Votlendisbingó er leikur þar sem nemendur ganga á milli með bingóspjöld. Þeir eru að svara spurningum og ræða málin. Nemendur reyna að ná bingó með því að svara spurningum sjálfir og finna fólk sem getur hjálpað þeim. Verkefni fyrir 14-100 ára

Tími: 20 – 30 mín

Markmið: Að kveikja áhuga, festa og miðla þekkingu um votlendi. Einnig að nemendur geta kynnast meira sín á milli.

Efni/áhöld: Sérstakt bingó-spjald. Sækja hér.

Aðferð: Hver nemandi fær eitt bingóspjald sem má ekki skoða fyrr en leikurinn byrjar.

Þegar leikurinn byrjar þá skoða nemendur spurningar og reyna að svara þeim sem þeir geta eða finna einhvern annan í bekkum sem getur svarað. Þegar það er gert, skrái nemandinn nafn sitt í bingóreitinn.

Þegar bingóspilari telur að hann hafi fundið svör við öllum spurningum, kallar hann bingó.

Allir gera hlé á leiknum á meðan sigurinn er sannreyndur.

Ekki þarf að skrifa svörin öll sjálft á bingóspjaldið, heldur þarf nemandinn að svara þeim munnlega. Ef hann getur svarað öllu er hann sigurvegari, annars heldur leikurinn áfram þangað til að næsti kallar bingó.

Eftir leikinn er mikilvægt að spjalla um þau mál sem standa á bingóspjaldinu.

Lykilhugtök: Votlendi, framræsla votlendis, endurheimt votlendis, loftslagsbreytingar, gróðurhúsaáhrifin

Lesefni:

Mikilvægi votlendis

Búsvæðisvernd

Um votlendi

Endurheimt votlendis

Verkefnið er hluti af óútgefinni handbók eftir Guðrúnu Schmidt um menntun til sjálfbærni sem gefin verður út af Skólum á grænni grein, Landvernd, Menntamálastofnun og Rannís