Áskorun til stjórnmálaflokka: Kjósum með náttúrunni – verndum auðæfi Íslands!

Ég skora á stjórnmálaflokka að mæta til kosninga með stefnu fyrir náttúruna og loftslagið og verja dýrmætar auðlindir landsins af hugrekki og framsýni!

Öll spjót standa á íslenskri náttúru. Við blasa mikilvægustu áskoranir samtímans í umhverfismálum. Saman getum við varið náttúru- og lífsgæðin. Stjórnmálaflokkar gegna mikilvægu hlutverki í því fyrir framtíðarkynslóðir. 

Ágangur og hnignun náttúru, eyðing tegunda og vistkerfa og loftslagsbreyingar eru ekki einkamál okkar kynslóðar. 

Stöndum vörð um heiðalönd, víðerni, lífríki, vistkerfi, höf og hálendi. Berjumst gegn landeyðingu og náttúruníði og verndum líffræðilegan fjölbreytileika, vistkerfin og endurheimtum votlendið. Alþjóðasamfélagið reynir nú að snúa vörn í sókn og við megum ekki sitja eftir.

Stjórnmálamenn þurfa að átta sig á því að auðlindir Íslands eru ekki óþrjótandi. Við eigum náttúrunni allt að þakka, erum hluti af henni og getum ekki lifað án hennar. Því ber okkur skylda til að gæta auðlindanna og endurskoða stöðugt nýtingu þeirra.

Við skorum á stjórnmálaflokka að mæta til kosninga með stefnu fyrir náttúruna og loftslagið og verja dýrmætar auðlindir landsins af hugrekki og framsýni! 

Kjósum með náttúrunni! Verndum auðæfi Íslands! 

SKRIFAÐU UNDIR

Með því að skrifa undir veitir þú Landvernd leyfi til að afhenda frambjóðendum stjórnmálaflokka undirskrift þína.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd