Náttúruverndarsamtök frá öllum norðurlöndum hvetja stjórnvöld til að setja á fót hafverndarsvæði í íslenskri lögsögu til þess að ná markmiðinu um að friða 30% haf, land og strandsvæða fyrir 2030.
Stærstu náttúruverndarsamtök norðurlandanna héldu árlegan fund sinn á Íslandi 18-19 maí 2026. Samtökin hittast á hverju ári til að styrkja tengslin sín á milli og til að deila áskorunum og sigrum frá fyrra ári.
Í ár var þema fundarins verndarsvæði í hafi. Samtökin eru samhljóma um að mikil tækifæri liggja í samstarfi milli landa til þess að koma á fót hafverndarsvæðum þvert yfir landamæri.
Þrátt fyrir að á norðurlöndunum sé viðamikil fiskveiðistjórnun eru mjög fá svæði sem falla undir skilgreiningar hafverndarsvæða eða annarar áhrifaríkra verndaraðgerða (MPA eða OECM).
Líf á hafsbotni er gleymist gjarnan í náttúruverndaraðgerðum en vistkerfi á hafsbotni eru stórbrotin og mikilvæg að vernda. Hafverndarsvæði auka lífmassa í hafinu og áhrifa þeirra gætir utan svæðanna. Hafverndarsvæði hafa því möguleika á að auka sjálfbærri nýtingu auðinda hafsins.
Norræn náttúruverndarsamtök vilja nýta tækifærið nú þegar þau eru stödd á Íslandi til þess að hvetja stjórnvöld að auka metnað sinn við að koma á fót hafverndarsvæðum í íslenskri lögsögu til þess að ná markmiðinu um að friða 30% haf, land og strandsvæða fyrir 2030.



