Ási Kisi safnar fyrir Landvernd

Ási Köttur og plast
Komið á morgun og styðjið Ása og Landvernd
Sérstakt listaverkauppboð verður haldið í Gallerí Fold miðvikudaginn 10. júní þar sem einstakir skúlptúrar úr plasti verða boðnir upp. Verkin eru unnin úr plasti sem kötturinn Ási hefur safnað saman úr náttúrunni og umbreytt í áhrifarík listaverk í samstarfi við eiganda sinn Sigríði Júlíu.
Listamennirnir gefa verkin til styrktar Landvernd og mæta þau á viðburðinn til þess að taka á móti tilnefningu Ása sem heiðursfélagi Landverndar.
Á uppboðinu gefst gestum tækifæri til að eignast eitt af hinun stórskemmtilegu plasttröllum sem sameina list, húmor og umhverfisvitund á einstakan hátt. Tröllin eru einstök og í takmörkuðu upplagi.
Hægt verður að taka þátt í uppboðinu bæði á staðnum í Gallerí Fold og á netinu. Fylgist vel með á Instagram síðu Landverndar. 😍
Vegna takmarkaðs upplags hvetjum við áhugasama til að fylgjast vel með á miðlum Landverndar fyrir nánari upplýsingar og uppfærslur.
mjámjámjámjámjámjámjámjámjámjámjámjámjámjámjámjámjá

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd