Stefna Landverndar árin 2019-2021 var samþykkt á aðalfundi samtakanna 30. apríl 2019. Samkvæmt henni vinna samtökin að fræðslu, loftslagsmálum, náttúruvernd og sjálfbæru samfélagi.
Hlutverk Landverndar er að standa vörð um íslenska náttúru og vera virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfi.
Stefna Landverndar byggir á stefnumótun sem unnin út frá könnunum til félagsmanna, niðurstöðum þjóðfundar Landverndar í febrúar 2019 og vinnu stjórnar og starfsmanna.
Til að tryggja áframhaldandi árangur á þeirri vegferð sem framundan er, er horft til þess að viðfangsefni Landverndar 2019-2021 verði:
Starfsárið 2019-2020 mun Landvernd leggja áherslu á ákveðnar aðgerðir sem koma fram í stefnunni innan hvers flokks
Fræðsla
Markviss fræðsla um umhverfis og náttúruvernd leiðir til þess að hægt er að taka upplýstar ákvarðanir til framtíðar. Fræðsla skólanema, ungmenna, almennings, fyrirtækja og stjórnvalda er leið Landverndar til að koma skilaboðum sínum áleiðis.
- Unnið verður að umhverfisfræðslu á öllum skólastigum sem miðar að getu til aðgerða.
- Landvernd styrkir grasrótina með stofnun málefnahópa.
- Landvernd leiðbeinir þeim sem vilja standa sig vel í umhverfismálum.
- Almenningsfræðsla og þátttaka í upplýsandi umræðu um neyslu/sóun, loftslagsmál, og virðingu fyrir náttúrunni aukin.
![Verndum hálendi Íslands fyrir stóriðjuvirkjunum, landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2015/03/Thjorsarver-768x432.jpg)
Hálendishópur Landverndar
Hálendishópurinn er hluti af grasrót Landverndar. Þar koma saman félagar í Landvernd sem deila sýn á óumdeilt mikilvægi víðerna Íslands. Starf hópsins felst í því að vekja athygli á hálendi Íslands og styðja við stofnun Miðhálendisþjóðgarðs.
![Loftslagshópur Landverndar vinnur að aukinni vitund um loftslagsmál, vertu með, landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/12/Loftslagshópur-768x432.jpg)
Loftslagshópur Landverndar
Loftslagshópurinn er hluti af grasrót Landverndar.
Þar koma saman félagar í Landvernd sem vilja hafa áhrif og grípa til aðgerða í loftslagsmálum. Allir félagar og nýir meðlimir velkomnir!
![Stýrihópur grænfánans](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/10/krakkar-uti-768x432.jpg)
GRÆNFÁNINN
Grænfáninn Eco-Schools Iceland Skólar á grænni grein, grænfánaverkefnið er alþjóðlegt
![©Kristján Ingi Erlendsson, ljósmyndari. Kristján Ingi er höfundur bókarinnar Unique Island og fær Landvernd 5% af söluandvirði hverrar bókar.](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/10/vidfangsefni-forsida-1-768x288.jpg)
VIÐFANGSEFNI
LOFTSLAGSMÁL Hamfarahlýnun er af mannavöldum. Stöðva þarf losun frá stóriðju
Loftslagsmál
Loftslagsbreytingar eru stærsta áskorun nútímans og brýnt að ólíkir aðilar komi saman til að stemma stigu við þeim og afleiðingum þeirra.
- Landvernd hyggst auka fræðslu um neyslu og loftslagsmál með því að taka upp verkefnið Young Reporters for the Environment.
- Landvernd styður við endurheimt votlendis.
- Landvernd dregur úr losun tengdri starfssemi sinni um 50%
- Landvernd styður við loftslagsverkfall og baráttu unga fólksins fyrir raunverulegum aðgerðum gegn hamfarahlýnun.
![Öndum léttar er átak Landverndar í að fjölga sveitarfélögum sem gera sér kolefnisbókhald og aðgerðaráætlun í loftslagsmálum, landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2020/01/ondum-lettar-sida-768x288.jpg)
Öndum léttar
ÖNDUM LÉTTAREr sveitarfélagið þitt með aðgerðaráætlun í loftslagsmálum? Verkefnið Öndum léttar (áður
![Loftslagshópur Landverndar vinnur að aukinni vitund um loftslagsmál, vertu með, landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/12/Loftslagshópur-768x432.jpg)
Loftslagshópur Landverndar
Loftslagshópurinn er hluti af grasrót Landverndar.
