Bláfáninn hefur nú verið afhentur með viðhöfn á flestum þeim stöðum sem sóttu um viðurkenninguna hér á landi í ár. Aldrei hafa fleiri flaggað Bláfánanum á Íslandi en 13 staðir og fyrirtæki fengu vottunina árið 2016. Níu handhafar sóttu um endurnýjun á Bláfánanum en fjórir fengu afhent í fyrsta sinn og eru það allt ferðaþjónustuaðilar í sjávarferðamennsku. Handhafar Bláfánans í ár eru:
Þjónustuaðilar í sjávarferðamennsku
- Ambassador á Akureyri
- Elding í Reykjavík
- Special Tours í Reykjavík
- Whale Safari í Reykjavík
Baðstrendur
- Bláa lónið
- Langisandur á Akranesi
- Ylströndin í Nauthólsvík
Smábátahafnir
- Smábátahöfnin á Bíldudal
- Smábátahöfnin á Patreksfirði
- Smábátahöfnin á Suðureyri
- Smábátahöfnin í Stykkishólmi
- Smábátahöfnin við Hafnarhólma á Borgarfirði eystri
- Fossvogshöfn í Kópavogi
Við hjá Landvernd óskum handhöfum Bláfánans innilega til hamingju með vottunina og hvetjum þá áfram á braut náttúruverndar og gæðamála.