Heiðursverðlaun Skóla á grænni grein

Sigrún Helgadóttir á ráðstefnu Skóla á grænni grein
Á afmælisráðstefnu Skóla á grænni grein veittum við Sigrúnu Helgadóttur heiðursverðlaun. Sigrún var verkefnisstjóri Skóla á grænni grein, grænfánaverkefnisins, frá árinu 2000 til 2008 og skipulagði því og stýrði verkefninu frá upphafi þess og þangað til þátttökuskólar voru komnir yfir eitt hundrað talsins og á öllum skólastigum.

Sigrún hefur helgað starfskrafta sína umhverfismálum, ekki síst við að miðla fræðslu til barna og ungmenna, en hún hefur þýtt og staðfært námsefni í umhverfisfræðum. Þá hefur hún einnig skrifað námsefni í náttúru- og umhverfisfræðum, bæði fyrir nemendur og kennara. Sigrún hefur einnig lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að auka skilning almennings á náttúru og umhverfi.

Við afhendingu verðlaunanna fór Sigrún yfir tímann sinn sem verkefnastjóri og grænfánaverkefnið. Hún hafði orð á því að mikilvægt sé að kennarar og nemendur hafi góða þekkingu og djúpan skilning á umhverfinu en eitt það mikilvægasta er að hafa ást á náttúrunni.

Sigrún er vel að heiðursverðlaununum komin og við hjá Skólum á grænni grein erum henni ævinlega þakklát fyrir ást hennar á náttúrunni.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd