Hér að neðan er að finna tillögur að þeim ályktunum sem liggja fyrir aðalfund Landverndar 2023
![Vatnajökull - orkuskiptin eiga ekki að vera í trássi við náttúruvernd.](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2022/06/Vatnajokull-glacier-min-e1655994280447.jpg)
Tillaga stjórnar að ályktun (drög 87.4.2023) Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs og verndun hálendisins
Tillaga stjórnar að ályktun (drög 87.4.2023) Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs og verndun hálendisins
![](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2023/02/Rottaekar_kerfisbreytingar_landvernd_vefur.jpg)
Tillaga stjórnar að ályktun (drög 18.4.2023) Loftslagsmál
Aðalfundur Landverndar gagnrýnir ríkisstjórn Íslands fyrir andvaraleysi og aðgerðaleysi í loftslagsmálum. Aðgerðaráætlun Íslands í loftslagsmálum er í engu samræmi við umfang vandans. Þá eru markmið og áætlanir í hinum ýmsu málaflokkum, til dæmis samgöngumálum, ekki samræmdar markmiðum í loftslagsmálum.
![](https://landvernd.is/wp-content/uploads/2023/01/Seljalandsfoss_landvend_vefur.jpg)
Tillaga að ályktun fyrir aðalfund Landverndar, 19. apríl, 2023
Frá: Kristínu Völu Ragnarsdóttur
Aðalfundur Landverndar ályktar að ríkisstjórnin leggi til við aðildarríki Alþjóðlega sakamáladómstólsins um að vistmorð verði viðurkennt í Rómarsamþykktinni sem 5. glæpurinn gegn friði. Einnig að ríkistjórnin beiti sér fyrir því að sambærilegar tillögur séu ræddar og afgreiddar innan Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðsins og Norðurlandaráðs.