Á aðalfundi Landverndar sem haldinn var í Tjarnarbíó 23. maí 2025 voru eftirfarandi ályktanir samþykktar:
Loftslagsmál: Skortur á árangri kallar á róttækar aðgerðir
Landvernd lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af litlum árangri Íslands í loftslagsmálum, þrátt fyrir að aðgerðaáætlanir hafi verið til staðar um árabil. Án raunverulegra aðgerða mun Ísland ekki geta staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt Parísarsamkomulaginu, með tilheyrandi skaða fyrir náttúru og efnahag. Landvernd hvetur stjórnvöld til að setja aðgerðaáætlun með metnaðarfullum, tímasettum, mælanlegum og fjármögnuðum markmiðum í þágu loftslagsins.
Líffræðileg fjölbreytni: Þörf er á þjóðarátaki í náttúruvernd
Vistkerfi og líffræðileg fjölbreytni eru undir stöðugu álagi. Mikilvægt er að á Íslandi sé skýr löggjöf og stefna um verndun náttúru og vistkerfa. Landvernd hvetur til þjóðarátaks í náttúruvernd þar sem stjórnvöld hafi forgöngu um að leiða saman almenning, sveitarfélög, fræðasamfélag og fyrirtæki í markvissum aðgerðum til að stöðva náttúrutap. Einnig þurfa stjórnvöld að vinna markvisst að hinu svokallaða „30×30“-markmiði rammasamnings SÞ um líffræðilega fjölbreytni, þ.e. að vernda 30% hafs og 30% lands fyrir árið 2030.
Náttúruvernd í orkuuppbyggingu: Engin orkuuppbygging án heildrænnar náttúruverndarstefnu
Landvernd beinir til stjórnvalda að tryggja að orkuöflun vegna orkuskipta verði ekki á kostnað ósnortinnar náttúru og líffræðilegrar fjölbreytni. Allar ákvarðanir um nýjar virkjanir þurfa að byggjast á heildrænu mati þar sem náttúruvernd hefur raunverulega vigt. Landvernd skorar á Alþingi að setja lögbundin viðmið um vernd verðmætra vistkerfa og tryggja að endurnýjanleg orka verði þróuð af ábyrgð.
Loftslagsmál: Hætta af hnignun AMOC-hringrásarinnar
Veiking AMOC straumkerfisins (e. Atlantic meriodional overturning circulation) hefur bein áhrif á veðurkerfi, sjávarhita, sjávarstöðu og vistkerfi beggja vegna Atlantshafs. Ísland er í lykilstöðu til að stuðla að rannsóknum og vitundarvakningu um þetta mikilvæga efni. Landvernd skorar á stjórnvöld að verja fjármagni til, og efla stuðning við vísindasamfélagið til að fylgjast grannt með þróun AMOC straumkerfisins og upplýsa um afleiðingar veikingar þess.
Sjókvíaeldi
Landvernd skorar á stjórnvöld að veita ekki frekari heimildir til sjókvíaeldis. Fasa skal út sjókvíaeldi í núverandi mynd og að lokum banna fyrir 2030. Opnar sjókvíar eru tímaskekkja og starfsemin veldur alvarlegum umhverfisskaða.
Skógrækt
Landvernd hvetur til að stjórnvöld móti stefnu um skógrækt til kolefnisbindingar með sjálfbærniviðmiðum sem uppfylla skilgreiningu reglugerðar Evrópusambandsins um sjálfbæran rekstur. Með því verði tryggt að skógrækt leiði ekki til breytinga á vistkerfum sem eru viðkvæm fyrir hnignun líffræðilegrar fjölbreytni, svo sem á búsvæðum mófugla og annara ábyrgðartegunda Íslands samkvæmt Bernarsáttmálanum. Það felst meðal annars í að takmarka notkun framandi ágengra tegunda við skógrækt. Landvernd telur að skógræktarsvæði stærri en 100 hektarar verði að vera umhverfismatsskyld.
Þétting byggðar og almenningssamgöngur
Landvernd telur mikilvægt að þétta byggð og skipuleggja blandaða byggð þar sem lögð er áhersla á 15 mínútna borgina. Þá er mikilvægt að gæta þess að í íbúðarbyggð sé gróður, birta og skjól og að ekki sé gengið á þau gæði við þéttingu byggðar. Landvernd styður heilshugar uppbyggingu Borgarlínunnar.
Banna vindorkuver með lögum
Aðalfundur Landverndar haldinn í Tjarnarbíói 23.maí 2025 skorar á Alþingi Íslands að banna nú þegar, með lögum, uppsetningu á vindorkuverum á og í kringum Ísland.
Vindorkuver munu valda óbætanlegum og óafturkræfum náttúruspjöllum, stórfelldu landraski, sjón- og hljóðmengun, skaða vistkerfi og ógna líffræðilegum fjölbreytileika og skaða samfélög og atvinnulíf í landinu.
Þess er líka krafist að löggjafinn skapi sterkan lagaramma svo orkuinnviðir landsins, framleiðsla og dreifing, verði í almannaeigu til framtíðar til að tryggja beina aðkomu almennings að orku- og afkomuöryggi, matvælaöryggi og náttúruvernd.
Á fundinum var ný stjórn einnig kynnt til leiks. Í stjórninni eru nú (frá vinstri) Stefán Örn Snæbjörnsson, Kristín Vala Ragnarsdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Anna Þórhildur Gunnarsdóttir, Einar Ólafur Þorleyfsson, Þorgerður María Þorbjarnardóttir, Gústaf Viðarson, Birgir Þórarinsson og Gunnlaugur Friðrik Friðriksson. Á myndina vantar Helgu Hvanndal Björnsdóttur.