Nokkur íbúasamtök, umhverfisverndarfélög, foreldrafélag og Astma- og ofnæmisfélag Íslands efna til borgarafundar um brennisteinsvetnismengun frá jarðhitavirkjunum Orkuveitu Reykjavíkur. Fulltrúar allra framboða í komandi borgarstjórnarkosningum hefur verið boðið að taka þátt í pallborðsumræðum um stefnu framboðanna á þessu sviði, en Reykjavíkurborg er aðaleigandi Orkuveitu Reykjavíkur.
Yfirskrift fundarins er: Brennisteinsvetnismengun – eru heilsa okkar og fjármunir í hættu? Hann verður haldinn í Norðlingaskóla þriðjudaginn 27. maí kl. 19.30. Húsið opnar kl 19.00. Fundarstjóri verður Svavar Halldórsson.
Frá árinu 2006 hefur styrkur brennisteinsvetnis í andrúmslofti á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni aukist mjög. Vitað er að brennsteinsvetni hefur áhrif á ýmis konar rafeindabúnað og byggingarefni og einnig eru vísbendingar um að það hafi áhrif á heilsu fólks. Orkuveita Reykjarvíkur hefur ekki tekið málið föstum tökum og síðustu tíu ár hafa jarðhitavirkjanir Orkuveitunnar losað um 200 þúsund tonn af brennisteinsvetni út í andrúmsloftið.
Að fundinum standa:
- Íbúasamtök Norðlingaholts
- Íbúasamtök Árbæjar, Ártúnsholts og Seláss
- Íbúasamtök Grafarholts
- Íbúasamtök Grafarvogs
- Íbúasamtök Mosfellsbæ
- Foreldrafélag Waldorfskólanna á Lækjarbotnum
- Landvernd umhverfisverndarsamtök
- Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands
- Astma- og ofnæmisfélag Íslands