Árið er 2050 og við höfum náð tökum á loftslagsbreytingum. Í heiminum ríkir friður og það er liðin tíð að mannfólkið taki yfirdrátt á auðlindum jarðar. Hugsanaæfing.

Í upphafi skyldi endinn skoða


Árið er 2050 og við sitjum við eldhúsborðið og við látum hugann reika um liðna tíð. Nú ríkir friður í heiminum og það er liðin tíð að mannfólkið nýti auðlindir jarðar á yfirdrætti. Nú höfum við náð tökum á loftslagsbreytingum og það var nú ýmislegt sem þurfti að gerast svo það tækist. Það gerðist sérstaklega mikið þarna á milli 2021 og 2030. Hvernig fórum við að?

Markmið
Að hugleiða:
-skapandi leiðir sem gætu hjálpað loftslaginu
-um samtakamátt mannanna
Að sjá fyrir sér framtíð þar sem loftslagskvíði er fortíðarvandi.

Prófaðu:
Árið er 2050. Ég er xxx gömul. Okkur hefur tekist að snúa í sókn gegn loftslagsvánni. Hvernig fórum við að?

Aðferð
Sjá hugsanaæfingu Gunnhildar Fríðu í loftslagsverkfallinu.

 
 
 
 
 
View this post on Instagram
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

A post shared by Landvernd (@landvernd)


Um aðferðina

Bakrýni (Backcasting) er aðferð til að hanna framtíðina. Byrjað er að lýsa hvernig hin „fullkomna“ framtíð – eða æskilega staða sé og svo er unnið aftur á bak og kennsl borin á þau verkefni, aðgerðir og aðferðir sem gerðu það að verkum að framtíðin varð að veruleika. Leiðarspurningar bakrýni eru; „Ef við viljum ná ákveðnu markmiði, hvaða aðgerða þarf að grípa til að komast þangað?“ og „Hvað þarf að gera til þess að þessi framtíð verið að veruleika og tengist nútíðinni?“.

Scroll to Top