Aðalfundur Landverndar í Nauthóli 12. maí n.k. kl. 10-13

Aðalfundur Landverndar árið 2012 verður haldinn í Nauthóli við Nauthólsvík laugardaginn 12. maí og hefst kl. 10, en húsið verður opnað 9:45. Dagskrá fundarins fer hér á eftir.

Aðalfundur Landverndar árið 2012 verður haldinn í Nauthóli við Nauthólsvík laugardaginn 12. maí og hefst kl. 10, en húsið verður opnað 9:45.

Dagskrá fundarins fer hér á eftir. Sérstök athygli er vakin á erindi Valgerðar Halldórsdóttur, formanns Sólar í Straumi, en hún mun fjalla um baráttu félagsins gegn stækkun álversins í Straumsvík. Í ár eru liðin fimm ár frá því Hafnfirðingar samþykktu í íbúakosningu að stöðva stækkunina. Heiti erindisins er: ,,Að sigra risa.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka með sér nýja félaga.

Stjórn Landverndar

DAGSKRÁ

Kl. 09:45 Húsið opnað, skráning

Kl. 10:00 Setning aðalfundar

Kl. 10:05 Aðalfundarstörf

Kjör í nefndir fundarins
Skýrsla stjórnar
Ársreikningur 2011
Lagabreytingar
Kynning á tillögum að ályktunum aðalfundar
Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga

Kl. 11:20 Af starfsemi Landverndar 2011-2012

Skólar á grænni grein
Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum
Umsögn um þingsályktunartillögu um vernd og orkunýtingu landssvæða
Stofnun Ungmennaráðs Landverndar

Kl. 11:40 Kaffi og meðlæti

Kl. 12:00 „Að sigra risa„: Valgerður Halldórsdóttir, formaður Sólar í Straumi.

Valgerður fjallar um baráttu félagsins gegn stækkun álversins í Straumsvík en nú eru fimm ár liðin frá því að Hafnfirðingar samþykktu í íbúakosningu að stöðva stækkunina.

Kl. 12:30 Afgreiðsla ályktana

Kl. 13:00 Fundarslit

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd