Loftslagsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Bingóspjöld fyrir fimm skólastig.

Loftslagsbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim.

Aldur: Hentar öllu aldri

Tími: 20-30 mín

Markmið: Að kveikja áhuga og miðla þekkingu um loftslagsmál. Einnig að nemendur geta kynnast meira sín á milli.

Efni/áhöld: Sérstök bingó spjöld, eitt fyrir hvert skólastig. Sækja hér.

 

Aðferð: Hver nemandi fær eitt bingóspjald sem má ekki skoða fyrr en leikurinn byrjar.

Þegar leikurinn byrjar þá skoða nemendur spurningar og reyna að svara þeim sem þeir geta eða finna einhvern annan í bekkum sem getur svarað. Þegar það er gert, skrái nemandinn nafn sitt í bingóreitinn.

Þegar bingóspilari telur að hann hafi fundið svör við öllum spurningum, kallar hann bingó.

Allir gera hlé á leiknum á meðan sigurinn er sannreyndur.

Ekki þarf að skrifa svörin öll sjálft á bingóspjaldið, heldur þarf nemandinn að svara þeim munnlega. Ef hann getur svarað öllu er hann sigurvegari, annars heldur leikurinn áfram þangað til að næsti kallar bingó.

Eftir leikinn er mikilvægt að spjalla um þau mál sem standa á bingóspjaldinu.

Lykilhugtök: loftslagsbreytingar, gróðurhúsaáhrifin, aðgerðir,

Verkefnið er hluti af óútgefinni handbók eftir Guðrúnu Schmidt um menntun til sjálfbærni sem gefin verður út af Skólum á grænni grein, Landvernd og Menntamálastofnun

 

 

 

Tengt efni