega vantar. Svo ætla ég að læra að gera við föt í skólanum í september.
- Láta símann minn endast í allavega þrjú ár í viðbót og fara með hann í viðgerð ef það þarf frekar en að fá mér nýjan. Segja foreldrum mínum að fara með ónotuðu símana á heimilinu í endurvinnslu.
- Á næsta ári þegar ég fermist ætla ég að biðja fólk um að gefa mér það sem mig vantar í gjafir eða setja pening í það góðgerðamál sem ég hef trú á.
Nú er komið að þér. Prófaðu að velja þér aðgerð og setja hana í gegnum áhyggjutréð. Sjáðu hvernig gengur. Ef þú veist ekki hvaða aðgerðir þú getur farið í þá er um að gera að leita upplýsinga á netinu til þess að hjálpa þér.