Tími: 20 mín
Markmið:
- Að kveikja áhuga nemenda á loftslagsmálum
- Að nemendur átti sig á því hvað þeir vita um málið og hvað vantar
- Að nemendur mynda sér skoðanir og eru óhræddir við að deila þeim
Framkvæmd:
Allir eru í stofu þar sem heil lína milli veggja er laus. Kennarinn leggur niður blað þar sem stendur á sammála í vinstra hornið á stofunni, blað þar sem stendur á veit ekki í miðjuna og blað þar sem stendur á ósammála í hægra hornið. Síðan kemur kennarinn fram með eina og eina yfirlýsingu og eiga nemendur að fara á þann stað í stofunni sem er í samræmi við svar þeirra við yfirlýsingunni sem kennarinn setti fram. Dæmi um yfirlýsingar:
- Ég skil hvað sjálfbær þróun þýðir
- Ég hef kynnt mér Heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun
- Réttlæti innan og milli kynslóða er lykillinn til þess að ná fram sjálfbærri þróun
- Ég skil af hverju loftslagsbreytingar verða og hvaða orsakir liggja að baki
- Loftslagsbreytingar munu ekki hafa áhrif á mitt líf
- Loftslagsbreytingar hafa nú þegar áhrif, sérstaklega á fólk í fátækum löndum
- Afleiðingar loftslagsbreytinga gætir nú þegar hér á Íslandi
- Lífsstíllinn í ríkum löndum eins og á Íslandi þarf að breytast og til þess að ná árangri í losun gróðurhúsalofttegunda þarf hver og einn að vera virkur í aðgerðum og taka ábyrgð.
- Ég er búin að gera breytingar á lífsstílnum mínum til þess að minnka umhverfisáhrif og er tilbúin í að taka fleiri skref
- Stjórnvöld alls staðar í heiminum þurfa að gera meira til að vinna gegn losun gróðurhúsalofttegunda
- Íslensk stjórnvöld eru nú þegar að vinna á metnaðarfullan hátt að loftslagsmálum
- Ég er með loftslagskvíða
Þegar þessu er lokið leiðir kennarinn nemendur í gegnum stutt spjall. Dæmi um spurningar:
- Hvaða skoðanir eru oftast til staðar varðandi umhverfismál og af hverju?
- Hafa orðið breytingar á skoðunum í gegnum þennan leik?
- Hvað vitið þið mikið um loftslagsvána og um aðgerðamöguleika?
Verkefnið er hluti af óútgefinni handbók eftir Guðrúnu Schmidt um menntun til sjálfbærni sem gefin verður út af Skólum á grænni grein, Landvernd og Menntamálastofnun