Þar koma saman félagar í Landvernd sem vilja hafa áhrif og grípa til aðgerða í loftslagsmálum. Allir félagar og nýir meðlimir velkomnir!
![Jökulsárlón, landvernd.is - loftslagsáskorun](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/10/Jolusarlon-768x432.jpg)
Loftslagsáskorun
Við undirrituð skorum á íslensk stjórnvöld að grípa tafarlaust til afdráttarlausra og öflugra aðgerða til að snúa við þeirri ógnvænlegu þróun sem nú blasir við í loftslagsmálum og ógnar öllu lífríki.
![Viltu gerast umhverfisfréttamaður? Taktu þátt í YRE verkefni Landverndar, landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/12/YRE_vef-768x432.jpg)
YRE verkefni Landverndar
Viltu gerast umhverfisfréttamaður? Taktu þátt í YRE verkefni Landverndar fyrir ungt umhverfisfréttafólk.
Náttúruvernd
Landvernd á rætur sínar í því að standa vörð um verndarsvæði og verndaðar vistgerðir hér á landi og mun halda því áfram.
- Landvernd beitir stjórnvöld og ríki aðhaldi svo að farið sé eftir lögum um náttúruvernd.
- Landvernd leggur áherslu á að Miðhálendisþjóðgarður verði stofnaður sem fyrst.
- Verndun víðerna eins og Drangajökulsvíðerna.
![Verndum hálendi Íslands fyrir stóriðjuvirkjunum, landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2015/03/Thjorsarver-768x432.jpg)
Hálendishópur Landverndar
Hálendishópurinn er hluti af grasrót Landverndar. Þar koma saman félagar í Landvernd sem deila sýn á óumdeilt mikilvægi víðerna Íslands. Starf hópsins felst í því að vekja athygli á hálendi Íslands og styðja við stofnun Miðhálendisþjóðgarðs.
![©Kristján Ingi Erlendsson, ljósmyndari. Kristján Ingi er höfundur bókarinnar Unique Island og fær Landvernd 5% af söluandvirði hverrar bókar.](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/10/studningur-forsida-768x288.jpg)
Miðhálendið- einn mesti fjársjóður landsins
Miðhálendið er einn mesti fjársjóður Landsins. Okkur
Sjálfbært samfélag
Sjálfbær þróun er þróun sem mætir þörfum nútímans án þess að skerða möguleika komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum. Á tímum sem nú er sjaldan ef nokkurn tímann jafn mikilvægt að fræða almenning um það hvernig hægt er að byggja upp sjálfbær samfélög út um allt land.
- Landvernd vill að dregið sé úr hverskonar sóun.
- Landvernd vinnur að vitundarvakningu um neyslu, að fólk endurhugsi framtíðina.
![©Kristján Ingi Erlendsson, ljósmyndari. Kristján Ingi er höfundur bókarinnar Unique Island og fær Landvernd 5% af söluandvirði hverrar bókar.](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/10/studningur-forsida-768x288.jpg)
SJÁLFBÆRT SAMFÉLAG
Hvað er sjálfbærni? Hvað er sjálfbærni? Lesa meira Þolmarkadagur jarðar
![Við þurfum að endurhugsa framtíðina og endurmeta neyslu okkar. Hvernig getum við háttað lífi okkar án þess að það komi niður á tækifærum komandi kynslóða? landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/10/EndurhugsumFramtidina-01-768x432.jpg)
Endurhugsum framtíðina
Vandamálið sem við höfum skapað með neyslu okkar og lífsstíl er stórt. Það sem við notum, kaupum og borðum ógnar heilbrigði lífvera á plánetunni okkar. Líka okkar eigin heilsu.
![Hreinsum Ísland, hættum notkun á einnota og hreinsum í kringum okkur, landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/10/Hreinsum-Island-bordi-768x432.jpg)
Hreinsum Ísland
Landvernd og Blái herinn eru í samstarfi í baráttunni við plastmengun undir hatti Hreinsum Íslands en Blái herinn sér um strandhreinsunararm verkefnisins.
![Matarsóun er peningasóun, landvernd.is](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2019/10/matarsoun-peningasoun-768x432.jpg)
Matarsóunarverkefni Landverndar
Landvernd hefur verið í forystu þeirra sem berjast gegn matarsóun frá því í lok árs 2013. Landvernd stýrði norræna samstarfsverkefninu Zero Waste og er í samstarfi við Reykjavíkurborg um að minnka matarsóun hjá starfsmönnum borgarinnar.