Jarðvegs bingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim. Verkefni fyrir 16-100 ára

Tími: 20 – 30 mín

Markmið: Að kveikja áhuga, festa í minni og miðla þekkingu um jarðveginn. Einnig að nemendur geta kynnist meira sín á milli.

Efni/áhöld: Sérstakt bingó-spjald.

 

Framkvæmd:  Hver nemandi fær eitt bingóspjald sem má ekki skoða fyrr en
leikurinn byrjar. Ath. kennari þarf að fylla inn í eina spurninguna, tilgreina uppgræðslusvæði eða svæði með jarðvegsrof í nágrenninu.

Þegar leikurinn byrjar þá skoða nemendur spurningar og reyna að svara
þeim sem þeir geta eða finna einhvern annan í bekkum sem getur svarað. Þegar
það er gert, skráir nemandinn nafn sitt í bingóreitinn.

Þegar bingóspilari telur að hann hafi fundið svör við öllum spurningum,
kallar hann bingó.

Allir gera hlé á leiknum á meðan sigurinn er sannreyndur.

Ekki þarf að skrifa svörin öll sjálft á bingóspjaldið, heldur þarf
nemandinn að svara þeim munnlega. Ef hann getur svarað öllu er hann
sigurvegari, annars heldur leikurinn áfram þangað til að næsti kallar bingó.

Eftir leikinn er mikilvægt að spjalla um þau mál sem standa á
bingóspjaldinu.

Lykilhugtök: Jarðvegur, jarðvegsrof, rofabarð, sandfok

Lesefni:

Náttúra til framtíðar

Jarðvegsrof á Íslandi

Að lesa og lækna landið

Jarðvegur er undirstaða lífsins

Verkefnið er hluti af óútgefinni handbók eftir Guðrúnu Schmidt um
menntun til sjálfbærni sem gefin verður út af Skólum á grænni grein, Landvernd,
Menntamálastofnun og Rannís.