Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins með sínum svarta föstudegi, netmánudegi og degi einhleypra. Nægjusamur nóvember er hvatningarátak. Mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað.
Í nóvember ætlum við að tileinka okkur nægjusemi og hvetjum sem flest að vera með!
Þessi vefur mun taka breytingum því lengra sem líður á mánuðinn. Hér munu birtast upplýsingar um viðburði, greinaskrif, fræðslu, verkefni fyrir vinnustaði og skóla o.fl.
Leikir og hugvekjur sem tilvalið er að nýta sér í Nægjusömum nóvember hvort sem það er með fjölskyldunni, á vinnustaðnum, í saumaklúbbnum, vinahópnum eða kennslustofunni.
Nægjusamur nóvember er hvatningarátak Landverndar og Grænfánaskóla