Mannkynið og aðrar lífverur eiga allt sitt undir náttúrunni og eru háðar henni um fæðu og búsvæði, vatn og loft. Því er náttúruvernd í grunninn nauðsynleg öllu lífi. Í umræðu um náttúruvernd er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að náttúran sem slík hefur ákveðið gildi, hún er ekki eingöngu til staðar svo við mannkynið getum nýtt hana heldur hefur hún einnig tilvistarrétt í sjálfri sér. Náttúran getur ekki talað fyrir sig sjálf, hún getur ekki sagt skoðun sína eða látið reyna á ákvarðanir fyrir dómstólum. Það er því mikilvægt að hún eigi sér málsvara þegar kemur að nýtingu auðlinda og röskun landssvæða.
Ein forsenda þess að fólk virði náttúruna, verndi hana og taki skynsamlegar ákvarðanir varðandi nýtingu hennar, er að það kynnist náttúrunni og átti sig á mikilvægi hennar.
Til þess að kynnast náttúrunni er mikilvægt að upplifa hana með því að dvelja í henni, njóta hennar og umgangast hana af virðingu. Ýmsar rannsóknir hafa jafnframt sýnt að umgengni við náttúruna bæti bæði andlega og líkamlega heilsu. Það er því mikilvægt að njóta náttúru landsins, bæði í heimabyggð og á fjarlægari svæðum.
Farið út í nærumhverfi skólans, reynið að fara á svokölluð græn svæði, á grænum svæðum má finna meiri náttúru en t.d við umferðargötu. Merkið inn á BINGÓ spjaldið, þegar þú hefur fyllt alla reitina ertu komin/nn með BINGÓ!