Verkefnið Ungt umhverfisfréttafólk hjá Landvernd er ætlað ungu fólki og snýst um að kynna sér umhverfismál og miðla upplýsingum til almennings með fjölbreyttum leiðum. Tíu verkefni komust í undanúrslit árið 2020. Verkefnin voru af ólíkum toga og komu frá framhaldsskólum víðsvegar af landinu. Nemendur úr umhverfisfræði í Verzlunarskóla Íslands gerðu hlaðvarp um einstaklingsframtakið í umhverfismálum. Hlaðvarpið kalla þau „Hvað get ég gert?“.
Í hlaðvarpinu taka nemendur sérstaklega fyrir neyslu, flokkun og samgöngur og ræða sín á milli um ýmsa kosti og galla við málefnin. Hlaðvarpið veitir ágætis innsýn í hugarheim ungmenna varðandi umhverfismálin.
Hægt er að hlusta á þættina hér fyrir neðan.
Nemendurnir lýsa „Hvað get ég gert?“ hlaðvarpinu sínu á eftirfarandi hátt: „Mörgum finnst umhverfismál vera eintómur höfuðverkur, en markmið hlaðvarpsins er að sýna fólki að í raun geta hin minnstu skref haft ótrúleg áhrif á stóru myndina“.
Þau tengja heimsmarkmiðin við verkefnið. „Í lang flestum heimsmarkmiðum er minnst á að fyrir 2030 þá hafa forvarnir og menntun fólks um hvernig allir geti haft áhrif á og brugðist við umhverfismálum. Verkefnið okkar hefur það markmið að upplýsa alla um það hve einfalt það er í raun að hafa jákvæð áhrif á umhverfið“.
Hefur þú áhuga á því að senda verkefni í keppnina?