Aldur: 8 – 12 ára
Tími: 1 kennslustund
Markmið:
- Að nemendur þjálfist í því að meta náttúruna út frá tilfinningum
- Að nemendur beri virðingu fyrir náttúrunni vegna þeirra tilfinninga sem hún vekur hjá fólki
Efni og áhöld: skriffæri og blað
Framkvæmd:
Skrifið lýsingu á einhverjum stað sem ykkur þykir vænt um en hafið ekki komið á lengi. Lýsið nákvæmlega hvernig staðurinn lítur út, hvernig ykkur líður þegar þið eruð þar og hvað það er sem ykkur líkar svo vel á þessum stað.
Veltið fyrir ykkur hlutum eins og….
- Er fjölbreytt dýralíf á þessum stað?
- Hefur þessi staður alltaf litið svona út?
- Er einhverjar líkur á að þessi staður muni breytast á næstu 50 árunum? Ef svo er hvernig? Eru það breytingar af mannavöldum eða náttúru?
Finnið 5 lýsingarorð sem þið mynduð nota til að lýsa staðnum
Finnið 5 sagnorð sem þið mynduð nota til þess að lýsa hvað er hægt að gera á staðnum