Í upphafi skyldi endinn skoða
Árið er 2050 og við sitjum við eldhúsborðið og við látum hugann reika um liðna tíð. Nú ríkir friður í heiminum og það er liðin tíð að mannfólkið nýti auðlindir jarðar á yfirdrætti. Nú höfum við náð tökum á loftslagsbreytingum og það var nú ýmislegt sem þurfti að gerast svo það tækist. Það gerðist sérstaklega mikið þarna á milli 2021 og 2030. Hvernig fórum við að?
Markmið
- Að hugleiða skapandi leiðir sem gætu hjálpað loftslaginu
- Að hugleiða um samtakamátt mannanna
- Að sjá fyrir sér framtíð þar sem loftslagskvíði er fortíðarvandi.
Prófaðu:
Árið er 2050. Ég er xxx gömul. Okkur hefur tekist að snúa í sókn gegn loftslagsvánni. Hvernig fórum við að?
Aðferð
Sjá hugsanaæfingu Gunnhildar Fríðu í loftslagsverkfallinu.
Um aðferðina
Bakrýni (Backcasting) er aðferð til að hanna framtíðina. Byrjað er að lýsa hvernig hin “fullkomna” framtíð – eða æskilega staða sé og svo er unnið aftur á bak og kennsl borin á þau verkefni, aðgerðir og aðferðir sem gerðu það að verkum að framtíðin varð að veruleika. Leiðarspurningar bakrýni eru; „Ef við viljum ná ákveðnu markmiði, hvaða aðgerða þarf að grípa til að komast þangað?“ og „Hvað þarf að gera til þess að þessi framtíð verið að veruleika og tengist nútíðinni?“.