Nemendur kynna sér málið og útbúa námskeið fyrir jafnaldra eða almenning.
Aldur: 16 – 25 ára
Tími: 4 kennslustundir
Markmið:
- Að nemendur átti sig á hvað felist í því að vera ábyrgur neytandi
- Að nemendur fái verkfæri til þess að taka skref í átt að grænum lífstíl
- Að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum umhverfisfræðarinnar
- Að nemendur átti sig á gagnsemi hringrásarhagkerfisins
Aðferð:
Nemendur setja sig í spor námskeiðshaldara, þeir útbúa fræðslu fyrir almenning um hvernig megi lifa umhverfisvænum lífstíl og minnka þannig vistspor sitt. Fræðslan getur verið í formi hlaðvarps, fyrirlesturs, myndbands eða blaðagreinar.
Þeir afla sér upplýsinga um:
Hvað felst í því að vera ábyrgur neytandi
Hver eru helstu umhverfismerkin og fyrir hvað standa þau
Hvað er það sem hefur áhrif á vistspor einstaklinga og hvernig má minnka vistsporið
Hvaða leiðir er hægt að fara til þess að henda minni úrgangi
Verkefnalýsing fyrir nemendur
Þið fáið það verkefni að útbúa fræðslu fyrir almenning um það hvernig hægt er að stuðla að sjálfbærni í daglegu lífi. Námskeiðið á að nýtast öllum þeim sem vilja taka skref í átt að grænum lífsstíl en vita ekki hvar á að byrja.
Á námskeiðinu/fyrirlestrinum er fjallað um
Hugtökin sjálfbærni, vistspor og hringrásarhagkerfi
Hvernig er best að haga innkaupum með tilliti til umhverfisins
Hvernig lengja má líftíma ákveðna matvæla
Hvaða lausnir eru til að takmarka umbúðir
Mismunandi ferðamáta – almenningssamgöngur, einkabíllinn, hjólið. T.d skoða áhrif þeirra á lýðheilsuna
Hvernig hægt að lengja líftíma hluta sem við eigum nú þegar?
Höfum áhrif! Nemendur deila verkefninu með öðrum innan skólans og jafnvel í nærumhverfinu. Hægt er að senda myndbönd, hlaðvarp og blaðagreinar á fjölmiðla og jafnvel halda fyrirlestur á sal fyrir starfsfólk, nemendur eða íbúa í nærumhverfi skólans.