Í þessum stutta leik eru nemendur að velta fyrir sér hegðun sína í daglegu lífi og hversu auðlindafrek hún er. Verkefni fyrir 12-100 ára

Tími: 10 mín 

Markmið:  

  • Að kveikja áhuga nemenda á því að velta fyrir sér eigin nýtingu og sóun á auðlindum 
  • Að nemendur átti sig á mikilvægi þess að minnka eigið vistspor 
  • Að nemendur ræði hvernig þeir geta minnkað sitt vistspor  

Framkvæmd: 

Allir nemendur sitja í kringum borð. Í miðju borðsins eru litlir miðar í grænum, gulum og rauðum lit. Kennarinn varpar upp spurningum á skjá/töflu og nemendur taka miða í þeim lit sem samsvarar svari þeirra við spurningunni. Í lokin telja nemendur fjölda miða í hverjum lit og segja frá því. Kennarinn leiðir í kjölfarið umræður um málefnin og tengingu þeirra við auðlindir. 

Hér má nálgast spurningarnar

Verkefnið er hluti af óútgefinni handbók eftir Guðrúnu Schmidt um menntun til sjálfbærni sem gefin verður út af Skólum á grænni grein, Landvernd, Menntamálastofnun.