Verkefni frá leikskólanum Akraseli á Akranesi
Framkvæmd
Nemandi ákveður sjálfur hvað hann vill gefa foreldrum og hvernig hann framkvæmir það. Hann byrjar á því að ræða við kennarann um hugmynd sína og teiknar hana á blað.
Safnið saman endurnýtanlegum efnivið sem til er í skólanum. Nemandinn fær að skoða hvað er til, hugmyndirnar fæðast oft þegar efniviðurinn er skoðaður.
Gott er að hafa ýmis tæki við höndina eins og límbyssu, saumavél, hamar og sög og fleira.
Nemandi tekur þann efnivið sem hann ætlar að nota og hefst handa við að búa til gjöfina.
Nemandi stýrir verkinu, kennarinn er einungis til að aðstoðar.
Nemendur pakka inn gjöfinni í endurvinnanlegan pappír eða poka og búa til merkispjald.
Kennari skráir ferlið við að búa til jólagjöfina bæði í rituðu máli og í myndum. Látið skráningu á ferlinu fylgja með jólagjöfunum.
Afurð
Innpökkuð gjöf með merkispjaldi til foreldra. Gjafirnar geta verið af ýmsu tagi. Það sem börnin á Akraseli hafa búið til er t.d. jólasokkur, stóll úr frauðplasti, hálsmen, kjóll og gítar.