Hvammsvirkjun hleypt í gegn í héraðsdómi

Aurar Þjórsár
Aurar Þjórsár

Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði því í gær að ógilda virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Samtökin telja niðurstöðu dómsins ranga og að forsendur virkjunarinnar stangist á við landslög, svo sem lög um stjórn vatnamála og lög um umhverfismat framkvæmda. Samtökin telja það ósvífni af hálfu forsvarsmanna Landsvirkjunar að segja að dómsmál og önnur kærumál tengd virkjuninni snúist um formsatriði en „ekki virkjunina sjálfa“ – þvert á móti snýst dómsmálið og baráttan gegn Hvammsvirkjun fyrst og fremst um vernd náttúru, samfélags og sérstaklega lífríkis Þjórsár sem er búsvæði eins mesta stofns Atlantshafslaxins. Ljóst er að deilunni um Hvammsvirkjun er ekki lokið enda hefur lögmaður landeigenda þegar lýst því yfir í fréttum að dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað. Auk þess liggur kæra inni hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna framkvæmdaleyfis Skeiða- og Gnúpverjahrepps og styðja náttúruverndarsamtök stefnendur í dómsmálinu í áframhaldandi baráttu fyrir vernd Þjórsár.

Landvernd

Náttúruverndarsamtök Íslands

Náttúrugrið

Verndarsjóður Villtra Laxastofna (NASF)

Íslenski náttúruverndarsjóðurinn (IWF)

* Samkvæmt lögum um stjórn vatnamála má ekki veita leyfi fyrir framkvæmdum sem valda stórfelldum áhrifum á náttúruleg ferli vatns og vatnavistkerfa, nema framkvæmdirnar og ávinningur þeirra varði svo mikla almannahagsmuni að víkja megi frá þeim ríku almannahagsmunum sem felast í að varðveita og viðhalda heilbrigðum vatnavistkerfum. Hvammsvirkjun varðar hvorki almannahag, raforkuöryggi almennings né orkuskipti, enda er raforkan frá virkjuninni ætluð einkareknum stórnotendum á suðvesturhorni landsins, svo sem gagnaverum. Það hafa stjórnendur Landsvirkjunar sjálfir ítrekað fullyrt í fjölmiðlum síðustu ár. Náttúruverndarsamtök ítreka að Hvammsvirkjun geti ekki staðist þessi ákvæði laganna.

 

* Umhverfismat Hvammsvirkjunar er ríflega tveggja áratuga gamalt og efnislega löngu úrelt, enda er ekki í því fjallað á fullnægjandi hátt um fjölmarga umhverfisþætti sem virkjunin myndi hafa áhrif á. Sérstaklega er umhverfismatið úr sér gengið hvað varðar áhrif á vatn og lífríki Þjórsár. Frá því umhverfismatið var unnið rétt upp úr aldamótum hefur mat á áhrifum virkjunarinnar á fiskistofna og annað vatnalíf í Þjórsá aldrei verið endurskoðað. Náttúruverndarsamtök ítreka að endurvinna verði umhverfismat virkjunarinnar hvað varðar vatnalíf Þjórsár enda byggist það á ríflega 25 ára gömlum rannsóknum.

 

* Náttúruverndarsamtök telja breytingar síðustu missera á lögum um stjórn vatnamála og setning nýs ákvæðis sem heimilar virkjunarleyfi til bráðabirgða vera hneyksli, en þessar lagabreytingar voru gerðar að frumkvæði umhverfisráðherra einungis svo Landsvirkjun gæti haldið áfram á vegferð sinni með Hvammsvirkjun. Þessar tilfæringar undirstrika hvernig stjórnvöld hafa ítrekað greitt götu framkvæmdaraðila á kostnað náttúrunnar og þverbrjóta þessar lagasetningar skuldbindingar Íslendinga á alþjóðavettvangi um leið og þær grafa undan trausti til Alþingis sem setur sérlög til handa orkufyrirtækjum.

 

* Náttúruverndarsamtök gagnrýna sérstaklega að dómurinn horfir ekki til þess að Þjórsá hýsir stærsta náttúrulega stofn Atlantshafslaxins á Íslandi og einn af allrastærstu stofnum laxins við Atlantshaf. Allar framkvæmdir sem ógna honum og líffræðilegum fjölbreytileika laxfiskastofna við Ísland tilheyra hugmyndafræði síðustu aldar og má fullyrða að hvergi í nágrannalöndum kæmi til greina að reisa virkjun sem þessa.

Ert þú í Landvernd?

Taktu afstöðu með náttúrunni og gakktu í Landvernd