Afmælisdagur grænfánans 25.apríl

Skólar á grænni grein fagna 20 ára afmæli á Íslandi skólaárið 2021-2022. Við höfum fagnað þessum áfanga með fjölbreyttri afmælisdagskrá og nú með dagskrá fyrir afmælisdaginn sjálfan 25.apríl.

Í dag á Degi umhverfisins fagnar grænfáninn 20 ára afmæli sínu. Af því tilefni fengu grænfánaskólar sendan pakka sem inniheldur hugmyndir um hvernig fagna má deginum. Lögð er áhersla á náttúruvernd og á að njóta náttúrunnar í nærumhverfinu.

  • Örfræðsla um um hugtakið náttúruvernd og mikilvægi hennar
  • Útprentaleg verkefni fyrir alla aldurshópa sem tengjast þemanu Náttúruvernd
  • Hugmyndir að útileikjum

Vonum að þið njótið vel og gaman væri að heyra frá skólum eða vera merkt á samfélagsmiðlum.

Verkefnin má vel nýta á öðrum vordögum

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd