Meira en bara fjöldi tegunda
Líffræðileg fjölbreytni eða einfaldlega lífbreytileiki nær yfir allar tegundir dýra, plantna, sveppa og annarra lífvera sem til eru. En lífbreytileiki er svo miklu meira en bara fjöldi tegunda. Einstaklingar af sömu tegund eru ólíkir. Horfðu yfir bekkinn þinn eða skoðaðu fólkið í kringum þig og sjáðu hvað allir eru ólíkir. Þessi breytileiki er hluti af lífbreytileikanum. Lífbreytileiki nær einnig yfir búsvæði allra lífvera og þau vistkerfi sem þær mynda og búa í. Birkiskógurinn eða fjaran á einum stað á landinu er ekki nákvæmlega eins og samskonar vistkerfi annars staðar á landinu. Veðurfar er oft ólíkt milli landshluta og vistkerfin hafa m.a. þróast í takt við það. Þessi breytileiki milli vistkerfa er einnig hluti af lífbreytileika. Lífbreytileiki er mikilvægur til að vistkerfi geti brugðist við breytingum, eins og þurrkum, sjúkdómum o.fl.
Einföld vistkerfi eru líka mikilvæg
Tegundafjöldi getur verið afar ólíkur á milli lífbelta því aðstæðurnar eru ólíkar. Í hitabeltinu finnast mjög margar tegundir en við heimskautin finnast fáar tegundir í samanburði og það er eðlilegt ástand. Tegundafjöldi einn og sér segir alls ekki alla söguna um lífbreytileika og einföld heimskautavistkerfi geta verið í mjög góðu ástandi og ekki æskilegt að þar sé bætt við fleiri tegundum. Í bæði heimskautavistkerfum og regnskógum er um viðkvæmt jafnvægi að ræða því þar hafa lífverur þróast saman, sumar í mikilli samkeppni við aðrar tegundir og aðrar í lítilli samkeppni. Jafnvel litlar breytingar á þessu jafnvægi geta haft slæm áhrif á lífríkið í þessum ólíku lífbeltum.
Lífbreytileiki á Íslandi
Ísland er ung eyja í úthafinu og það er nokkuð stutt frá síðasta jökulskeiði. Þess vegna eru hér fáar tegundir miðað við meginlöndin og margar tegundanna hafa þróast öðruvísi hér en annars staðar. Á eldfjallaeyjunni okkar eru einstök og fjölbreytt búsvæði fyrir lífríki og lítil samkeppni á milli tegunda. Þetta býr til góðar aðstæður fyrir þróun tegunda og á Íslandi er því að finna óvenjulega mikinn breytileika innan tegunda. Má þar nefna t.d. bleikjuna í Þingvallavatni þar sem fjögur afbrigði hafa þróast úr einni tegund á einungis 10 þúsund árum. Þetta eru sílableikja, kuðungableikja, murta og dvergbleikja en þær eru misstórar og eiga sér ólík búsvæði. Einnig hefur fundist mikill breytileiki hjá fleiri tegundum eins og hornsíli, birki og víðitegundum. Það sárvantar meiri rannsóknir á lífbreytileika á Íslandi.
Á Íslandi er að finna vistkerfi sem eru einstök á heimsvísu. Þessar aðstæður veita lífverum óvenjuleg tækifæri og því eru margar þeirra í hraðri þróun.
Hvaða orð á að nota?
Á ensku er talað um bæði biological diversity og biodiversity. Sömuleiðis er á íslensku ýmist talað um líffræðilega fjölbreytni, líffræðilegan fjölbreytileika og svo einfaldlega lífbreytileika sem er tilraun til beinnar þýðingar á biodiversity.
Ítarefni um lífbreytileika
Málþingið Fjölbreytni lífs í nútíð og framtíð var haldið þann 17. september 2021 og fjallaði um fjölbreytni, ástand, mikilvægi og sérstöðu lífríkis Íslands.