Alviðruhlaupið 2025

 

Sunnudaginn 14. september kl. 14:00  verður hið árlega Alviðruhlaup í tilefni af Degi íslenskrar náttúru.

Hlaupið í náttúrunni við Sogið

Alviðruhlaupið er gott tækifæri til að kynnast Soginu, vatnsmestu lindá landsins, og einstakri náttúrufegurð svæðisins við fljótið undir Ingólfsfjalli.

Hlaupið verður frá bæjarhlaðinu í Alviðru, á göngustíg á brúnni yfir Sogið og um stíga á birkivöxnu Öndverðarnesi með útsýni yfir Sogið og Hvítá. Vegalengdin er um 8 km.

 Eftir hlaupið verður boðið upp á hressingu í Alviðru.

 Áhugasamir eru beðnir um að senda skilaboð á stjórnanda hlaupsins á netfangið: agusta.jonsdottir@gmail.com

Jörðin Alviðra undir Ingólfsfjalli við Sogið er friðland og fræðslumiðstöð Landverndar. Öndverðarnes II er eign Árnesinga og er einnig friðland með merktum gönguleiðum og opið almenningi.

Staðsetning Alviðru: https://ja.is/kort/?d=hashid%3AbqpbZ&x=402950&y=390092&type=map&nz=13.70

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd