Landvernd efnir til fjölskyldudagskrár í Alviðru í Ölfusi laugardaginn 14. júlí frá 12-15. Í boði verður fjölbreytt náttúruskoðun, ganga og náttúruleikir fyrir alla fjölskylduna í fallegu umhverfi.
Dagskráin er eftirfarandi:
12:00 Skordýr og gróður með stækkunargleri. Skordýrum og plöntum verður safnað í nágrenni Alviðru og skoðuð í víðsjá (stækkunargleri). Umsjón hefur Hrefna Sigurjónsdóttir. Samveran varir í u.þ.b. 2 klst.
12:00 Að upplifa og njóta náttúrunnar. Helena óladóttir veitir fólki innsýn í útinám og náttúruleiki í gönguferðmeð útikennsluívafi. Samveran varir í u.þ.b. 1 klst.
14:00 Fuglaskoðun með Hjálmari A. Jónssyni frá Fuglavernd. Samveran varir í u.þ.b. 1 klst.
Þátttaka verður ókeypis. Gott er að taka með sér sjónauka, plöntu- og fuglagreiningarbækur, klæða sig eftir veðri og góða skapið!
Kaffi, kakó og vöfflur verða til sölu á staðnum.
Hlökkum til að sjá sem flesta og njóta náttúrunnar með okkur í Alviðru í Ölfusi!